Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 48

Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 48
48 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu mánudaginn 3. janúar 2022 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir klukkan 12 fimmtudaginn 23. desember SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám. –– Meira fyrir lesendur 50 ÁRA Andie er frá Baltimore í Bandaríkjunum en fluttist til Ís- lands árið 1999 og býr í Reykjavík. Hún er blaðakona og fréttastjóri hjá Reykjavik Grapevine. Hún er gjaldkeri Trans Iceland. „Áhuga- mál mín eru fjölskyldan, blaða- mennska, tónlist og stjórnmál á Ís- landi,“ en Andie var varaþingmaður fyrir Vinstri græna 2007-2008. Hún er fyrsti innflytjandinn sem settist á Alþingi. FJÖLSKYLDA Andie er gift Ödu Christine Fontaine, f. 1987, tölv- unarfræðingi og sjálfstætt starfandi forritara. Dóttir Andie er Julya, f. 2006. Móðir Andie lést árið 1985 en faðir hennar býr í Bandaríkjunum. Andie Sophia Fontaine Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þetta er góður dagur til að ræða við foreldra þína og yfirboðara. Notaðu tækifærið til að ráðast í verkefni sem þú hefur lengi slegið á frest. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú mátt gleðjast yfir þeim hæfileika þínum að eiga auðvelt með að fá aðra á þitt band. Gefðu þér tíma til að sinna þér og þínum nánustu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú þarft að læra að takmarka umsvif þín, þannig að þú hafir yfirsýn yfir það, sem þú ert að gera. Leggðu þig fram um að sjá málin í víðara samhengi. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Skynsöm viðbrögð við því sem ger- ist í dag gætu huggað fólkið í kringum þig. Þú færð stuðning úr óvæntri átt sem skipt- ir sköpum fyrir þig. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur tíma til að gera akkúrat það sem þú vilt, en bara með því að sleppa ein- hverju sem einhver annar vill. Gefðu þér góðan tíma til að sinna öllum verkum. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þér finnst þú kominn í erfiðar skuld- bindingar gagnvart vini þínum. Hafðu bara hægt um þig þar til öldurnar lægir og ræddu þá málin. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þig langar til að brjótast út úr viðjum vanans. Að treysta einhverjum sem þú þekkir varla, er hluti af ævintýri dagsins. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Sláið öllum þýðingarmiklum samningaviðræðum á frest því þetta er ekki rétti dagurinn til þess að standa í ströngu. Ekki ætla þér um of því þá eru meiri líkur á að þú gefist upp. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Hafðu varann á og gættu þess að persónulegar upplýsingar um þig kom- ist ekki á allra vitorð í dag. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þegar þú talar við aðra skaltu ganga úr skugga um að þeir skilji þig. Láttu það ekki hafa áhrif á þig þótt öfundarmenn þínir séu með útúrsnúninga. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Einhver aðili kemur inn í líf þitt og honum fylgja ýmsir spennandi mögu- leikar. Byrjaðu að velta því fyrir þér af al- vöru hvað er þér mikilvægt í lífinu. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þér kann að ganga erfiðlega að ná eyrum þeirra sem þú helst vilt kynna hug- myndir þínar. Mundu að þú ert alveg maður fyrir þinn hatt. minn og -amma keyptu 1930 sem pabbi minn ólst upp í og er í Litla- Skerjafirði. Á undan mér bjó bróðir svo mikið að gera hjá öllum. Ég bý í yndislegu nýuppgerðu gömlu húsi frá 1928 sem föðurafi Á srún Vilbergsdóttir er fædd 18. desember 1961 í sjúkrabílnum á leiðinni á Landspítann. „Mér lá svo mikið á, en ég átti að fæðast 1962.“ Hún ólst upp í Kópavogi til sautján ára ald- urs, en fjölskyldan flutti í Fossvog- inn 1979. „Fjölskyldan mín dvaldi oft á Álftárbakka á Mýrum þar sem foreldrar mínir áttu lítið veiðihús við Álftá og pabbi leigði hluta af ánni fyrir laxveiðar. Þar var oft mjög gaman, margt um manninn og ég á margar góðar minningar þaðan.“ Ásrún gekk í Kópavogsskóla og svo í Víghólaskóla. Hún varð stúd- ent frá Ármúlaskóla. „Ég fór sem skiptinemi í eitt ár til Svíþjóðar árið 1981. Ég var á lýðháskóla og bjó líka með yndislegri sænskri fjöl- skyldu, þetta var afskaplega lær- dómsríkt og skemmtilegt ár. Ég fór í þvílíka ævintýraferð með finnsku skiptinemasamtökunum til Péturs- borgar og Moskvu.“ Ásrún útskrif- aðist sem leikskólakennari, eða fóstra eins og það hét þá, frá Fóst- urskóla Íslands 1992. Strax eftir útskrift frá Fóstur- skólanum hóf Ásrún störf hjá Hjallastefnunni. Hún varð leik- skólastýra 2016, en hafði áður sinnt þeirri stöðu í afleysingum. „Ég held að ég sé fædd undir einhverri heilla- stjörnu því ég er alltaf eitthvað svo heppin. Ég vinn skemmtilegustu vinnu í heimi, með börnum og frá- bæru samstarfsfólki hjá Hjallastefn- unni og fagna ég 30 ára starfs- afmæli hjá Hjallastefnunni næsta vor. Svona týnist tíminn. Hug- myndafræði Hjallastefnunnar er svo mikil snilld og hefur gert svo mikið fyrir mig. Svo er ég líka svo heppin að ég á svona hliðarfjölskyldu sem er fjöl- skylda bestu æskuvinkonu minnar sem heitir Þórhalla Guðmunds- dóttir. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Ágúst Kristjánsson og Ás- dís Sveinsdóttir. Þau eru bæði búin að kveðja þennan heim, einstaklega hæfileikaríkt og gott fólk. Við systkinin erum mjög sam- heldin og í góðu sambandi þó svo við mættum kannski hittast oftar, alltaf pabba í húsinu í 80 ár, Kristinn Sig- urjónsson hæstaréttarlögmaður (f. 4.5. 1933, d. 30.5. 2013). Ég og Kiddi Ásrún Vilbergsdóttir leikskólastýra – 60 ára Systur Hestakonurnar Anna og Ásrún staddar við Elliðavatn. Með þeim eru hestarnir Dynjandi og Reykur. Fædd undir heillastjörnu Frændsystkin Ásrún og Kristinn. Leikskólastýran Ásrún.Æskuvinkonur Þórhalla og Ásrún. Til hamingju með daginn Hafnarfjörður Aron Breki Atlason fædd- ist 7 janúar 2021 í Reykjavík. Hann vó 4.050 g og var 52 cm að lengd. Foreldrar Arons eru Atli Már Erlingsson og Sæunn Björk Þorkelsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.