Morgunblaðið - 18.12.2021, Page 37

Morgunblaðið - 18.12.2021, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 ✝ Gísli Örvar Höskuldsson bóndi og hestamað- ur var fæddur í Saurbæ í Vill- ingaholtshreppi þann 11. desember 1926. Gísli andaðist á Brákarhlíð í Borgarnesi, þar sem hann dvaldi síðustu mánuðina, þann 12. desember 2021, þá nýorðinn 95 ára. Hann átti fjögur systkini sem öll eru dáin. Elst þeirra var Valgerður, en yngri en Gísli voru þær Svava og Perla. Gísli bjó í Saurbæ þar til hann var 12 ára gamall er hann flutti með foreldrum sínum, þeim Gíslínu Magnúsdóttur og Höskuldi Eyjólfssyni, að Hofs- stöðum í Hálsasveit. Þau bjuggu þar saman fyrstu árin en móðir hans lést árið 1966. Höskuldur faðir hans var heimilisfastur á Hofsstöðum allt til ársins 1994 er hann lést 101 árs. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Kristfríður Björnsdóttir frá Sveinatungu í Norðurárdal, f. 3.6. 1940. Hún fluttist að Hofs- stöðum og þau gengu í hjóna- Höskuld Rúnar. Þá er 4) Lára Kristín Gísladóttir, f. 29.11. 1967. Eiginmaður hennar er Kolbeinn Magnússon og börn þeirra eru Höskuldur, Anna Sólrún og Kristleifur Darri. Yngst barna Gísla og Krist- fríðar er 5) Katrín, f. 17.10. 1975. Eiginmaður hennar er Sigurbjörn Magnússon og eiga þau Kristínu Perlu, Ingu Dóru, Hafdísi Lóu og Gísla. Alls eru barnabarnabörnin orðin 10. Gísli og Kristfríður bjuggu á Hofsstöðum lengst af ævi sinnar en fluttust að Uppsölum í Hálsa- sveit eftir að að Eyjólfur sonur þeirra tók við búi á Hofsstöðum. Perla systir Gísla byggði sér bæ út úr Hofsstöðunum og bjó þar með sína fjölskyldu í nágrenni og góðu samstarfi við bróður sinn. Gísli var og hestamaður af lífi og sál. Hann tók við hrossa- rækt á Hofsstöðum af föður sín- um og föðurbróður og fékkst við tamningar og hrossarækt ásamt konu sinni alla tíð. Gísli var virkur í hestamannafélag- inu Faxa, nú Borgfirðingi, og er heiðursfélagi þar. Hann sat einnig í hreppsnefnd Hálsa- hrepps í mörg ár. Útför hans fer fram frá Reykholtskirkju í dag, 18. des- ember 2021, kl. 14. Útförinni verður streymt á slóðinni www.snorrastofa.is. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat band árið 1962. Fyrir átti Krist- fríður dótturina 1) Guðrúnu Þór- isdóttir, f. 6.2. 1959. Eiginmaður hennar er Gunnar Kristjánsson og dætur þeirra eru Helena Dögg og Birna Sóley. Saman eiga þau Gísli og Kristfríður 2) Gísla Gíslason, f. 23.4. 1963. Fyrri kona hans er Olil Amble og þau eiga saman Freyju Amble, Steinar Amble og Brynju Amble. Þau skildu. Seinni kona Gísla er Mette Manseth. Næstur er 3) Eyjólfur, f. 26.7. 1965. Hann á með Erlu Jónu Guðjóns- dóttur þau Helga og Elínu. Með Áslaugu Guðbrandsdóttur á hann soninn Jakob Arnar. Með fyrri sambýliskonu sinni Guð- rúnu Benný Finnbogadóttur á Eyjólfur þau Finnboga Arnar og Svölu Kristfríði en dóttir Guðrúnar úr fyrra sambandi er Áslaug Katrín Hálfdánardóttir. Eyjólfur og Guðrún skildu. Með seinni konu sinni Johönnu Kar- in Knutson á Eyjólfur þau Val- gerði Karin, Vigdísi Önnu og Nær öld er nú að baki, lengst af á baki. Áður en Gísli varð 10 ára var hann farinn að fara í lengri hestaferðir með Höskuldi föður sínum. Oft var farið með fjölda hrossa að skila úr tamn- ingu og önnur til að selja. Þess- ar ferðir urðu oft langar um sveitir Árnessýslu og suður til Reykjavíkur. Fæst hrossanna, sem lagt var af stað með frá Saurbæ, luku ferð þar, heldur komu heim önnur, sem þá voru ókunn mönnum og stað og því reyndi æði oft á útsjónarsemi rekstrarmanna í ferðunum. Þarna varð háskóli þeirrar hestamennsku, er sonur nam hjá föður af næmi, samstarf hests og manns. Taumhald og ásetu er einkenndust af samhug og hvatningu er ævinlega vöktu löngun hestsins til að auka við lipurð hreyfingar og hraða, en lúta þó stjórn knapans. Að feg- urðin yrði flug á gangi og skepnan sækti í að gera allt bet- ur. Ég minnist af langri samferð okkar Gísla, hversu skoðun hans á atgervi dýrsins var samgróin lífsafstöðu hans. Mikla áherslu lagði hann á við mig að æja ætíð á meðan hesturinn hefði óbil- andi hug á að halda áfram. Ríða aldrei hraðar en svo að hann vildi og gæti aukið við ferð án þess að það yrði á kostnað feg- urðarinnar í hreyfingunni. Og hanga ekki í taumum, heldur leika létt við þá, styðja hestinn og hvetja um leið og honum lærðist jafnframt að hægja við minnstu bendingu. Fyrr væri tamningu ekki lokið. Þetta allt skilja þeir er sáu Gísla ríða þeim Gáska frá Hofsstöðum og Hauki syni hans, sjálfum sér og öðrum til yndis. Þar sem aðrir fóru flugu þeir. Báðir báru þeir tamningu Gísla fagurt vitni. Í Fákum Einars Benedikts- sonar segir: Og knapinn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann ríki og álfur. Þessi orð Einars finnst mér eiga vel við lífsviðhorf Gísla, lífs- löngun hans og gleði, því hann var glaðsinna og góður félagi. Hann var afburða ferðafélagi, hvort heldur var farið ríðandi eða akandi. Við Jónína minn- umst unaðsferða og –stunda með þeim Kristfríði hin síðari ár. Þrátt fyrir þá yfirburði sem Gísli hafði sem hestamaður fór jafnan lítið fyrir honum í marg- menni. Var hljóðlátur og orðvar. Svo var einnig ef spurst var fyr- ir um árangur unghrossa í tamningu hjá þeim Hofsstaða- feðgum. Ég lærði þó með tím- anum að lesa í það sem sagt var og hvernig það var sagt eða jafnvel það sem var ósagt. Gísli var þó í hógværð sinni langt frá því að vera skoðanalaus. Frekar að hann væri fastur fyrir, þótt hann tæki rökum ef svo bar undir. Aldrei man ég hann leggja illt orð til nokkurs manns þótt eigi væru skoðanabræður. Heiðarleika hans var við brugð- ið í öllum samskiptum. En nú skaflajárnar minn kæri vinur ekki oftar, og hvort hann leggur á Gáska eða Hauk, er hann heldur um Gjallarbrú, eða ríður öðrum og teymir hinn, þá veit ég að honum mun vel farnast ferð og heimkoma til föðurhúsa í nýjum heimi. Að lokum langar mig að minna á það þakklátum huga, að maður er manns gaman. Hver veit hvort hinsta kvöld vort er nær eða fjær lofum því líðandi stund hvern ljúflingsfund vinur kær. (Guðl. Ósk.) Blessi Guð fólkið þitt kæri vinur og styrki í harmi sínum. Guðlaugur Óskarsson, Reykholti. Gísli Örvar Höskuldsson ✝ Jóhann Ísleifs- son fæddist í Reykjavík 12. mars 1947. Hann lést á Landakotsspítala 27. nóvember 2021. Foreldrar hans voru hjónin (slitu samvistir) Ísleifur Annas Pálsson framkvæmdastjóri, f. 27. febrúar 1922, d. 14. desember 1996, og Ágústa Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 10. desember 1922, d. 31. mars 2013. Foreldrar Ís- leifs voru Páll Oddgeirsson, kaupmaður og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, f. 5. júní 1888, d. 24. júní 1971, og k.h. Matthildur Ísleifsdóttir hús- flugstjóri, kvæntur Guðrúnu Þóru Magnúsdóttur fv. banka- starfsmanni, f. 13. janúar 1956, og eru synir þeirra Ólafur Örn, listamaður og galleristi í Berlín, f. 13. júlí 1976, og Magnús Gísli atvinnubílstjóri, f. 10. desember 1980, d. 6. ágúst 2020. Jóhann ólst upp í Vesturbæn- um í Reykjavík, framan af á Hagamel 23, síðar á Kvisthaga 4 og hlaut hefðbundna skóla- göngu. Jóhann lagði stund á bankastörf í Kaupmannahöfn og Reykjavík og var deildar- stjóri víxladeildar Iðnaðar- banka Íslands. Eftir það hafði hann ýmis störf með höndum. Jóhann var ókvæntur og barnlaus. Heimili hans síðustu áratugi var í Þórufelli 11, Reykjavík. Útför Jóhanns hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. freyja, f. 7. maí 1900, d. 29. ágúst 1945. Foreldrar Ágústu voru Jó- hann Þ. Jósefsson, alþingismaður og ráðherra, f. 17. júní 1886, d. 15. maí 1961, og k.h. Magn- ea Dagmar Þórð- ardóttir húsfreyja, f. 10. október 1901, d. 2. júlí 1990. Bræður Jóhanns eru dr. Ólaf- ur Ísleifsson hagfræðingur og fv. alþingismaður, f. 10. febrúar 1955, áður kvæntur Dögg Páls- dóttur hrl., sonur þeirra er Páll Ágúst lögmaður, f. 26. febrúar 1983, kvæntur sr. Karen Lind Ólafsdóttur, og Örn Ísleifsson Átta ár eru mikill aldurs- munur milli systkina. Þannig stóð á hjá okkur bræðrum. Við Örn bróðir fengum þó stöku sinnum að taka þátt í ævintýr- um Jóhanns og vinar hans Óla Kristjáns Sigurðssonar, síðar kaupsýslumanns. Eitt var að selja flugelda í Hafnarstræti, annað var að sviptast á vöru- bílspalli einhverra erinda. Ég kannski kynntist Jóhanni fyrst kominn á unglingsár þeg- ar við unnum saman í Bæj- arútgerð Reykjavíkur sumarið 1973, hann á milli starfa og ég á leið í 5. bekk í MR. Starfið fólst í að vinna á skreiðar- pressu, við stöfluðum inn skreiðinni og hún þjappaði skreiðarbagga sem við brugð- um um járnvír og hertum að. Okkur líkaði vel að vinna í fiski og vorum samhentir. Um tíma unnum við í sænska frystihús- inu við Arnarhól. Óvarinn snig- ill í gólfi ísklefans hefði getað búið mönnum bráðan háska. Okkur var um megn að ræða þessa hættu síðar á lífsleiðinni. Seinna kynntist ég Jóhanni betur. Hann hafði frá mörgu að segja, siglingum með Gullfossi, og ferðalögum til útlanda. Ungur var hann í fiskvinnslu hjá Alliance austast á Ægisíðu þar sem stóð þyrping húsa sem nú eru öll horfin. Ebbi verk- stjóri var honum ofarlega í huga. Hann lagði honum lífs- reglurnar. Þá átti Jóhann góð- ar minningar úr Vatnaskógi þar sem hann var mörg sumur, lengst af sem borðforingi. Hugur Jóhanns var alla tíð bundinn sjónum. Hann kunni góð deili á mörgum skipum í ís- lenska flotanum. Hugur hans ungs beindist að Stýrimanna- skólanum og sjómennsku. Af því varð ekki. Jóhann fór til Kaupmannahafnar og lagði þar stund á bankastörf um árabil. Eftir að heim kom aftur vann hann sig upp innan bankakerf- isins og varð deildarstjóri víxladeildar Iðnaðarbankans. Þar átti hann gott samstarfs- fólk og naut trausts viðskipta- manna. Frá þessum árum minntist Jóhann oft lofsamlega Péturs Sæmundsens banka- stjóra. Jóhann hafði leitandi huga og jók við þekkingu sína ævi- langt með lestri og viðræðum. Skörp sýn hans á málefni líð- andi stundar var mér ætíð gagnleg og mikilvæg. Jóhann var víðsýnn, umburðarlyndur og fordómalaus, orðvar og sanngjarn í ummælum um menn og málefni. Jóhann var glæsilegur að vallarsýn, hávaxinn og grann- ur, einhleypur og barnlaus. Meðan foreldra okkar naut við lagði hann sig fram um að vera þeim innan handar og til stuðn- ings. Um afa Jóhann, sem hann mundi vel eftir, sagði hann: Hann haggaðist ekki, sama hvað á gekk, og lýsti með þeim orðum skaphöfn hans. Jóhann var vinmargur enda viðræðugóður, víðlesinn, vel máli farinn og glettinn í orðum án minnstu kerskni. Af því að Jóhann var fæddur sama mán- aðardag og Þórbergur Þórðar- son er ekki úr vegi að vitna til meistarans sem sagði grunntón tilverunnar vera meinlaust grín. Þau orð voru Jóhanni kannski ekki fjarri. Síðustu árin urðu Jóhanni erfið vegna vaxandi heilsu- brests. Tvær konur tóku sig fram um að gera honum lífið auðveldara, þær Amel Joy Sig- urjónsson og Svandís Birki- sdóttir. Færi ég þeim alúðar- þakkir sem og starfsfólki Landakotsspítala þar sem Jó- hann dvaldist lengi síðustu misserin. Að leiðarlokum bið ég Guð að varðveita og blessa Jóhann bróður minn. Ólafur Ísleifsson. Jóhann Ísleifsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, ÞRÁINN ÞÓR ÞÓRARINSSON, Ásvöllum 12, Akranesi, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 14 desember. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 23. desember klukkan 11. Kirkjugestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Berglind Guðmundsdóttir Kolbrún Hrund Þráinsdóttir Jökull Harðarson Þórdís Þöll Þráinsdóttir Árni Snær Ólafsson Særós Ýr Þráinsdóttir Ísak Orri, Aron Örn, Katrín Efemía, Hilmir Hrafn, Emil Snær Emilía Hulda Óskarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIBJÖRG AÐALHEIÐUR GESTSDÓTTIR, Hverfisgötu 121, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Laugarási, föstudaginn 10. desember. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 22. desember klukkan 13. Gestir eru beðnir um að framvísa neikvæðu gildu Covid-prófi. Athöfninni verður streymt á slóð Seljakirkju, https://www.seljakirkja.is/. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Sigríður Gestrún Halldórsdóttir Gestur Halldórsson Marta Lunddal Friðriksdóttir Magnús Halldórsson María Hlinadóttir ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR STEFÁNSSON hljóðfærasmíðameistari, lést laugardaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 21. desember klukkan 13. Gestir eru beðnir um að framvísa neikvæðu Covid-prófi sem er ekki eldra en 48 klst. Athöfninni verður streymt og hlekk á streymið verður hægt að nálgast á www.mbl.is/andlat. Sigríður Guðmundsdóttir Ragnar Daníel Guðmundsson Björn Eysteinsson Guðbjörg Birna Guðmundsd. Örn Eysteinsson Margrét Sverrisdóttir og barnabörn Elsku besti eiginmaður minn, pabbi okkar, tengdapabbi og afi, JÓHANN GUNNAR JÓHANNESSON, Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar 14. desember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 21. desember klukkan 14. Gestir eru hjartanlega velkomnir en eru beðnir að framvísa gildu neikvæðu Covid-prófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt. Sóley Guðrún Sveinsdóttir Jóhannes R. Jóhannsson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Sveinn Líndal Jóhannsson Þórhildur Rún Guðjónsdóttir Alda Hrönn Jóhannsdóttir Gestur K. Pálmason Bára Hildur Jóhannsdóttir Arnar Ægisson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.