Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 29

Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 Þéttbýli er alltaf í þróun. Íbúum fjölgar og þá þarf að finna íbúðum nýtt pláss. Það verða breytingar á samsetningu fjölskyld- unnar sem kallar á öðruvísi húsnæði. Í staðinn fyrir að það séu margar kynslóðir saman í húsi eru tengdar fjölskyldur kannski að leita að heppilegu húsnæði innan sama hverfis eða sömu götu, af mismun- andi stærð. Í eldri hverfum lætur fólk sig dreyma um fleiri baðher- bergi. Eldra fólk vill gjarnan minnka við sig og finna aðra íbúð við hæfi en halda sig við hverfið sem því þykir vænt um. Við þessum óskum og mun fleirum þarf að bregðast í skipulagi borgar sem á að vera góð fyrir alla. Inn með úthverfin Í skipulaginu er líka mikilvægt að huga að því að fólk geti nálgast sem mesta þjónustu í göngufæri við heimili sitt. Fyrir síðustu kosn- ingar kallaði ég þetta að fara „inn með út- hverfin“. Að færa þjón- ustuna út í úthverfin til að ekki þurfi nauðsynlega að stíga upp í bíl eftir brauðinu með morgunmatnum eða mjólkinni í kaffið. Að það sé hægt að fara í klippingu og blómabúð í hverf- inu. Fá sér bita á hverfisveit- ingastaðnum. Auk þess sem hægt sé að labba í skóla, leikskóla og sund. Í tungumáli skipulagsfræðinga er þetta kallað „15 mínútna hverfi“, þar sem hugsunin er að ekki taki íbúa hverfisins lengri tíma en kortér að ganga að helstu þjónustu. Þetta er það sem borgarbúar í öllum hverfum kalla eftir. Að þjónustan sé í göngu- færi. Þétting fyrir hverfisbraginn Fyrir sum eldri hverfi þarf að finna leiðir til að byggja nýjar íbúðir til að geta boðið upp á fjölbreyttari íbúðakosti innan hverfis. Það þarf líka að styrkja hverfið, með fleiri íbú- um til að það sé grundvöllur fyrir fjölbreyttari þjónustu innan hverfis. Þegar mörg hverfi í Reykjavík voru að byggjast upp, svo sem í Breiðholti, Árbæ og Bústaðahverfi, voru mun fleiri sem bjuggu í hverri íbúð. Með færri íbúum í hverri íbúð fækkar íbú- um hverfisins og eru þau ekki eins sjálfbær og þau voru fyrir nokkrum áratugum. Til að það sé hægt að reka hverfisveitingastaðinn eða kaffihúsið þurfa að vera nógu margir í nágrenn- inu sem vilja setjast inn og njóta veit- inganna. Það þurfa að vera nógu mörg börn í hverfinu til að reka þar leikskóla. Ný uppbygging Í öðrum hverfum höfum við tæki- færi til að bjóða upp á skipulagið fyr- ir þjónustu strax frá upphafi. Þjón- usta innan hverfis er til að mynda einkennandi fyrir skipulag Nýja Skerjafjarðar, sem á sama tíma býð- ur upp á aukna þjónustu í nágrenni þeirrar byggðar sem þegar er í Skerjafirði. Þjónusta innan hverfis er líka ein- kennandi fyrir nýtt skipulag Ártúns- höfða sem við samþykktum í borgar- ráði á fimmtudag. Þar mun að hluta léttur iðnaður víkja fyrir nýrri fjöl- breyttri byggð í kringum Krossmýr- artorg, sem verður jafnframt upp- hafsstöð fyrsta áfanga borgarlínu. Bara fyrstu áfangar þessara nýju byggða gera ráð fyrir 2.260 íbúðum í spennandi og nútímalegum hverfum sem byggð verða upp með mann- eskjuna og fjölbreytileika okkar allra í fyrirrúmi. Eftir einhverja ára- tugi getur svo verið aftur kominn tími til að endurskoða skipulag þess- ara nýju hverfa, til að íbúðir og þjón- ustan innan hverfis muni þá enn bet- ur henta þeim sem þar munu búa. Því þróunin endar ekki með þessu skipulagi, heldur eigum við alltaf að hafa í huga hvernig skipulagið þjón- ar íbúunum best. Eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur » Fyrir síðustu kosn- ingar kallaði ég þetta að fara „inn með úthverfin“. Að færa þjónustuna út í út- hverfin Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar. Borgin er að breytast Fagnaðarfundir Gömlu jólasveinarnir mæta núna daglega í Þjóðminjasafnið og gleðja börn og fullorðna. Þegar Pottaskefill kom í vikunni voru fagnaðarfundir með honum og börnunum. Eggert Nú má lesa í nýút- kominni bók, að séð frá Suðureyjum var það Ingólfur frændi sem nam Ísland. Undirrit- aður, sem er ekki land- námsfræðimaður, getur ekki hætt sér mikið lengra út í þá sálma til að forðast ásakanir um gripdeildir á andlegum verðmætum sem jafna má við áhrifin af vaxta- hækkunum Seðlabankans á fjárhag Reykjavíkurborgar. En Suðureyjar og aðrar eyjar í Norðurhöfum byggjast þegar nor- rænir menn eru komnir það langt í tækni að þeir geta byggt burðarmikil skip á kjöl. Eldri skip gátu borið tölu- vert án þess að hafa kjöl, en brotnuðu í spón í illviðrum ef þau hættu sér mikið lengra en dagssiglingu frá landi. Talið er að menn hafi lært þessa skipasmíð á áttundu öld. Í kjölfarið fylgdu miklar innrásir víkinga frá Noregi og Dan- mörku í Evrópu og Bretlandseyjar með töluverðum landvinningum. Þar á meðal í Normandí, Suður- og Norður- eyjum (Orkneyjum og Hjaltlandi). Færeyjar og Ísland voru numin, þar fengu menn að vera í nokkrum friði, alla vega um sinn. En annars staðar var ekki friður. Á þessum tíma voru gerðar miklar víkingaárásir yfir Norð- ursjóinn, sú fyrsta á klaustrið í Lindesfarne 793. Þarna gátu verið stórir herir á ferð sem lögðu undir sig mikil svæði og settust um kyrrt sem yf- irstétt í landinu. Þekktasta sagan er um Göngu-Hrólf og landnám hans í Normandí, þar hlaut hann embætti sem landvarnarmaður Frakkakon- ungs þegar ómögulegt reyndist að koma honum úr landi. Töluvert er deilt um það hvernig landnámið fór fram og hvers vegna. Þó hallast flestir á þá gömlu kenningu að víkingar frá Noregi hafi sest hér að, þótt einn og einn annar hafi slæðst með, frændur Ingólfs úr Suðureyjum og jafnvel einhverjir litaðir og um þetta deila menn. En það má vera að deiluaðilar gleymi aðalatriðinu sem orsakaði landnám Íslands. Það sem ekki hefur fundist almennileg skýring á er tvennt, hröð fjölgun landnema fyrstu árin, jafnvel um þúsund á ári þegar best lét, og þar að auki keltneskur uppruni kvenþjóðarinnar. En hvað or- sakaði þetta? Nærtækasta skýringin er brott- rekstur norskra landnema úr Norð- imbralandi á síðari hluta níundu aldar og fyrri hluta þeirrar tíundu. Árið 871 kemur stærsta víkingainnrás sem sög- ur fara af til Englands. Þar komu 400 víkingaskip, miðað við mönnun á skip- um þess tíma hefur þetta verið um 8.000 manna her. Í sögu Englands heitir þessi her „Great Heathen Army“ eða „Mikli heiðni herinn“. Miklar sögur fara af þessari herför, margar kvikmyndir verið gerða um hana, sumar þeirra verið sýndar hjá RÚV nýlega. En íslensk landnáms- fræði eiga eftir að fjalla um þetta. Niðurstaða þessarar innrásar var sú að Danir tóku það sem kallað var Danalög, héldu því og voru aldrei reknir burt. Norðmennirnir tóku hins vegar Norðimbraland. Konungarnir í bresku ríkjunum Wessex og Mercia snerust til varnar og á tíu árum hafði þeim orðið töluvert ágengt að reka Norðmennina burtu. Skemmst er frá því að segja, að 930 hafði þeim tekist að reka þá flesta frá Norðimbralandi, síðasti norski konungurinn var rekinn frá Jórvík (York) um þetta leyti, sjálf- ur Eiríkur blóðöx, frægur úr Eglu. Hvert áttu þessir norsku bændur og fyrrverandi víkingar að fara? Til Suðureyja? Þar voru fyrir frændur Ingólfs sem fóru ekki með honum til Íslands, allt upptekið þar. Svipaða sögu má segja um Norðureyjar og Færeyjar. En Ísland var mikið til óbyggt. Þangað hafa flóttamenn frá Norðimbralandi stefnt, með sínar kristnu keltnesku konur. Norskir vík- ingar með 20-50 manna heri hafa átt auðvelt með að gerast höfðingjar yfir þessu liði. Því miður hefur undirritaður ekki mikið meiri þekkingu en þetta á efn- inu. Örlítið meira má lesa í Morg- unblaðinu 24.8.21, Um Njálu, og í bók- inni Trú og vald í mannkynssögunni. En efnið um Mikla heiðna herinn er mjög aðgengilegt, og landnámsfræð- ingar gera margt verra en sameinast um frekari rannsóknir á því og sagn- fræði Norðimbralands 862-1030 til samanburðar við það sem vitað er um landnámið. Efast verður um að stagl um Ara fróða og bækur hans beri frekari ár- angur. Heimildagildi Landnámu um nöfn og átthaga landnámsmanna er ekki mikið meira en Gamla testament- isins um guðspjallamenn og konunga Ísraels. Bókin er skattaframtal fyrir tíundina og eignaskrá fyrir það laga- ákvæði að eignarétt yrði að færa „aft- ur til haugs og heiðni“ til að sannaður væri. Hvað landnámsmenn hétu og hvaðan þeir komu skiptir þar litlu máli. Við þessar aðstæður er jafnvel betra að skálda upp og nöfn og átt- haga en skrifa það rétta, slíkt gæti valdið erfða- og landamæradeilum. Þetta verkefni leysir Ari frábærlega, ekki fer neinum sögum af alvarlegum deilum af þessu tilefni hér á landi, en Egill Skallagrímsson átt í slíkum deil- um í Noregi. Ýmsir höfðingjar nöldr- uðu yfir niðurstöðum Ara og neyddu hann jafnvel til að breyta upphaf- legum texta. Orð hans, „hafa það sem sannara reynist“, gætu verið pilla á þá ritskoðun. Eftir Jónas Elíasson » Landnámsfræðin er bráðskemmtileg íþrótt en dálítið erfitt að afla sannfærandi heim- ilda. Sagnir um land- vinninga víkinga í Bret- landi má kanna betur. Jónas Elíasson Höfundur er verkfræðiprófessor. Ingólfur frændi og Landnáma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.