Morgunblaðið - 18.12.2021, Page 40

Morgunblaðið - 18.12.2021, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 ✝ Gunnar Valdi- marsson fædd- ist í Vatnsfjarðar- seli í Reykjafjarð- arhreppi 22. nóv- ember 1923. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Eyri á Ísafirði 11. desem- ber 2021. Foreldrar hans voru Björg Þórð- ardóttir frá Kald- rananesi í Strandasýslu f. 28.6. 1890, og Sigurgeir Valdimar Steinsson frá Hálshúsum í Vatnsfjarðarsveit, f. 6.8. 1878. Gunnar var næstyngstur fjög- urra systkina. Þau eru Hrólfur, f. 1917, Hans Aðalsteinn, f. 1918, og Ingibjörg Steinunn, f. 1928, sem lifir bræður sína. Gunnar kvæntist 29. október 1960 Þorgerði Kristínu Her- mannsdóttur frá Miðvík í Aðal- vík, f. 3. apríl 1934, d. 7. október er Halldór Viðar. Þorgerður átti dóttur fyrir, Herdísi Halldórs- dóttur, f. 30.12. 1953. Börn Her- dísar eru Ragnar Jón, Ólöf Mjöll og Halldór Kristinn. Gunnar ólst upp í Vatnsfjarð- arseli hjá foreldrum og systk- inum. Árið 1945 taka þeir bræð- ur, Gunnar og Hrólfur, við búinu af foreldrum sínum. Árið 1949 fluttu þeir ásamt for- eldrum og systur í Hörgshlíð í sömu sveit og bjuggu þar til árs- ins 1952. Þá hófu þeir búskap í Heydal og bjuggu þar til ársins 1987. Eiginkona Gunnars, Þor- gerður, flutti í Heydal 1960. Gunnar gekk í Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaðan búfræðinámi. Hann var iðinn við að sinna félagsstörfum í sveit- inni, sat í hreppsnefnd, var í ungmennafélagi og skólanefnd. Eftir að Gunnar og Þorgerð- ur fluttu á Ísafjörð vann hann ýmis störf, m.a. við fiskvinnslu, loðdýrarækt, í grunnskóla og fé- lagsmiðstöð. Útför Gunnars fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 18. des- ember 2021, klukkan 11. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat 2015. Foreldrar hennar voru Her- mann Árnason og Sigurlaug Herdís Friðriksdóttir. Börn þeirra eru: 1) Hermann Sig- urlaugur, f. 23.1. 1961, kvæntur Þor- gerði Helgu Krist- jánsdóttur. Synir þeirra eru Haukur Árni og Rúnar Jón. 2) Valdimar Sigurður, f. 23.1. 1961, kvæntur Lindu Kristínu Gunnarsdóttur, sonur Kristínar er Þorkell. 3) Bergsteinn, f. 2.3. 1964, kvæntur Kristínu Ósk Jón- asdóttur. Börn Bergsteins eru Særún Lind og Helgi Snær, son- ur Kristínar er Hannes Hólm. 4) Gunnar Þorgeir, f. 6.11. 1967, kvæntur Hrund Hjaltested. Dóttir þeirra er Sóldís Inga, börn Gunnars eru Alma Dögg og Sturla Páll, sonur Hrundar Það var enginn asi á andláti Gunnars Valdimarssonar og það kannski lýsir honum sjálfum mjög vel. Rólegur, nærgætinn og ekki síst vandaður maður. Þá gat hann líka verið glettinn og stríð- inn. Hann sá oftar en ekki spaugilegu hliðina á málunum. Ég minnist þess ekki að hann hafi talað illa um nokkurn mann, það var bara ekki hans stíll. Þau voru fjögur systkinin frá Vatnsfjarðarseli við Ísafjarðar- djúp, þrír bræður og ein systir. Fæddust og ólust upp við ótrú- legar aðstæður; lítið bú uppi á fjalli sem hafði engin nútíma- þægindi. Systirin Ingibjörg er núna ein eftir, býr á Hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði, búin að horfa á eftir bræðrunum þremur. Síðustu ár hafa verið Gunnari erfið, sérstaklega eftir að Dedda lést. Hann var orðinn 98 ára og löngu tilbúinn í förina, taldi sig hafa lokið sínu hlutverki hér sáttur. Honum var annt um fólk- ið sitt og sveitunga og var alltaf tilbúinn að hjálpa til, hvar sem var, á meðan hann gat. Ég vil þakka honum fyrir elsku hans síðastliðin 40 ár, elsku hans gagnvart fjölskyldunni. Velkominn heim í sveitina þína Gunnar. Ég býst við að núna sértu á hestbaki með hund þér við hlið að smala ánum heim. Fyrir hönd fjölskyldunnar þakka ég starfsfólkinu á Hjúkr- unarheimilinu Eyri fyrir ein- staka umönnun og alúð síðastlið- in ár. Þorgerður Kristjánsdóttir. Sorgin og gleðin eru systur. Enda þótt okkar kæri föðurbróðir hafi verið orðinn saddur lífdaga og við samgleðjumst honum að hafa fengið kærkomna hvíld, söknum við hans og syrgjum hann. Gunnar fæddist og ólst upp í Vatnsfjarð- arseli, afskekktu fjallabýli, við kröpp kjör. Með elju og útsjónar- semi tókst foreldrunum samt að hafa öll börnin sín hjá sér. Ekki var alltaf mikið til að skammta í Seli, en erfiðast hefur þó verið, þegar engin mjólk var til, en þá var Gunnar á fyrsta ári. Kýrin bar á útmánuðum, en reynt var að treina sauðamjólkina sem lengst og var ærin Móða mjólkuð fram á jólaföstu. Það var oft til bjargar í litla bænum að hægt var að ná í silung í Selvötnin og fjallagrösin voru kraftafæða. Eftir að börnin komust á legg varð þó heldur létt- ara fyrir fæti, enda voru bræðurn- ir fljótt eftirsóttir í vinnu utan heimilis. Það er erfitt fyrir okkur, sem búum við ört vaxandi tækni, að gera okkur í hugarlund aðstæð- ur og verklag það er viðgekkst í landinu fram yfir miðja tuttugustu öldina, allt miðaðist við handafl og hestöfl. Útsjónarsemi og hand- lagni kom sér vel og af því var til nóg í Selinu. Það var svo haustið 1947 að Gunnar fór í búnaðarskól- ann á Hvanneyri. Á Hvanneyri var gott að vera og þar voru bund- in vináttubönd, er entust ævina út. Ljúfar eru minningar úr æsku, þegar ekki var mikið um manna- ferðir og gestakomur, þá voru það eins og hátíðisdagar, þegar Gunn- ar kom í heimsókn. Gunnar átti oft erindi út á sveit, þar sem hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum, bæði fyrir sveitarfélagið, búnaðar- félagið og Ungmennafélagið Vísi. Alltaf gaf hann sér tíma til að koma við hjá Hanna bróður sínum í Miðhúsum. Gunnar hafði m.a. með höndum hundahreinsun, sem þá fór fram öðruvísi en í dag. Að- gerðin tók á þriðja dægur og voru hundarnir beinlínis baðaðir. Eitt haustið, sem oftar, kom Gunnar út á sveit, þessara erinda. Björg og Ása fengu þá að fara niður í Vatnsfjörð með pabba, þegar at- höfnin átti sér stað. Gunnar kall- aði þær hundadoktora og gaf þeim aura fyrir embættið. Ekki var laust við að Þóra fyndi til öfundar, en það stóð ekki lengi, einhvern tímann yrði hún kannski hunda- doktor. Eftir að við vorum orðnar full- orðnar og búsettar hér úti í pláss- um, nutum við þess að fá góða gesti, þegar þau Heydalshjón komu í kaupstað. Eftir að þau brugðu búi og settust að á Ísafirði, kíktu þau oft í kaffi til okkar, enda var Dedda einstaklega félagslynd og þurfti á upplyftingu að halda í sínu veikindastríði, en hún fékk helftarlömun 1968 og þá kom fyrir alvöru í ljós, hve vel hún var gift. Þegar Gunnar og Dedda voru flutt á Hlíf, íbúðir fyrir aldraða á Ísa- firði, fann pabbi okkar það glöggt, sem þar bjó einnig, að hann átti traustan bróður, umhyggjan og tillitsemin var einstök. Deyr fé, deyja frændur deyr sjálfur ið sama en orðstír deyr aldregi hveim sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Gunnar frændi gat sér góðan orðstír. Guð blessi minningu þessa dánumanns. Systurnar frá Miðhúsum. Meira á www.mbl.is/andlat Þóra Hansdóttir. Ég var ekki gamall þegar ég kynntist Gunnari. Ég naut þeirrar gæfu að hafa verið sendur ungur í sveit til hans og Deddu í Heydal og var þar í fimm eða sex sumur frá því snemma á vorin og fram á haust. Það var ómetanleg reynsla að taka á móti lömbum á vorin, slá með ljá og heyja á engjum og skrölta með Gunnari á rússajepp- anum út að Eyri og róa út í Djúp- bátinn með mjólkurbrúsa og fá strigapoka með fisk til baka. Þorgerður konan hans, alltaf kölluð Dedda, sem var ein af ellefu systkinum móður minnar, veiktist alvarlega á þessum árum og var Gunnar ætíð stoð hennar og stytta hvort sem var heima við eða í erf- iðri sjúkrahúslegu fyrir sunnan. Í minningunni var oft unnið langa daga í heyskap og rollustússi und- ir stjórn Gunnars sem vann mest og lengst allra. Oftast gekk allt vel og fannst manni alltaf sjálfsagt að gera allt sem Gunnar bað um. Hann var þolinmóður og góður leiðbeinandi sem útskýrði hlutina en skammaði okkur krakkana sjaldan og ef hann gerði það þá hafði maður unnið fyrir því. Hann þurfti þó oft að reka okkur Díu af stað eftir matinn því við gleymd- um okkur iðulega við að spila rauðskegg og rússa. Í Heydal bjó næstum öll stórfjölskylda Gunn- ars, mamma hans, stóri bróður og litla systir ásamt Deddu og fjórum sonum þeirra og stjúpdóttur, Díu. Heimilislífið var Gunnari vafa- laust oft erfitt og flókið, en honum tókst með lagni og miklu jafnaðar- geði að samhæfa og halda frið á þessu stóra heimili. Ég man eftir Gunnari einu sinni reglulega reiðum, en það var í réttum. Óli, sem er einn af yngri bræðrum mömmu, var þá rúm- lega tvítugur og mikill grallari, kom haustið sem ég var tólf ára til að hjálpa til við að smala. Allt gekk vel og um kvöldið þegar unga fólkið fór að skemmta sér fékk ég að hanga með þeim og færðist fjörið yfir á næsta bæ í sveitinni, Hörgshlíð. Óli vildi endi- lega kenna þessum unga frænda sínum að drekka brennivín undir því yfirskini að vín yrði ekki vesen fyrir hann í framtíðinni. Þegar komið var til baka í Heydal var neminn út úr heiminum af nokkr- um sopum og Gunnar brjálaður af reiði. Hann húðskammaði Óla fyr- ir að fara svona illa með krakkann svo Óli var sem lúbarinn hundur í nokkra daga á eftir. Hann minnti á Kát, hinn frábæra hund Gunn- ars sem oft þurfti að loka inni þeg- ar verið var að smala. En þökk sé Óla og Gunnari þá var þetta góð lexía og hef ég ekki átt í neinum verulegum vandræðum með vín síðan. Allar mínar minningar um Gunnar eru ljúfar og minnist ég hans með hlýju. Votta öllum aðstandendum mína innilegustu samúð. Guðbergur Davíð (Bubbi). Gunnar Valdimarsson, oftast kenndur við Heydal í Ísafjarðar- djúpi, er látinn. Hann var mágur minn, kvæntur næstelstu systur minni, Þorgerði Hermannsdótt- ur. Þeirra kynni hófust um 1956, þau giftu sig um þetta leyti og byrja búskap í Heydal ásamt móður og systkinum, Ingu og Hrólfi. Í dalnum var dvalið til margra ára. Systir mín veiktist alvarlega árið 1967, hún varð að fara í aðgerð á höfði og verður sjúklingur upp frá því hún lést 2015. Við þessar aðstæður tel ég að mannkostir Gunnars hafi komið berlega í ljós. Hann var ljúfur, hjálpsamur og góður við konu sína og börn. Inga og Hrólf- ur aðstoðuðu bróður sinn hvað þau gátu. Af þessum orðum mínum má sjá að Gunnar var ljúfmenni og drengur góður. Allir sem þekktu Gunnar vita að hann var góður maður og mátti ekkert aumt sjá, þannig að hann vildi ekki gera það betra. Þau flytja til Ísafjarðar og búa þar alla tíð eftir það, fyrst að Sundstræti 32 og síðar á Hlíf. Gunnar vann um tíma hjá frænda sínum Halldóri Hermannssyni og var vel látinn á vinnustað. Hann fór á Eyri þegar hann var kominn á tíræðisaldur. Oft kom ég til Gunnars og systur minnar á leiðum mínum vestur, gisti og fékk margar fyr- irgreiðslur. Fyrir góðmennsku Gunnars og fjölskyldu færi ég þeim þakk- læti á langri leið. Samúðarkveðj- ur færi ég ykkur frá mér og börn- um mínum. Friðrik Hermannsson. Gunnar ValdimarssonFaðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR GARÐARSSON hljómlistarmaður, lést þriðjudaginn 7. desember. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. desember klukkan 15. Garðar Sverrisson Kristín Þórarinsdóttir Ásdís Sverrisdóttir Sverrir Garðarsson Þorgerður Guðrún Garðarsd. Gerður Anna Lúðvíksdóttir Birgir Lúðvíksson Helga Hjördís Lúðvíksdóttir og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, INGA H. ÁGÚSTSDÓTTIR, snyrti- og fótaaðgerðafræðingur, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 20. desember klukkan 13. Allir eru velkomnir í kirkjuna en vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna neikvætt hraðpróf við innganginn sem er ekki eldra en 48 klst. Hraðpróf er pantað fyrir fram á covidtest.is eða testcovid.is. Athöfninni verður streymt á slóðinni: http://www.hljodx.is/index.php/streymi. Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat Ágúst Guðmundsson Þuríður Reynisdóttir Lýður Guðmundsson Sigrún Guðmundsdóttir Kristján Kristjánsson Lovísa Ágústsdóttir Ágústa, Tómas, Alexander og María Þökkum innilega fyrir kveðjur, símtöl, vinarhug og aðstoð vegna andláts og útfarar mömmu og tengdamömmu, INGIBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR, Ingu á Grund. Bestu þakkir til starfsfólks og vistmanna á deild II á HSN Sauðárkróki fyrir aðhlynninguna og vináttuna við mömmu. Ása Gísladóttir Þórarinn Illugason Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar elskaða föður, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS SIGURJÓNSSONAR sjómanns, Norðurgötu 40, Akureyri, sem lést 19. nóvember. Guð geymi ykkur. Kristján Viktor Kristjánsson Laufey Ingadóttir Jóhanna María Friðriksdóttir Gunnar Vigfússon Heiðbjört Ída Friðriksdóttir Jón Sigtryggsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG HAFBERG, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést föstudaginn 10. desember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 21. desember klukkan 12. Allir velkomnir en kirkjugestir eru beðnir um að framvísa neikvæðu Covid-hraðprófi sem ekki er eldra en tveggja sólarhringa gamalt. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, akraneskirkja.is. Anna D. Tryggvad. Tausen Gísli Björnsson Vilborg Á. Tryggvad. Tausen Ásbjörn Jensson Marteinn Tryggvas. Tausen Vignir Ljósálfur Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR kennari, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 15. desember. Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 22. desember klukkan 11. Gestir eru velkomnir og beðnir að framvísa neikvæðu Covid-hraðprófi sem er ekki eldra en tveggja sólarhringa gamalt. Einar Ólafsson Ólafur Einarsson Margrét Blöndal Kristján Einarsson Helga Jóhanna Bjarnadóttir Sigurður Einarsson Sigrún Ragna Helgadóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, JÓNA SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, fædd á Horni í Mosdal, Arnarfirði, áður til heimilis að Vesturbergi 10 í Reykjavík, lést á dvalarheimilinu Eir þriðjudaginn 14. desember. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 14. janúar kl. 13. Öllu starfsfólki deildar 2. hæðar suður A á Eir sendum við ástarþakkir fyrir einstaklega hlýja og góða umönnun. Alda Björk Marinósdóttir Trausti Hauksson Guðmundur Marinósson Guðbjörg Anna Magnúsdóttir Finnbogi Sigurður Marinóss. Kerstin Haug Marinósson Guðrún Björk Marinósdóttir Vigfús Eiríksson barnabörn, barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.