Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021 S jö dagar til jóla og börnin hlakka til. Við hin erum ekki heldur langt und- an, en látum minna bera á því. Samt er langt síðan við náðum þeim aldri og þroska að telja okkur óhætt að taka aftur trú á jólaveininn og þess vegna í fleirtölu. Bréfritari kannast við að hafa á langri ævi gengið í gegnum nokkur skeið varðandi jólasveininn. Þau höfðu öll sinn sjarma, en fyrsta skeiðið gaf mest af sér tilfinningalega og þess vegna er hugsað til þess á aðventu og jólum. Minningarnar frá þeim tíma eru sumar þokukenndar og eins konar draumfarir á skýjum. Þar á eftir tóku tímar efasemdanna við. Það voru jafnaldrar, sem áttu eldri systkini sem slengdu fram- an í okkur að rauðklæddu ljúflingarnir, sem vildu öll- um mönnum vel og „okkur“ alveg sérstaklega, væru ekki allir eins og þeir sýndust. Donald bleiklokkur hefði kallað þá „falskar fréttir“ á sínum barnsskóm. Óneitanlega komu þessar upplýsingar, í okkar tilviki bræðrunum, í óþægilega stöðu gagnvart fullorðna fólkinu, sem við höfðum fram að þessu talið trúverð- ugustu vinina, fyrir utan Guð og engla hans, sem höfðu auðvitað í mörgu að snúast og því fjarlægari. Það rann upp fyrir okkur að bæði mamma og amma höfðu tekið fullan þátt í samsærinu. Það vantaði bara George Soros. En það vantaði líka gangverkið sem er innihald allra almennilegra samsæra. Til hvers er það. Samsærið um jólasveininn hafði ekki beinst gegn neinum. Mamma læddist inn í herbergi drengj- anna sinna með eitthvert lítilræði, sem var í 3-4 ár frábær byrjun á þeim tveimur vikum þegar skamm- degið herti tök sín. Við bræður náðum að rétta okkar hlut með því að þegja. Okkur tókst að halda hinum óþægilega sann- leika utan veggja heimilisins í eitt ár og tryggðum okkur þar með áframhaldandi hlutdeild í lífskjara- samningi mömmu og jólaveinsins. Og um leið og inn- anhússstaðan var orðin 1-1, að okkar mati, skildum við að jólasveinasamsærið var hluti af þeirri almennu elsku sem við gátum gengið að vísri hjá þessum kon- um. Og um leið var okkur kennt, með lifandi dæmisögu, að ekki væri endilega allt sem sýndist og það þótt þeir, sem helst mátti treysta, ættu í hlut. Þriðja jóla- sveinsstig bréfritara hófst fyrir atbeina Ketils Lar- sen, skólabróður úr Leiklistarskóla Ævars R. Kvar- ans, sem bauð upp á rullu Stúfs í jólavertíð sveina sem hann væri að stofna til. Pétur Pétursson út- varpsþulur sem rak litla verslun í Hreyfilshúsinu var okkar umboðsmaður. Ef vel tækist til þá gátum við haft gott upp úr krafsinu, miðað við það þegar maður hafði ekkert upp úr krafsinu. Tekjur af uppákomum jólasveina virtust undanþegnar skattgreiðslum og voru sveinkar sennilega einir um slík réttindi, að for- seta Íslands undanskildum. Jólasveinar væru skeggjaðir og óþekkjanlegir ell- efu og hálfan mánuð á ári, hvergi skráðir hjá opin- berri stofnun, og heimilisfangið í Esjunni, Skálafelli eða Kerlingarfjöllum hefði ekki póstfang. Og Grýla var ekki aðgengileg heim að sækja. Skatturinn var vissulega alvanur að eiga við leppalúða af ýmsu tagi en það næði ekki til þess í okkar fjölskyldu. Þessi vertíð okkar Ketils stóð sameiginlega í nokk- ur ár og hans vertíð í áratugi eftir það. Hann var hinn ágætasti maður og með hjartalag sem prýðir bestu menn í hópi jólasveina. Sá sem lifir langa ævi kemst ekki hjá því umgangast jólasveina af annarri gerð en þarna voru gerð skil. Þeir Ketill héldu því til haga þegar fundum bar saman á lífsleiðinni að herhvötin góða ætti jafnt við um okkur og skátahreyfinguna: „Eitt sinn jólasveinn, alltaf jólasveinn.“ Af jólasveinum í annan heim Sjónvarpsstöðvarnar vestra – „the mainstream media“ – sem löngum hafa flykkt sér um flokk demó- krata, ásamt stórblöðunum NYT og Washington Post, lögðu Trump forsetaframbjóðanda og síðan for- seta í einelti frá upphafi þeirrar tíðar og til loka. Allir þessir aðilar hafa örugglega talið margt, stórt og smátt, réttlæta það. Talið er að þessi atlaga nútíma- fjölmiðlanna hafi vakið á þeim athygli og styrkt stöðu þeirra fjárhagslega. En eins og hendir stundum á þessum árstíma þá „er hún gamla Grýla dauð“ og þótt reynt hafi verið að mjólka trumptryllinginn áfram eftir að karl var á bak og burt, enda búið að setja mikinn spuna og mik- ið fé í hann, hélt það ekki áhorfendum eða lesendum. Trump var raunverulega úr sögunni, nema sem eitt af þessum „frægu nöfnum“ sem fyrrverandi forsetar eru auðvitað. Trump, eins og mörgum, finnst eitthvert umtal betra en lítið og þunnt og heldur því þess vegna opnu að hann kunni að bjóða sig fram til forseta gegn þeim sem innan tíðar tekur við af Biden. Það gleður hann sjálfsagt að nýjustu kannanir sýna í augnablikinu að fylgi við Trump er jafnmikið og mælt fylgi Bidens er, en það er raunar í djúpri lægð, sem er sjaldgæft eftir aðeins níu til tíu mánuði í Hvíta húsinu. Repúblikanaflokkurinn er enn höfuðlaus her og horfir því um öxl eftir leiðsögn og nýtur Trump, af þeim sökum, verulegra áhrifa innan flokksins og get- ur enn ráðið mestu um hvaða frambjóðendur hljóti frama í kosningunum 2022. En reynslan af Biden, sem vel má ímynda sér að gleðji Trump, mun líklega hafa öfug áhrif fyrir Trump, þegar sá tími nálgast að velja þarf forseta- efni fyrir haustið 2024. Þá verður Trump á svipuðum aldri og Biden var þegar hann fór í framboð. Þótt enn bendi ekkert til þess að geyma þurfi Trump í kjallarholu eða í geymslu efst í einum af turnum hans, frá ársbyrjun 2024, eins reyndist óhjákvæmi- legt með Biden árið 2020, þá hræða aldursvandræðin sem núverandi forseti er frægastur fyrir. Ýmsum þykir slíkt tal ósanngjarnt gagnvart eldri borgurum, sem með nýjum tímum halda sínu vel fram í háan aldur. En horfa verður til þess hvaða starf er í húfi. Fimleikakonur geta þannig verið í stórgóðu formi en eiga þó ekki endilega í þær yngri. Seint verður sagt að 35 ára aldurinn sé sjálfstætt merki þess að ellin sæki á fótboltamenn. En hinn harði bardagi á vellinum og kröfur um úthald segja aðra sögu. Embætti forseta Bandaríkjanna er stærra í sniðum en flest önnur af þeirri gerð. Demókratar hikuðu ekki við að gera aldur Ronalds Reagans tortryggileg- an þegar hann varð forseti. En það gekk ekki, því hann var ekki talandi dæmi um það eins og seinna eintakið. Engum líkur Þegar Ronald Reagan bauð sig fram fjórum árum síðar urðu viðbrögð Bandaríkjamanna með hreinum ólíkindum. Reagan vann 49 ríki af 50. Andstæðingur hans Mondale vann aðeins sitt heimaríki, Minnesota, en aðeins munaði rúmum 3.000 atkvæðum að Reagan ynni líka það ríki. Reagan fékk 538 kjörmenn í sinn hlut en það þurfti 270 til að tryggja sér kjörið. En þessir fullorðnu menn voru að öðru leyti gjörólíkir. Það varð frægt að Obama sagði eitt sinn við flokks- bróður sinn, um varaforsetann Biden: „Don’t under- estimate Joe’s ability to f… things up.“(Aldrei skaltu vanmeta getu Joe til að klúðra málum). Það vakti óneitanlega athygli að Obama lýsti ekki yfir stuðn- ingi við varaforseta sinn fyrr en Joe Biden var einn eftir í framboði. En Biden verður ekki einum kennt um hversu hratt fylgið hrynur af honum og flokki Klukkan gengur á margt og marga Reykjavíkurbréf17.12.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.