Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021
TÍMAVÉLIN
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Hátíðar hnetusteik
Lífrænt - Vegan - Glúteinlaust
Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Vegan búðin, Fiskkompaní,
Iceland verslanir, Heimkaup, Kjörbúðin, Frú Lauga og Matarbúr Kaju á Akranesi
minni ása. Þá voru færðar fórnir.
Annað, sem einkenndi hin heiðnu jól,
voru leikar þeir, er þá voru iðkaðir.
„En með tilkvámu kristninnar á
Norðurlönd hurfu fórnir og blót-
veislur jólahátíðarinnar, því að fyrir
löngu hafði þá kristin trú tekið upp
hina heiðnu jólahátíð.“
Alger umpólun varð með kristni-
væðingu jólanna. „Svo mikil er helgi
kristinna jóla,“ sagði Velvakandi
1951, „að þá má ekki spila né dansa,
þaðan af síður rífast eða blóta. Þá
var pokurinn sjálfur vís til að láta til
sín taka og sökkva öllu saman. Jóla-
nóttin er helgasta nótt ársins, þá
láta menn loga ljós, þeir sem annars
sofa í myrkri eða svo hefir það að
minnsta kosti víða verið til skamms
tíma.“
Frekari fróðleikur flaut með. Svo
sem að í lok miðaldanna hafi borist
kvartanir og kærur yfir því, að hinn
mikli sægur helgidaga orkaði lam-
andi á efnahag þjóða. Páfarnir sáu
sér því ekki annað fært en smá-
fækka helgidögum. Fram yfir miðja
18. öld var þríheilagt hér á landi á
öllum stórhátíðum, en 26. október
1770 gaf konungur út tilskipun, þar
sem þetta var numið úr lögum.
„Nú eru það kölluð brandajól, ef
þríheilagt verður, aðfangadag eða
þriðja í jólum ber upp á sunnudag.
Stundum kalla menn það líka stóru-
brandajól, þegar Þorláksmessu ber
upp á sunnudag eins og núna.“
Þá væri gott að lifa
Jólaljósin voru Ólafi M. Jóhann-
essyni hugleikin í grein í Morg-
unblaðinu á aðfangadag 1986. „Eitt
slíkt kviknaði í gær á Bylgjunni er
hinn notalegi morgunþáttarstjóri
Páll Þorsteinsson tilkynti hlust-
endum að þeir gætu sent jólakveðjur
til vina og vandamanna gegn
ákveðnu gjaldi og svo bætti hann
eins og mannhvörfin á jólanótt af
völdum óvætta o. s.frv.“
Aðaldægradvölin um jólin var
drykkjan, að sögn Velvakanda. Í
Noregi var það víst í lögum, að allir
bændur, sem áttu sex kýr eða fleiri,
yrðu að brugga tiltekinn slatta öls og
efna til jóladrykkju upp á eigin spýt-
ur eða með öðrum. Var þá drukkið
A
lvarlegur tónn var í jóla-
hugleiðingu dr. Jóns Helga-
sonar biskups í Morgun-
blaðinu fyrir réttri öld, á aðfangadag
1921, enda ekki langt liðið frá lokum
hildarleiksins sem við þekkjum sem
fyrri heimsstyrjöldina. Jón talaði til
efans í hjörtum okkar mannanna.
„Það er engan veginn svo auðvelt
að trúa á kærleika guðs alment, eins
og heimurinn er. Oftar skyldi maður
ætla það sönnu nær, að guð hataði
heiminn, eins og hann veltist í hinu
vonda. Hugsum aðeins til undanfar-
inna 6-7 ára! Væri ekki fremur
ástæða til að ætla, að guð hataði
heiminn, eins og hann hefir sýnt sig
þessi voðalegu ár, — þar sem vonska
mannanna hefir birtst á jafn háu
stigi?“ spurði hann.
Þótt við strikuðum yfir þessi voða-
legu ár, þá var samt nóg, að dómi
biskups, sem gæti gert okkur erfitt
að trúa því, að guð elskaði þennan
heim. „Lítum aðeins á eitt atriði:
hinn gífurlega mismun á kjörum
manna. Væri nú svo vel, að vér gæt-
um sagt, að mismunur kjaranna
stæði í réttu hlutfalli við mannkosti
einstaklinganna, svo að það væru
ávalt bestu og vönduðustu menn-
irnir, sem sætu sólarmegin í lífinu.
En því er ekki að heilsa. Er eiginlega
að furða, þótt skammsýnum mönn-
um komi slíkt undarlega fyrir sjónir,
og að þeir spyrji: Getur sá guð verið
réttlátur, sem slíkt lætur viðgangast
og ef hann er ekki réttlátur, getur
hann þá verið kærleiksríkur?“
Svar Jóns var afdráttarlaust já.
„Og þó er ekkert sem vér þráum
heitar en að mega trúa fagnaðar-
erindinu um kærleika guðs, og geta
hvílst öruggir í því, eins og börn í
móðurfaðmi, sannfærðir um kær-
leiksþel guðs gagnvart oss. Því að
vér finnum, að án þessa yrði lífið oss
hin mesta kvöl og byrði, og tilgangur
þess óskiljanlegur með öllu.“
Jólin voru ekki hátíð ljóssins
Velvakandi í Morgunblaðinu var í
sagnfræðilegum ham í pistli sínum á
Þorláksmessu 1951. Og vangavelt-
urrnar voru bara býsna merkilegar
enda hafa jólin ekki alltaf haft sömu
merkingu í hugum manna.
„Jólin eru helgust allra hátíða, þó
eru þau ekki kristins uppruna, held-
ur má rekja þau til elztu og römm-
ustu forneskju með germönskum
þjóðum. Almennt mun hátíðin hafa
gengið í garð um vetrarsólhvörf eða
þegar nýmáni jólamánaðarins kvikn-
aði. Aftur í grárri forneskju er þó
hæpið, að fyrst og fremst hafi verið
litið á jólin sem hátíð ljóssins. Öllu
heldur eru þau tíminn, þegar
ófreskjur og illvættir leika lausum
hala og hafa meira vald yfir mönn-
unum en í nokkurn annan tíma.
Frumhugsun jólanna er þá eiginlega
hið mikla vald óvættanna yfir mönn-
um í svartasta skammdeginu. Enn
eru lifandi fyrir hugskotssjónum
okkar sögurnar um grýlu og jóla-
sveinana og fjöldi annarra hindur-
vitna, er tengd hafa verið jólunum,
Páll við: Allur ágóði af kveðjunum
rennur til öldrunarmála.“
Ólafur sagði þetta stórmannlega
framtak þeirra á Bylgjunni leiða
hugann að því hversu margir störf-
uðu að hvers kyns líknar- og hjálp-
arstarfi um jólin. „Ég veit til dæmis
til þess að Hjálparstofnun kirkj-
unnar hafa borist álíka fjárhæðir í
kyrrþey nú um jólin og Rauða kross-
inum.
Máski vill fólk sjá peningana fara
beint til hinna bágstöddu en starfs-
menn Hjálparstofnunar kirkjunnar
hafa ætíð fylgt þeirri gullnu reglu að
fara á vettvang með féð.“
Óskar Jónsson skrifaði hugvekju í
sama tölublað og sagði gleði og fögn-
uð eiga að einkenna jólahátíðina og
gera það einnig, en mismunandi
mikið. „Hér á landi hafa jólin indælis
áhrif á þjóðina. Það besta í mann-
inum kallast fram. Fólkið sýnir
meiri gleði, er kærleiksríkara og
gjafmildara. Kirkjusóknin er betri
en á öðrum tímum ársins. Fögnuður
og gleði jólanna ætti að vara allan
ársins hring, þá væri gott að lifa.“
Óskar sagði anda jólanna vera
anda fyrirgefningar, fórnar og þjón-
ustu. „Jesús tók á sig þjóns mynd,
og það er hann sem er fyrirmyndin.
Kristnir menn eiga í Jesú nafni að
vinna kærleiksverkin allt árið.“
Utan úr heimi var það helst að
frétta að Boris Becker, „tennis-
undrið frá Leimen“ fékk áheyrn hjá
Jóhannesi Páli II páfa í Páfagarði.
Af ljósmyndinni að dæma virtist
hafa farið vel á með þeim félögum.
Þá hafði leikarinn John Travolta
stungið við stafni í Hvíta húsinu í
Washington til að þess að afhenda
Nancy Reagan stuðningsyfirlýsingu
fjölda skemmtikrafta við baráttu
forsetafrúarinnar gegn eiturlyfjum.
Já, sameinaðir stöndum vér. Um
jólin sem endranær.
Jólasveinarnir færðu sér tæknina í nyt á aðventunni 1976 og komu á þessum fína jeppa í bæinn.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Jólaös í miðbæ Reykjavíkur í byrjun desember 1974.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Þegar illvættir leika lausum hala
Sitja bestu og vönduðustu mennirnir alltaf sólar-
megin í lífinu? Hvenær voru jólin vald vættanna
yfir mönnunum? Og hvenær efndi Bylgjan til stór-
mannlegs átaks fyrir jólin? Komið með í ferðalag,
allt að heila öld aftur í tímann. Hvað var mönnum
efst í huga á jólunum 1921, 1951 og 1986?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sú var tíðin að drukkið var minni ása á jólunum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson