Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021 TÍMAVÉLIN Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hátíðar hnetusteik Lífrænt - Vegan - Glúteinlaust Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Vegan búðin, Fiskkompaní, Iceland verslanir, Heimkaup, Kjörbúðin, Frú Lauga og Matarbúr Kaju á Akranesi minni ása. Þá voru færðar fórnir. Annað, sem einkenndi hin heiðnu jól, voru leikar þeir, er þá voru iðkaðir. „En með tilkvámu kristninnar á Norðurlönd hurfu fórnir og blót- veislur jólahátíðarinnar, því að fyrir löngu hafði þá kristin trú tekið upp hina heiðnu jólahátíð.“ Alger umpólun varð með kristni- væðingu jólanna. „Svo mikil er helgi kristinna jóla,“ sagði Velvakandi 1951, „að þá má ekki spila né dansa, þaðan af síður rífast eða blóta. Þá var pokurinn sjálfur vís til að láta til sín taka og sökkva öllu saman. Jóla- nóttin er helgasta nótt ársins, þá láta menn loga ljós, þeir sem annars sofa í myrkri eða svo hefir það að minnsta kosti víða verið til skamms tíma.“ Frekari fróðleikur flaut með. Svo sem að í lok miðaldanna hafi borist kvartanir og kærur yfir því, að hinn mikli sægur helgidaga orkaði lam- andi á efnahag þjóða. Páfarnir sáu sér því ekki annað fært en smá- fækka helgidögum. Fram yfir miðja 18. öld var þríheilagt hér á landi á öllum stórhátíðum, en 26. október 1770 gaf konungur út tilskipun, þar sem þetta var numið úr lögum. „Nú eru það kölluð brandajól, ef þríheilagt verður, aðfangadag eða þriðja í jólum ber upp á sunnudag. Stundum kalla menn það líka stóru- brandajól, þegar Þorláksmessu ber upp á sunnudag eins og núna.“ Þá væri gott að lifa Jólaljósin voru Ólafi M. Jóhann- essyni hugleikin í grein í Morg- unblaðinu á aðfangadag 1986. „Eitt slíkt kviknaði í gær á Bylgjunni er hinn notalegi morgunþáttarstjóri Páll Þorsteinsson tilkynti hlust- endum að þeir gætu sent jólakveðjur til vina og vandamanna gegn ákveðnu gjaldi og svo bætti hann eins og mannhvörfin á jólanótt af völdum óvætta o. s.frv.“ Aðaldægradvölin um jólin var drykkjan, að sögn Velvakanda. Í Noregi var það víst í lögum, að allir bændur, sem áttu sex kýr eða fleiri, yrðu að brugga tiltekinn slatta öls og efna til jóladrykkju upp á eigin spýt- ur eða með öðrum. Var þá drukkið A lvarlegur tónn var í jóla- hugleiðingu dr. Jóns Helga- sonar biskups í Morgun- blaðinu fyrir réttri öld, á aðfangadag 1921, enda ekki langt liðið frá lokum hildarleiksins sem við þekkjum sem fyrri heimsstyrjöldina. Jón talaði til efans í hjörtum okkar mannanna. „Það er engan veginn svo auðvelt að trúa á kærleika guðs alment, eins og heimurinn er. Oftar skyldi maður ætla það sönnu nær, að guð hataði heiminn, eins og hann veltist í hinu vonda. Hugsum aðeins til undanfar- inna 6-7 ára! Væri ekki fremur ástæða til að ætla, að guð hataði heiminn, eins og hann hefir sýnt sig þessi voðalegu ár, — þar sem vonska mannanna hefir birtst á jafn háu stigi?“ spurði hann. Þótt við strikuðum yfir þessi voða- legu ár, þá var samt nóg, að dómi biskups, sem gæti gert okkur erfitt að trúa því, að guð elskaði þennan heim. „Lítum aðeins á eitt atriði: hinn gífurlega mismun á kjörum manna. Væri nú svo vel, að vér gæt- um sagt, að mismunur kjaranna stæði í réttu hlutfalli við mannkosti einstaklinganna, svo að það væru ávalt bestu og vönduðustu menn- irnir, sem sætu sólarmegin í lífinu. En því er ekki að heilsa. Er eiginlega að furða, þótt skammsýnum mönn- um komi slíkt undarlega fyrir sjónir, og að þeir spyrji: Getur sá guð verið réttlátur, sem slíkt lætur viðgangast og ef hann er ekki réttlátur, getur hann þá verið kærleiksríkur?“ Svar Jóns var afdráttarlaust já. „Og þó er ekkert sem vér þráum heitar en að mega trúa fagnaðar- erindinu um kærleika guðs, og geta hvílst öruggir í því, eins og börn í móðurfaðmi, sannfærðir um kær- leiksþel guðs gagnvart oss. Því að vér finnum, að án þessa yrði lífið oss hin mesta kvöl og byrði, og tilgangur þess óskiljanlegur með öllu.“ Jólin voru ekki hátíð ljóssins Velvakandi í Morgunblaðinu var í sagnfræðilegum ham í pistli sínum á Þorláksmessu 1951. Og vangavelt- urrnar voru bara býsna merkilegar enda hafa jólin ekki alltaf haft sömu merkingu í hugum manna. „Jólin eru helgust allra hátíða, þó eru þau ekki kristins uppruna, held- ur má rekja þau til elztu og römm- ustu forneskju með germönskum þjóðum. Almennt mun hátíðin hafa gengið í garð um vetrarsólhvörf eða þegar nýmáni jólamánaðarins kvikn- aði. Aftur í grárri forneskju er þó hæpið, að fyrst og fremst hafi verið litið á jólin sem hátíð ljóssins. Öllu heldur eru þau tíminn, þegar ófreskjur og illvættir leika lausum hala og hafa meira vald yfir mönn- unum en í nokkurn annan tíma. Frumhugsun jólanna er þá eiginlega hið mikla vald óvættanna yfir mönn- um í svartasta skammdeginu. Enn eru lifandi fyrir hugskotssjónum okkar sögurnar um grýlu og jóla- sveinana og fjöldi annarra hindur- vitna, er tengd hafa verið jólunum, Páll við: Allur ágóði af kveðjunum rennur til öldrunarmála.“ Ólafur sagði þetta stórmannlega framtak þeirra á Bylgjunni leiða hugann að því hversu margir störf- uðu að hvers kyns líknar- og hjálp- arstarfi um jólin. „Ég veit til dæmis til þess að Hjálparstofnun kirkj- unnar hafa borist álíka fjárhæðir í kyrrþey nú um jólin og Rauða kross- inum. Máski vill fólk sjá peningana fara beint til hinna bágstöddu en starfs- menn Hjálparstofnunar kirkjunnar hafa ætíð fylgt þeirri gullnu reglu að fara á vettvang með féð.“ Óskar Jónsson skrifaði hugvekju í sama tölublað og sagði gleði og fögn- uð eiga að einkenna jólahátíðina og gera það einnig, en mismunandi mikið. „Hér á landi hafa jólin indælis áhrif á þjóðina. Það besta í mann- inum kallast fram. Fólkið sýnir meiri gleði, er kærleiksríkara og gjafmildara. Kirkjusóknin er betri en á öðrum tímum ársins. Fögnuður og gleði jólanna ætti að vara allan ársins hring, þá væri gott að lifa.“ Óskar sagði anda jólanna vera anda fyrirgefningar, fórnar og þjón- ustu. „Jesús tók á sig þjóns mynd, og það er hann sem er fyrirmyndin. Kristnir menn eiga í Jesú nafni að vinna kærleiksverkin allt árið.“ Utan úr heimi var það helst að frétta að Boris Becker, „tennis- undrið frá Leimen“ fékk áheyrn hjá Jóhannesi Páli II páfa í Páfagarði. Af ljósmyndinni að dæma virtist hafa farið vel á með þeim félögum. Þá hafði leikarinn John Travolta stungið við stafni í Hvíta húsinu í Washington til að þess að afhenda Nancy Reagan stuðningsyfirlýsingu fjölda skemmtikrafta við baráttu forsetafrúarinnar gegn eiturlyfjum. Já, sameinaðir stöndum vér. Um jólin sem endranær. Jólasveinarnir færðu sér tæknina í nyt á aðventunni 1976 og komu á þessum fína jeppa í bæinn. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Jólaös í miðbæ Reykjavíkur í byrjun desember 1974. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Þegar illvættir leika lausum hala Sitja bestu og vönduðustu mennirnir alltaf sólar- megin í lífinu? Hvenær voru jólin vald vættanna yfir mönnunum? Og hvenær efndi Bylgjan til stór- mannlegs átaks fyrir jólin? Komið með í ferðalag, allt að heila öld aftur í tímann. Hvað var mönnum efst í huga á jólunum 1921, 1951 og 1986? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sú var tíðin að drukkið var minni ása á jólunum. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.