Morgunblaðið - 18.12.2021, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
E
f velja ætti fimm erlenda
skákmeistara sem hefðu
með einhverjum hætti
skapað mikilvæg tengsl
við Ísland hygg ég að Jan Timman
sem varð sjötugur á dögunum kæm-
ist þar á blað. Góður fulltrúi hinnar
frjálslyndu þjóðar sinnar og „68-
kynslóðarinnar“. Hann tefldi fyrst
hér á Reykjavíkurmótinu 1972 og
ótal sinnum eftir það. Timman á
marga vini hér á landi, ferðaðist um
landið allt og tók ástfóstri við Íslend-
ingasögurnar og þá einkum Njálu.
Hollendingar voru stoltir af Max
Euwe sem var heimsmeistari 1935-́
37 og átti stóran þátt í vinsældum
skákarinnar þar í landi. Timman tók
við keflinu og fór fram úr Euwe í
vissum skilningi. Framlag beggja á
ritvellinum er merkilegt en síðasta
bók Timmans, The Unstoppable
American, fjallar um feril Bobby
Fischers frá því að hann mætir í
keppnina Heimurinn-Sovétríkin í
Belgrad 1970 og verður heimsmeist-
ari rösklega tveimur árum síðar.
Einn helsti áhrifavaldur Timmans
á skáksviðinu kom úr óvæntri átt en
það var Mikhael Botvinnik, heims-
meistari með hléum frá 1948 til 1963.
Sá staðfasti maður lifði og starfaði
alla tíð eftir þrautskipulagðri dag-
skrá. Í einni af bókum sínum skýrði
hann hvernig hann undirbyggi sig
fyrir skákkeppni. Þar var áhersla
lögð á hálfgerðan meinlætalifnað,
líkamsrækt og kerfisbundnar rann-
sóknir á skáklistinni sem yrði að
hætta nákvæmlega fimm dögum fyr-
ir hverja keppni en þá tækju við
langar gönguferðir í fersku fjalla-
lofti. Í bók sinni The Art of Chess
Analysis sagði Timman frá því að
fyrir sterkt mót í Hollandi hefði
hann ákveðið að fylgja leiðsögn
Botvinniks í einu og öllu og var bók-
staflega að springa af orku þegar
mótið hófst. En hvað gerðist? Hann
tapaði fyrstu fimm skákunum! Dró
þá ályktun að það hlyti að vera úr-
launsnarefni hvers og eins að finna
sinn persónulega takt.
En Botvinnik var samt áfram
„með í för“ því að í áskorendakeppn-
inni 1988-1990 og aftur 1991-1993
tefldi Timman í tvígang um áskor-
unarréttinn. Við klofning í skák-
heiminum árið 1993 tefldi Timman
um heimsmeistaratitil FIDE við
Anatoli Karpov sem eins og stund-
um áður reyndist ofjarl hans.
Timman virtist mér ekki hafa
mestan áhuga á vel tefldum skákum,
heldur flækjum og óvæntum mögu-
leikum. Árið 1978 varð hann í 3. sæti
á eftir Karpov og Spasskí á sterk-
asta móti ársins en Karpov fékk eft-
irminnilega ráðningu snemma í
mótinu:
Bugonjo 1978; 5. umferð:
Jan Timman – Anatolí Karpov
Drottningarbragð
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Be7 4.
cxd5 exd5 5. Bf4 Rf6 6. e3 O-O 7.
Dc2 c6 8. Bd3 He8 9. Rf3 Rbd7 10.
O-O-O Rf8 11. h3 Be6 12. Kb1 Hc8
13. Rg5 b5 14. Be5!
Byggir upp ógnandi sóknarstöðu.
14. … h6 15. Rxe6 Rxe6 16. g4
Rd7
17. h4!
Þekktu óvininn, skrifaði Sun Tzu.
Timman vissi að eftir 17. Bg3 kæmi
blokkering að hætti Karpovs, 17. ..
Bh4!
17. … b4 18. Re2 Bxh4 19. f4 c5
20. Ba6! Be7 21. Bxc8 Dxc8 22. Rg3
f6
23. Hxh6! Ref8
Eftir 23. … gxh6 24. Dg6+ nær
hvítur mátsókn.
24. Hh3 c4 25. Rf5 fxe5 26. fxe5
Dc6 27. Hdh1 Rg6 28. Rd6!
Brýtur upp varnir svarts.
28. … Rdf8 29. Rxe8 Dxe8 30.
Hh5 Dc6 31. Df5 a5
32. e6! Dxe6 33. Dxd5 a4 34. Hc1
c3 35. bxc3 bxc3 36. Hxc3 Dxd5 37.
Hxd5 Re6 38. Kc2 Kf7 39. Ha5 Rg5
40. Hc6 Re4 41. Hxa4 Rf6 42. Ha7
Rd5 43. Hxg6 Kxg6 44. e4 Rb4 45.
Kb3 Bf8 46. Hb7
- og Karpov gafst upp.
Íslandsvinurinn
Jan Timman
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson.
Framsækinn Jan Timman við taflið á Reykjavíkurskákmótinu 2004.
Hversu dásamlegt og
óendanlega þakkarvert
er það að fá að taka litla
jólabarnið, frelsarann
okkar Jesú Krist, inn að
hjartanu. Gera hjörtu
okkar að vöggunni hans.
Hans sem fær svo von-
andi að vaxa í hjörtum
okkar, þroskast þar með
okkur og dafna. Og jafn-
vel þótt við viljum með einhverju móti
reyna að losa okkur við hann, þá verð-
um við alla tíð snortin af honum að því
gefnu að við höfum einhvern tíma gefið
honum tækifæri á að stíga inn og setj-
ast þar að. Því hann markar djúp spor í
hjörtum okkar og hefur þannig áhrif til
góðs á allt okkar líf.
Hann er í dag og í gær hinn sami og
um aldir og mun alltaf verða. Hann
lagar sig að ólíkum þörfum okkar í öll-
um þeim ólíku verkefnum sem upp
kunna að koma þar sem við biðjum þess
að fá að vera samferðafólki okkar til
blessunar og þar sem honum er gefin
dýrðin.
Ilmurinn af lífinu
Ilmurinn af nýfæddu barni er ilm-
urinn af lífinu. Maður fyllist lotningu og
þakklæti, kemst við. Fyllist auðmýkt
yfir þessu nýfædda kraftaverki. Lífsins
undri. Jesús sagði: „Leyfið börnunum
að koma til mín því þeirra er himnaríki.
Þeir sem taka ekki við Guðsríki eins
og börn munu aldrei inn í það koma.“
Þangað sem fyrirheitin er að finna og
huggun, styrk og skjól að sækja. Í orðin
sem veita okkur friðinn sanna og skjólið
fyrir hvers konar vonbrigðum og óáran
og þá framtíðarsýn sem segir okkur að
okkur sé óhætt, þrátt fyrir allt heimsins
böl, því hann er hjá okkur, fylgir okkur
eftir og leiðir hvern dag, hverja stund.
Hugsið ykkur að grunntákn kristn-
innar er annars vegar nýfætt barn
liggjandi í dýrastalli í fjárhúsi. Stalli
sem dýrin éta heyið upp úr. Og hins
vegar illa leikinn líkami ungs manns,
rúmlega þrítugs, hangandi pyntaður,
deyjandi og látinn á krossi.
Sjáðu barnið fyrir þér hangandi á
krossinum, þetta barn ungra foreldra
þar sem unnusti móðurinnar var ekki
sagður pabbinn og enginn vissi hvað
hann átti að halda. Þetta
barn sem átti eftir að þola
einelti, pyntingar og órétt-
læti.
Hvernig sem okkur líður,
hverju sem við höfum misst
af og hvað það er sem við
þurfum að þola, þá hefur
hann verið þar. Hann þekk-
ir aðstæðurnar. Hann, fyr-
irgefandi og friðgefandi og
huggarinn mesti. Frelsari
heimsins. Hin himneska
jarðtenging sem við öll
þurfum á að halda að tengja okkur við.
Já, sítengja með þráðlausu sambandi
vonarinnar, náðarinnar og bænarinnar
um að hann biðji fyrir okkur og taki á
móti okkur. Styðji, huggi og styrki.
Hvar og hvenær sem er í öllum að-
stæðum.
Aðventan er einmitt upplagður tími
til uppgjörs. Og nýrra væntinga. Fæð-
ingarhríðir inn í þann draumaheim sem
við þráum svo heitt og innilega og koma
skal. Tökum hann inn að hjartanu.
Guð gefi okkur að láta það eftir okkur
að fá að vera farvegir kærleika hans, fyr-
irgefningar, friðar og fagnaðarerindis á
þessari aðventu og um komandi jól. Á
nýju ári og um ókomna tíma. Kynslóð
eftir kynslóð uns við samlögumst hon-
um, ljósi lífsins í himinsins heilögu sælu
og eilífu dýrð.
Njótum aðventunnar og jólanna með
því að núllstilla og hlaða okkar andlegu
batterí. Svo að Jesús fái rými til að
rækta kærleika í hjörtum okkar svo við
tökum að sjá fólk með hjartanu. Og
leyfum kærleikanum svo að flæða frá
hjarta til hjarta svo hann verði raun-
verulega að eilífu óslökkvandi ljósi á
meðal okkar.
Njótum aðventunnar í ljósi jólanna
og ævinnar í ljósi lífsins.
Kærleikans Guð gefi okkur öllum
heilög jól. Í Jesú nafni.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Njótum aðventunnar
og jólanna með því að
núllstilla og hlaða okkar
andlegu batterí.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Jólin koma
með ilm af lífinu
Þóra Melsteð fæddist 18.
desember 1823 í Skælskör á
Sjálandi, og var skírð Thora
Charlotte Amalie. Foreldrar
hennar voru hjónin Grímur
Jónsson, f. 1785, d. 1849,
amtmaður og Birgitte Ceci-
lie Breum, f. 1792, d. 1853,
húsfreyja. Eiginmaður Þóru
frá 1859 var Páll Melsteð, f.
1812, d. 1910, alþingismaður
og kennari. Þau eignuðust
ekki börn saman, en Páll átti
börn frá fyrra hjónabandi.
Þóra var vel menntuð, en
hún gekk í skóla í Dan-
mörku, og var henni mjög í
huga að efla menntun
kvenna á Íslandi. Hún barð-
ist fyrir stofnun kvennaskóla
árum saman við misjafnar
undirtektir, en hún hafði
stofnað skóla ásamt Ágústu
systur sinni 1851, sem gekk í
tvö ár, en það var fyrsti
stúlknaskólinn á Íslandi.
Kvennaskólinn í Reykjavík
var loksins settur 1.10. 1874.
Þóra var skólastjóri
Kvennaskólans í 28 ár og tók
í raun aldrei laun fyrir störf
sín því allt gekk það upp í
þann kostnað sem þau hjón-
in höfðu af rekstri skólans.
Fyrstu árin var skólinn hald-
inn í litlu húsi sem þau hjón
áttu við Austurvöll, og var
þá aðeins rúm fyrir 10-11
stúlkur í skólanum. en það
var síðan rifið og byggt nýtt
skólahús á sama stað á
kostnað þeirra hjónanna.
Þóra lést 21. apríl 1919.
Merkir Íslendingar
Þóra Melsteð
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.