Morgunblaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 60
Kjartan Atli bendir á
mismunandi aðstæður í
körfuboltauppeldinu í
Evrópu og Bandaríkj-
unum og tekur Serbann
Nikola Jokic hjá Denver
Nuggets sem dæmi en
hann var útnefndur besti
og mikilvægasti leik-
maður NBA-deild-
arinnar á liðnu tímabili.
„Hann uppgötvaðist fyrir
slysni.“
Kjartan Atli hefur mikla reynslu
sem leikmaður og þjálfari auk þess
sem hann var kennari í Álftanes-
skóla fyrir nokkrum árum. „Það er
einn skemmtilegasti vetur sem ég
man eftir, mjög gefandi,“ rifjar hann
upp. „Ég blanda reynslu minni sem
þjálfari og kennari inn í bókaskrif-
in,“ segir hann um Lóu og Börk
Saman í liði. Hann hafi þjálfað fram-
úrskarandi hóp krakka hjá Stjörn-
unni, sem hafi orðið Íslandsmeistari
öll árin. Til að byrja með hafi aðeins
strákar verið í hópnum en síðan hafi
þrjár stelpur ári yngri bæst við og
tvær þeirra spilað lengi með strák-
unum. „Ég sá þarna bræðra- og
systralag, sem var svo fallegt, og ég
vildi fanga það inn í sögu.“
Bókin er sú fyrsta í væntanlegri
ritröð og tvær næstu eru á teikni-
borðinu. „Ég hef stillt upp framvind-
unni og er byrjaður á næstu bók,“
segir Kjartan Atli. „Körfuboltinn er
farartæki, sem ýtir sögunni áfram,
en hún getur átt við hvaða íþrótt
sem er.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kjartan Atli Kjartansson, umsjónar-
maður Domino’s körfuboltakvölds á
Stöð 2, situr ekki auðum höndum, en
hann hefur sent frá sér þrjár bækur
á skömmum tíma og er með nokkrar
í vinnslu. Bókin Stars of the NBA
eftir hann kom út í Bandaríkjunum
um nýliðin mánaðamót, en kveikjan
var Hrein karfa, sem hann skrifaði
og Sögur útgáfa gaf út í fyrra. Sama
útgáfa sendi líka á dögunum frá sér
ungmennabókina Lóu og Börk Sam-
an í liði, fyrstu skáldsögu Kjartans
Atla.
„Þetta er eins og að flytja kaffi inn
til Brasilíu,“ segir Kjartan Atli um
bókina um stjörnurnar í bandarísku
NBA-deildinni, en fyrir þá sem ekki
vita eru Bandaríkin vagga körfubolt-
ans. „Þetta er mjög skemmtilegt og
til þess var leikurinn gerður.“
Óskuðu eftir bókum
Tómas Hermannsson hjá Sögum
útgáfu hefur verið í góðum tengslum
við bandaríska útgáfufyrirtækið
Abbeville undanfarin ár. „Við höfum
gert rúmlega 20 fótboltabækur fyrir
Abbeville og þetta er fyrsta körfu-
boltabókin, en önnur um goðsagnir í
NBA hefur verið pöntuð og Kjartan
Atli skrifar hana líka.“
Eftir að Hrein karfa kom út voru
valdir kaflar þýddir og sendir til
Abbeville í þeirri von að bókin yrði
gefin út á ensku. For-
lagið vildi hins vegar
nýja bók um núverandi
stjörnur í NBA og hún
er byrjunin á bóka-
flokki, að sögn Tómasar.
Stars of the NBA
fjallar um 28 leikmenn í
deildinni. „Þetta eru
mest spennandi leik-
mennirnir,“ segir Kjart-
an Atli, sem bíður
spenntur eftir því að fá
bókina. „Hún er á leiðinni í pósti.“
Fjallað er um einn leikmann á hverri
opnu með stórri mynd og nokkrum
upplýsingamolum til viðbótar við
textann. „Hugsunin er að efnið sé
aðgengilegt fyrir alla, að þeir sem
eru að kynnast íþróttinni geti kynnst
leikmönnunum betur.“
Með stjörnur í augum
- Kjartan Atli kynnir NBA í vöggu körfuboltans - „Eins
og að flytja kaffi inn til Brasilíu“ - Líka með skáldsögu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsta skáldsagan Kjartan Atli Kjartansson með Lóu og Börk Saman í liði.
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 352. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar eru jöfn á toppi úrvals-
deildar karla í handknattleik, Olísdeildarinnar, eftir sigra
í þrettándu umferð deildarinnar í gær. Haukar unnu
nauman eins marks sigur gegn Aftureldingu á Ásvöllum
og FH vann fjögurra marka sigur gegn Gróttu á Seltjarn-
arnesi. Þá er Stjarnan komin í þriðja sæti deildarinnar
eftir stórsigur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. »50
Hafnarfjarðarliðin jöfn á toppnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Hópurinn Camerartica heldur sína árlegu tónleika,
Mozart við kertaljós, í fjórum kirkjum dagana fyrir jól.
Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju sunnudags-
kvöldið 19. des., í Kópavogskirkju mánudaginn 20. des.,
í Garðakirkju þriðjudaginn 21. des. og í Dómkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 22. des. Tónleikarnir hefjast
allir klukkan 21. Hópinn skipa að þessu sinni Ármann
Helgason, Emilia Rós Sigfúsdóttir, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, Bryndís Pálsdóttir, Svava Bernharðsdóttir,
Guðrún Þórarinsdóttir og Sigurður Halldórsson.
Leika Mozart við kertaljós í fjórum
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu