Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Side 32
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2021 MADE INDENMARK Til afhendingar strax Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig. Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Þegar flestir kristnir menn fleygja sér upp í sófa, njóta samver- unnar með ástvinum og gera vel við sig í mat og drykk reima leikmenn í ensku knattspyrnunni á sig takkaskóna og spyrna sem enginn væri morgundagurinn. Hitað verður upp fyrir jólin með átta liða úrslitum í deildabikarnum í vikunni en síðan verð- ur hlaðið í heilar þrjár umferðir um hátíðirnar. Veislan byrjar annan í jólum þegar nánast heil umferð er á dagskrá og verður leikið kl. 12:30, 15, 17:30 og 20. Strax tveimur dögum síðar hefst næsta umferð og lýkur henni fimmtudaginn 30. desember. Menn kasta mæðinni aðeins á gamlársdag en á nýársdag og 2. janúar er þriðja umferðin á einni viku á dagskrá. Meðal spennandi leikja má nefna Manchester City gegn Leic- ester 26. desember, Manchester United gegn Burnley 30. des- ember og Chelsea gegn Liverpool 2. janúar. Allt er þetta sagt með fyrirvara um að Ómíkron skerist ekki í leikinn. Mason Mount sér jólaljósið á Brúnni. AFP Blikar jólastjarna Eftir langt hlé þarf Cristiano Ronaldo að reima á sig takkaskóna um jólin og gleðja almúgann. AFP Sem endranær fer allt á yfirsnúning í ensku knattspyrnunni um jólin. Rétt fyrir jólin 1971 ritaði mað- ur að nafni Eysteinn Eymunds- son Morgunblaðinu bréf til að lýsa yfir stuðningi við aðflutn- ingsbann á áfengi. „Nú nýlega var tilkynnt, að allt áfengi væri hækkað um 20%. Ég held, að þetta sé ekki spor í rétta átt. Ég held, að hækkað verð á áfengi leysi engan vanda í þessu máli. Auki aðeins fjárhags- örðugleika og hörmungar á heimilum drykkjumanna,“ skrif- aði hann. Helsta lausnin, að mati Ey- steins, var að setja algjört að- flutningsbann á allt áfengi og skoraði hann á ríkisstjórnina að gangast fyrir því að þjóðar- atkvæði yrði greitt um málið. „Ég hef lengst af ævi minnar verið andvígur aðflutningsbanni. Hef haft svo mikið traust á sam- löndum mínum, að ég hef treyst þeim til þess að standast þær freistingar, sem Bakkus leggur fyrir fólk. Sjálfur hef ég ekki átt bágt með að standast þær. Nú þykist ég vera farinn að sjá, að allmargir, bæði ungir og aldnir, eru ekki færir um að standast þær og þess vegna mumdi ég greiða atkvæði með aðflutnings- banni.“ GAMLA FRÉTTIN Aðflutn- ingsbann á áfengi Örtröð í ríkinu við Snorrabraut. Myndin er tekin 1979 enda hlutu hug- myndir Eysteins Eymundssonar ekki hljómgrunn meðal þjóðarinnar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Tim Allen leikari. Grace Hopper varaflotaforingi og tölvuforritari. Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.