Morgunblaðið - 18.12.2021, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 18.12.2021, Qupperneq 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 S ögur Astridar Lindgren um Emil og fjölskyldu hans á bænum Kattholti í Hlynsskógum sænsku Smálandanna í kringum aldamótin 1900 hafa glatt les- endur í áratugi. Það er ekki að ástæðulausu, enda hafði Lindgren einstakt lag á að skrifa um og fyrir börn af djúpu innsæi og gæsku þar sem húmorinn var samt aldrei langt undan. Þótt Lindgren kynni Emil til sögunnar sem óþekktarorm sem fremji skammarstrik sem vekja ósjaldan hneykslan sveitunganna verður öllum sem kynnast honum (hvort heldur er í bókunum, í sjónvarpinu eða á leiksviðinu) samt ljóst að hann er góð manneskja sem gerir aldrei neitt af illum hug og er, þegar til kastanna kem- ur, ótrúlega ráðsnjall, hugmyndaríkur og hald- inn ólgandi athafnaþrá. Sökum ungs aldurs sér hann ekki alltaf fyrir afleiðingar gjörða sinna eða áttar sig á því hvað gæti verið hættulegt í athöfnum hans. Raunar má segja að grand- varaleysið gagnist honum þegar hann bjargar lífi besta vinar síns þegar enginn annar á bæn- um þorir að brjóta sér leið til læknisins í Maríönnulundi gegnum brjálað vetrarveðrið. Í sögunni um fánastöngina er markmið Emils aðeins og gleðja Ídu litlu systur með því að gefa henni færi á að horfa yfir sveitina; í sög- unni um músagildruna er hann aðeins að reyna að hjálpa Línu vinnukonu en sér ekki fyrir að gildran muni í reynd fanga stórutá föður hans, ekkert frekar en hann sér fyrir að ógætilegt sé að reka skál með blóðbúðingi út um gluggann til að sýna föðurnum innihaldið. Þar sem Emil hefur augljóslega hjartað á réttum stað er auð- veldlega hægt að taka undir orð Ölmu, móður hans, þegar hún í sögunum segir: „Okkur þykir vænt um hann eins og hann er.“ Þessi væntum- þykja er yfir og allt um kring í fallegri upp- færslu Borgarleikhússins á skemmtilegum uppátækjum Emils. Sýningin er umfangsmesta leikstjórnarverkefni Þórunnar Örnu Kristjáns- dóttur til þessa og sýnir að hún á fullt erindi í það starf. Greinilegt er að nostrað hefur við persónusköpun í litríku persónugalleríi verks- ins, fjölmennar senur iða af lífi og sýningin í heild er með risastórt hjarta. Leikgerð Johans Gille, sem Þórunn Arna og Maríanna Clara Lúthersdóttir hafa yfirfarið, býður upp á vel valdar sögur af Emil og sam- ferðarfólki hans líkt og perlur á festi. Þýðing Þórarins Eldjárns á hvort heldur sem er töluðu máli eða söngtextum er hreint afbragð. Falleg leikmynd Evu Signýjar Berger býður upp á einfaldar og snjallar lausnir til að breyta um árstíðir og færa framvinduna milli staða. Í sam- spili við góða búninga Maríu Th. Ólafsdóttur, sem kallast vel á við teikningar Björns Berg, tekst að skapa nostalgískan heim Smálandanna sem gleður augað. Tónlist Georgs Riedel og Fredriks Åkerblom nýtur sín vel í útsetningu Agnars Márs Magnússonar sem jafnframt stýrir flottri hljómsveit af öryggi. Sviðshreyf- ingar Lee Proud setja stóran svip á sýninguna þar sem tilfinningum og framvindu er miðlað með skýrri líkamstjáningu og gaman var að sjá áhrif sænskra þjóðdansa á hópsenurnar sem skapar rétta aldarmótablæinn. Leikhópurinn nýtur sín vel í því stóra gang- virki sem sýningin er. Í foreldrahlutverkum sínum eru Esther Talía Casey og Þorsteinn Bachmann hjartahlý sem Alma og Anton. Þó Emil sé reglulega sendur út í smíðakofann fyrir uppátæki sín virðist strangleikinn fyrst og fremst í nösunum á Antoni, því fullorðna fólkið í Kattholti kippir sér til dæmis lítið upp við dans- andi börn uppi á borðum. Sigurður Þór Óskars- son og Ásthildur Úa Sigurðardóttir draga upp sannfærandi mynd af vinnufólkinu Alfreð og Línu, sem dreymir bæði um hvíld frá eilífu streði og ástríkara líf, þótt óljóst sé hvort þeim takist að finna hamingjuna saman. Sigrún Edda Björnsdóttir fór vel með hlutverk hinnar sérlunduðu Týtuberja-Mæju sem náði hápunkti í frásögn hennar af varúlfum, en ekki spillti fyr- ir að heyra á meðan óminn af úlfastefi Proko- fíevs. Jóhann Sigurðarson var góður læknir og Sólveig Arnarsdóttir hæfilega hræðileg og smeðjuleg í hlutverki ráðskunnar á fátækra- heimilinu. Stjörnur sýningarinnar voru þó Gunnar Erik Snorrason og Þórunn Obba Gunn- arsdóttir sem fóru með hlutverk Emils og Ídu á sýningunni sem undirrituð sá, en hlutverkin leika einnig Hlynur Atli Harðarson og Sóley Rún Arnarsdóttir. Hér eru greinilega miklir hæfileikakrakkar á ferð sem leika af góðri inn- lifun, syngja eins og englar og dansa af krafti. Hjartnæmasta augnablikið í sýningunni var þegar Emil spurði ráðþrota í miðjum snjóbyl, á leið sinni til læknisins með Alfreð rænulausan á hestasleðanum, hvort einhver gæti hjálpað þeim og óteljandi litlar hendur flugu strax á loft í salnum. Góðvild Emils smitar þannig út frá sér og minnir okkur á að samkenndin er besta vegarnestið út í lífið og öll getum við látið gott af okkur leiða með því að hjálpa þeim sem eru minnimáttar. Með risastórt hjarta Ljósmynd/ Grímur Bjarnason Uppátæki „Þessi væntumþykja er yfir og allt um kring í fallegri uppfærslu Borgarleikhússins á skemmtilegum uppátækjum Emils,“ segir í leikdómi um leiksýninguna Emil í Kattholti. Borgarleikhúsið Emil í Kattholti bbbbn Eftir Astrid Lindgren. Leikgerð: Johan Gille. Við- bætur og yfirferð á leikgerð: Þórunn Arna Krist- jánsdóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir. Söng- textar: Astrid Lindgren. Íslensk þýðing: Þórarinn Eldjárn. Leikstjórn: Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Tónlist: Georg Riedel og Fredrik Åkerblom. Dans- höfundur: Lee Proud. Tónlistarstjórn og útsetning: Agnar Már Magnússon. Leikmynd: Eva Signý Ber- ger. Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Pálmi Jónsson. Hljóð: Garðar Borgþórsson. Myndbönd: Elmar Þórarinsson. Leikgervi: Elín S. Gísladóttir. Hljómsveit: Agnar Már Magnússon, Andrés Þór Gunnlaugsson, Kjartan Guðnason, Ólafur Holm, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir og Sólveig Morávek. Leikarar: Gunnar Erik Snorrason, Hlynur Atli Harðarson, Sóley Rún Arnarsdóttir, Þórunn Obba Gunnarsdóttir, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Esther Talía Casey, Þorsteinn Bachmann, Sigrún Edda Björnsdóttir, Aron Már Ólafsson, Haraldur Ari Stefánsson, Árni Þór Lárusson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Frumsýn- ing á Stóra sviði Borgarleikhússins laugardaginn 4. desember 2021, en rýnt í 4. sýningu á sama stað sunnudaginn 12. desember 2021. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Útskriftarsýning nemenda Ljós- myndaskólans verður opnuð í dag, laugardag, í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á 6. hæð Grófarhúss við Tryggvagötu. Að þessu sinni útskrif- ast átta nemendur frá skólanum og eru útskriftarverk þeirra fjölbreytt enda spanna viðfangsefni og aðferðir nemendanna vítt svið. Þau takast þar á við margvísleg viðfangsefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði. Verkin á sýningunni endurspegla þannig gróskuna í samtíma- ljósmyndun og fjölbreytta mögu- leika sem felast í ljósmyndamiðl- inum. Sýningarstjóri er Katrín Elvarsdóttir. Vegna samkomutakmarkana verður ekki um formlega opnun að ræða og er fyrsti opnunardagur sér- staklega hugsaður fyrir sýnendur, samnemendur, vini og vandamenn. Sýningin er öllum opin frá og með 19. desember og stendur til 9. jan- úar. Aðgangur er ókeypis. Litróf Hluti verks eftir Hildi Örlygsdóttur á útskriftarsýningunni. Fjölbreytileg og áhugaverð verk - Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.