Morgunblaðið - 18.12.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.12.2021, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 eignasala@eignasala.is Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári S tundum höldum við að málið sé skiljanlegra en það er. Það blekkir okkur að tala tungumál sem á sér rætur aftur í svo grárri forneskju að heimsmynd þeirra sem notuðu sömu orð og við var gjörólík okkar. Áður en hugmyndin kviknaði um að við byggjum á hnetti í sólkerfi sá fólk t.d. fyrir sér að það ætti heima á Jörð með himinhvolf yfir sér þar sem nafngreind goðmögn væru á ferli innan við festinguna: Sól, Máni, Týr, Óðinn, Þór, Freyja og svo vitum við ekki hvað þau kölluðu Satúrnus, kannski Loka. Fólk sá Sólina „koma upp“ en við höfum lært að það er sjónhverfing. Það er Jörðin sem snýst. Sólin kemur ekki upp – nema í jarðneskum skilningi. Sólin á ekki heldur sali eða gengur á milli „húsa“ Dýrahringsins eins og sagt er í stjörnuspekinni, heldur breytist baksvið hennar á stjarnhimninum vegna þess að Jörðin fer í kringum Sólina. Náttúran og lífríkið hafa líka breyst – á meðan orðin haldast óbreytt. Örnefni á gróð- ursnauðum melum vitna um frumskóginn sem var hér við landnám. En stundum er breytingin ekki jafn augljós. Það á við um örnefni sem vísa á hvali. Hvalir synda enn í hafinu kringum landið og hvalrekar eru algengir – þótt þeir þyki ekki lengur sá happafengur sem þeir voru áður en matarofgnóttin varð heilsuvandamál. Hvalsörn- efni þóttu því til skamms tíma auðskiljanleg. Hvalfjörður dró nafn sitt af hvalnum Rauðhöfða sem gekk upp í Hvalvatn á bak við Hvalfell, og eyjan Hvallátur á Breiðafirði dró nafn sitt af hval sem þar rak – eins og segir í Breiðfirzkum sögnum. Þetta gat varla verið augljósara. Þangað til árið 1984 að Bjarni Einarsson, handritafræðingur, birti stutta grein í Griplu, tímariti Árnastofnunar, um örnefnið Hvallátur, bæði eyjarheitið og sama bæjarheiti vestan og norðan Látrabjargs. Síðan hefur komið í ljós að þessi grein hefur velt þyngra hlassi en Bjarni ætlaði. Hann gerir grein fyrir því að „látur“ merki „stað þar sem einhver liggur“ og að fornmenn hafi ekki eingöngu haft venjulega hvali í huga: „En nú vill svo til að Íslendingar hafa að fornu, þá er nafn- ið Hvallátur varð til, þekkt vel „hvali“ sem einatt skreiðast á land, fæða þar afkvæmi sín og liggja löngum og dorma. Þennan „hval“ kölluðu þeir rosmhval (einnig rostung). Hið forna nafn á Reykjanesskaga norðanverðum ber því órækt vitni: Rosmhvalanes. Óhætt mun að gera ráð fyrir að þá hafi verið meira um rostunga hér en á síðari tímum […] En eftir að rostungar voru að mestu horfnir héðan mun upphafleg merking þessara örnefna hafa gleymst, enda þótt íhugulir menn hljóti jafnan að hafa furðað sig á tengslum hvala við látur.“ Og nú líður senn að helgum jólum sem við höldum hátíðleg þótt ekki sé vitað hvað orðið merkti fyrir árið 1000 þegar farið var að nota það um messu Krists rétt eftir sólhvörf á vetri. En við sameinumst samt öll um að segja „gleðileg jól“ – án þess að vita hvað það þýðir. Hvallátur og jól Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Sólargangur Sól rís, sól sest, eða hvað? F yrir réttu ári, 18. desember 2020, um klukkan 15.00 féll gríðarmikil aurskriða rétt utan við Búðará á Seyðisfirði sem olli gríðarlegu tjóni. Almannavarnir lýstu yfir neyðarstigi og stefndu að því að rýma bæinn. Neyðar-, hættu- eða óvissuástand ríkti síðan með hléum í bænum allt til mið- nættis aðfaranótt 16. desember 2021. Með afboðun óvissuástandsins á Seyðisfirði urðu þátta- skil í landinu því að óvissustig eða hærra vástig hafði þá ríkt vegna náttúruvár einhvers staðar í eitt ár. Eldgos, skriðu- eða snjóflóðahætta, jökulhlaup eða jarðhrær- ingar, hætta á gróðureldum, vatnavextir og óveður hafa kallað á viðbrögð innan almannavarnakerfisins og til- kynningar frá embætti ríkislögreglustjóra samhliða við- vörunum vegna Covid-19-farsóttarinnar sem enn geisar. Á almannavarnalögin frá 2008 hefur aldrei reynt jafn stöðugt og fjölbreytilega og í ár. Með lögunum eru sam- hæfð almannavarnaviðbrögð til þess að takast á við afleið- ingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu al- mennings, umhverfi og eignum. Ríkið fer með allar almannavarnir á landi, í lofti eða á sjó. Sveitarfélög fara með almannavarnir í héraði, í sam- vinnu við ríkisvaldið. Með almannavörnum eru und- irbúnar, skipulagðar og fram- kvæmdar ráðstafanir til að hindra og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir lík- ams- eða heilsutjóni, eða umhverfi eða eignir verði fyrir tjóni, af völd- um náttúruhamfara eða af manna- völdum, farsótta eða hernaðar- aðgerða eða af öðrum ástæðum og veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns. Ríkislögreglustjóri hefur umsjón með að ráðstafanir séu gerðar í samræmi við stefnu stjórnvalda í almanna- varna- og öryggismálum. Hann hefur eftirlit með skipu- lagi almannavarna á landinu öllu og eftirlit með almanna- vörnum sveitarfélaga Undir yfirstjórn ríkislögreglustjóra hefur þróast sveigjanlegt almannavarnakerfi þar sem þekking og reynsla setur svip á allar aðgerðir og samhæfingarstjórn er virkjuð til aðstoðar aðgerðastjórn á vettvangi. Vegna farsóttarinnar var óvissustigi almannavarna lýst yfir strax 27. janúar 2020. Viðbragðsáætlanir ýmissa stofnana voru virkjaðar og ákveðið að efna til daglegra stöðufunda sóttvarnalæknis, landlæknis, fulltrúa ríkislög- reglustjóra, yfirlæknis sýkingarvarna á Landspítala og framkvæmdastjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þríeykið svonefnda varð að föstum heimilisgestum sem hvöttu landsmenn til að virða reglur sem heilbrigðis- ráðherra setti. Enn berast þessar hvatningar og enginn veit hverjar afleiðingar Ómíkron-afbrigðisins verða. Í samanburði við farsóttar-kynningarfundi erlendis vekur sérstaka athygli að hér stjórni yfirlögregluþjónn almannavarna fundunum. Í útlöndum er lögreglan sums staðar í óeirðabúningi að knýja borgarana til að fara að þeim reglum sem settar eru. Þriðja stóratvik ársins sem snerti almannavarnir var eldgosið sem hófst í Fagradalsfjalli 19. mars 2021. Tæp- um mánuði áður, 24. febrúar 2021, hafði ríkislög- reglustjóri í samráði við lögreglustjórann á höfuð- borgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands lýst yfir hættustigi almannavarna vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem þá gekk yfir á Reykjanesi. Skjálfti af stærð 5,7 mældist um 3,3 km SSV af Keili á Reykjanesi kl. 10:05 þennan sama dag. „Engin merki eru um gosóróa á svæðinu,“ sagði í tilkynningunni. Tæpir níu mánuðir liðu frá upphafi goss þar til ríkislög- reglustjóri aflýsti óvissustigi vegna þess í Geldingadölum/ Fagradalsfjalli, 3. desember 2021. Hættan var mismikil á þessum mánuðum. Undir forsjá Suðurnesjalögreglunnar með aðstoð félaga björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík streymdu um 800.000 manns að gosstöðvunum að mati björgunarsveitarmanna. Stundum mátti litlu muna en öllum var bjargað. Ferðamálastofa hóf ekki talningu strax og fylgdist ekki með öllum leiðum en hún taldi um 550.000 á göngu til eldstöðvanna. Framlag björgunarsveitar- manna var ómetanlegt á gosstað eins og hvarvetna þar sem gripið er til almannavarna vegna nátt- úruhamfara eða slysa. Undir lok ársins, 13. desember, urðu þáttaskil í starfi almannavarnadeildarinnar þegar ríkislögreglustjóri, í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskipta- stofu, lýsti yfir óvissustigi almannavarna vegna Log4j- veikleikans hér á landi. Öryggissérfræðingar um heim allan unnu þá hörðum höndum að því að draga úr hættu vegna innbrots tölvu- þrjóta í Log4j-forritið. Það er mjög útbreitt í net- og tölvukerfum. Tveimur dögum áður höfðu Fjarskiptastofa og CERT-IS vakið athygli á alvarleika málsins og hags- munaaðilar og rekstraraðilar mikilvægra innviða voru hvattir til skjótra viðbragða. Í tilkynningunni birtist ný vídd í almannavörnum. Sam- hæfing á vörnum í netheimum er óhjákvæmileg. Þar er um að ræða grunnþátt nútímasamfélaga og hættu sem getur steðjað að hverju heimili eða tölvu- og símaeiganda. Nú kemur í hlut almannavarna- og öryggismálaráðs að sjá til þess að undir handarjaðri ríkislögreglustjóra verði gerð viðbragðsáætlun á þessu sviði um stjórnkerfi og boð- leiðir á grunni almannavarnalaganna. Netvarnir eru annars eðlis en varnir vegna náttúru- hamfara. Í báðum tilvikum er þó um gífurlega almanna- hagsmuni að ræða sem ríkisvaldinu ber skylda til að verja. Að það skref sé stigið að virkja almannavarnakerfið vegna netárása sannar enn hve sveigjanlegt það er og krefst jafnframt að fyrir liggi vel útfærðar áætlanir um viðbrögð og samhæfingarstjórn. Á almannavarnalögin frá 2008 hefur aldrei reynt jafn stöðugt og fjölbreytilega og í ár, að virkja almannavarna- kerfið vegna netárása sannar enn hve sveigjanleg lögin eru. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Álagsár á almannavarnir kveður Á ráðstefnu evrópskra íhalds- og umbótaflokka um netfrelsi í Róm 10.-12. desember rifjaði ég upp rökin fyrir mál- og hugsunar- frelsi. Bönnuð skoðun gæti verið rétt, og þá missir mannkynið mikils. Hún gæti verið röng, en þá er mönnum hollt að spreyta sig á því að hrekja hana. Og bönnuð skoðun gæti verið að sumu leyti rétt og að sumu leyti röng. En síðasta áratug hafa komið til sögu tveir öflugir samfélagsmiðlar, Facebook og Twitter, sem hafa skert málfrelsi notenda sinna verulega. Þeir tak- mörkuðu til dæmis mjög svigrúm til að segja fréttir af afritaðri tölvu Hunters Bidens forsetasonar og til að láta í ljós þá skoðun, að kórónu- veiran væri upprunnin í kínverskri tilraunastofu. Nokkrum dögum áð- ur en Donald Trump lét af forseta- embætti lokuðu bæði fyrirtækin jafnvel reikningum hans. Sagt er á móti, að þetta séu einkafyrirtæki og megi setja reglur um, hverjum þau hleypi að. Réttur minn til að segja skoðun mína feli ekki í sér skyldu þína til að hlusta á mig eða hleypa mér að tækjum þín- um. En í Róm hélt ég því fram, að vegna einokunaraðstöðu sinnar og eðlis væru þessi fyrirtæki almanna- miðlar (common carriers) svipað og einkavegir, gistihús og símafyrir- tæki. Þótt vegur sé í einkaeigu, má eigandinn ekki banna konum að aka um hann (eins og gert var í Sádi- Arabíu). Gistihús má ekki neita þel- dökkum mönnum um afgreiðslu (eins og gert var í Suður-Afríku). Símafyrirtæki má ekki mismuna eftir trúar- eða stjórnmálaskoð- unum. Samkvæmt bandarískum lögum bera Facebook og Twitter ekki ábyrgð á því, hvað menn segja á þeim. En ef þeir taka upp rit- skoðun, eins og þeir eru að gera (og þá aðallega á hægrimönnum), þá er eðlilegt, að þeir taki á sig slíka ábyrgð. Annaðhvort verða þeir að vera opnir og ábyrgðarlausir eða lokaðir og ábyrgir þeirra orða, sem á þeim falla. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Málfrelsi og samfélagsmiðlar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.