Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Qupperneq 10

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Qupperneq 10
Klifur Ég tek þátt í lífsgæðakapp- hlaupinu eins og hver annar -segir Grétar Pétur Geirsson, sem er spastískur og á sex börn, þar af þríbura. Fjölskyldumynd sem tekin var árið 1995. L.t.v. Kristín, Grétar Pétur, Eva, Laufey, og þríburarnir, Geir Grétar, í kjöltu föður síns og Dagný og Díana. Grétar Pétur Geirsson tekur á móti blaðamanni Klifurs í Sjálfsbjargarhúsinu þar sem við höfðum mælt okkur mót. Hann kemur mér fyrir sjónir sem einn af þessum náungum sem virðast alltaf vera í góðu skapi og sjá ávallt björtu hliðarnar á tilverunni. Grétar Pétur, sem er 41 árs gamall, er fæddur spastískur. Hann hefur verið í sam- búð með Laufeyju Þóru Olafsdóttur í 13 ár. Saman eiga þau fimm börn, það elsta 13 ára, næstelsta tíu ára og þríbura sem eru sjö og hálfs árs gamlir. Auk þess á Grétar Pétur 18 ára dóttur sem býr á Stokkseyri. -En ætli fólk verði hissa þegar það fréttir að hann eigi svona mörg börn? „Já, það er alltaf jafn hissa. Það veltir því fyrir sér hvernig mað- ur fer að því að standa undir þessu,“ segir Grétar Pétur. „Ég er í eigin húsnæði, er að vinna og tek þátt í lífsgæðakapphlaupinu eins og hver annar. Ég fæ ekki neina styrki fyrir utan trygginguna sem allir öryrkjar eru með, þannig að ég lifi hefð- bundnu lífi eins og hver annar. Mín fötlun háir mér ekki og hefur aldrei gert. Þetta hefur bara gengið mjög vel og ég held að fólk sé mest hissa á því að maður skuli ekki vera inni á þessum stofnunum vælandi alla daga, betlandi einhverja aura.“ Grétar Pétur, sem hefur starfað við bókhald hjá heildsöluversluninni Borgarbörn í um fimm ár, vinnur svo til fullan vinnudag. Hann stundar æfingar hjá Sjálfsbjörg þrisvar í viku og segir lítinn tíma til að gera mikið meira. „Maður sinnir fjölskyldunni fyrir utan vinnu og það tekur auðvit- að sinn tíma.“ -En hvernig ætli þeim Grétari Pétri og Laufeyju hafi orðið um þeg- ar í ljós kom að Laufey gekk með þríbura? „Við áttuðum okkur ef til vill ekki á því strax. Við tókum þessu bara nokkuð létt, ég held að það hafi frekar verið fólkið í kring- um okkur sem hafi fengið meira sjokk heldur en við. Maður gerði sér sjálfsagt ekki grein fyrir því hversu gríðarl'eg vinna þetta yrði, það gerir sér enginn grein fyrir því fyrirfram. Þetta hefur aftur á móti gengið mjög vel. Laufey er hörkudugleg kona og hún var nú ekki nema 25 ára þegar hún var orðin fimm barna móðir. Annars gekk þetta ekki átakalaust fyrir sig með þríburana vegna þess að þeir fæddust tvo og hálfan mánuð fyrir tímann. Strákurinn var á vöku- deildinni í rúma þrjá mánuði og stelpurnar í tvo mánuði. Samanlagt voru þau 13 merkur eða eins og eitt normalt barn. Hann var 5 merkur og þær fjórar hvor, þannig að það segir allt sem segja þarf. En sem betur fer fór allt vel og þeim vegnar vel í dag.“ Grétar Pétur segir fötlun sína ekki gera það að verkum að hann taki minni þátt í umönnun barnanna. „Ég tek eins mikinn þátt í því og ég get, það er ekkert öðruvísi hjá okkur en öðru fólki. Laufey vinnur frá kl. 6 á morgnana til tvö á daginn, þann- ig að það lendir á mér að drífa krakkana á fætur og í skólann. Síð- an fer ég bara í mína vinnu og Lauf- ey sækir þríburana eftir vinnu. Þetta 10

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.