Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Síða 11

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Síða 11
Klifur hefur gengið ágætlega.“ Grétar Pétur, sem er fæddur í Vest- mannaeyjum, kynntist Laufeyju þegar foreldrar hans fluttu til Selfoss árið 1986, þar sem Laufey er fædd. „Við kynntumst upp á gamla góða mátann, á einhverjum skemmtistað, eins og um 80% af íslendingum," segir Grétar og hlær. „Við vorum búin að vera saman í u.þ.b. ár þegar við byrjuðum að búa saman.“ Mikilvœgt að vera jákvœður -Þú ert hress náungi, finnst þér mik- ilvægt að vera jákvæður og líta björtum augum á lífið og tilveruna? „Já, það gengur náttúrulega ekkert annað, alla vega ekki hjá mér. Ég hef aldrei látið mitt líkamsástand hamla mér á nokkurn hátt og hef ekki fundið neitt sérstaklega fyrir því. Ég kemst allra minna ferða, keyri bíl, er í vinnu og þar fram eftir götunum. Ég ólst upp í hópi sex systkina og að mörgu leyti voru það forréttindi að fá að alast upp í Vest- mannaeyjum. Ég var alltaf jafningi annarra krakka og varð aldrei nokkurn tímann fyrir aðkasti í skóla. Yfirleitt hef ég alltaf átt gott með að svara fyrir mig, þannig að ég notaði það óspart og það hjálpaði mér mik- ið. Ég varð aldrei fyrir aðkasti, ekki meira en bara gengur og gerist hjá öðrum. Sumir eru líka veikari fyrir því en aðrir, sumir standa það af sér og aðrir ekki. Þá spilar fötlunin ekk- ert endilega inn í ______________ það, heldur hvernig einstaklingurinn er.“ -Hvernig voru að- stæður fyrir þig þar sem þú ólst upp í Vestmannaeyjum? „Það var náttúrulega ekkert gert ráð fyrir ----------- okkur aumingjunum þar, það var ekki gert ráð fyrir einu né neinu, neins staðar. Það var hvergi farið að vinna sérstaklega í málefnum öryrkja, ekki að ég man eftir. Ég bjó til að mynda í húsi sem var á tveimur hæðum og ég skreið upp og niður stigana sem barn. Mað- ur var bara látinn grenja niðri þang- að til maður kom sjálfur upp. Ég var algjörlega látinn bjarga mér sjálfur, ,Ég var alltaf jafningi annarra krakka og varð aldrei nokkurn tímann fyrir aðkasti í skóla.“ eins mikið og hægt var, og eftir á að hyggja var það kostur." Fólki refsað fyrir að reyna að bjarga sér Grétar Pétur hefur verið í stjórn Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu í um fjögur ár, auk þess að sitja í ýmsum nefndum og þekkir því vel til málefna fatlaðra. Hann segir að- stöðuna hjá Sjálfsbjörg hvað varðar æfingaaðstöðu og annað vera til fyr- irmyndar og að ___________________ staðið sé að öllu eins vel og hægt er. „Það hefur auðvitað margt breyst í málefnum fatlaðra frá því að ég var barn. Hins vegar er enn margt sem betur mætti fara. Eitt af bar- áttumálum öryrkja til langs tíma hefur t.d. verið að afnema tekjutengingu við maka sem mér finnst alveg for- kastanlegt að skuli vera við lýði. Með því er beinlínis verið að refsa fólki fyrir að reyna að bjarga sér. Mér finnst það bara vera hið besta mál ef öryrkjar bæði nenna og hafa getu til að vinna og fara að vinna. Það á ekki að hafa það í för með sér að þeir tapi réttindum út á það. Ef makinn vinnur og hefur meira en 30- 40 þúsund krónur á mánuði þá _______________ skerðast bæturnar hjá hinum aðilan- um. Það hefur ver- ið mikið rætt og skrifað um þetta og þetta er náttúrulega til háborinnar skammar. Ég hélt _______________ að það væri bara gott mál ef menn reyndu að bjarga sér ofan á hitt. Ör- yrkjar fá þessar bætur vegna þess að þeir hafa kannski ekki sömu mögu- leika og aðrir að vinna alla vinnu. Maður stekkur ekkert á togara í einn túr til að redda einhverjum málum, eins og margur gerir. Maður verður bara að vinna við það sem maður getur unnið, annað er ekkert í boði. Þess vegna finnst mér afskaplega „Ég bjó til að mynda í húsi sem var á tveimur hæðum og ég skreið upp og niður stigana sem barn. Maður var bara látinn grenja niðri þangað til maður kom sjálfur upp.“ undarlegt að það þurfi að taka af þessum örorkubótum sem er nú ekki gæfulegt að lifa af fyrir þá sem eru ekkert að vinna. En það er vonandi að það fari að þokast eitthvað í þess- um málum á næstunni. Þá finnst mér einnig skorta mikið á félagslega aðstoð við fatlaða. Margt af þessu fólki fer varla út fyr- ir hússins dyr, fólk sem er á besta aldri.“ Grétar Pétur segir hins vegar miklar breytingar hafa átt sér stað síðan lottóið kom til sögunnar en það hafi gert Öryrkja- bandalaginu kleift að kaupa íbúðir fyrir öryrkja. „Þetta gerir það að verkum að nú er ekki endilega verið að smala öryrkjum inn í eitt hús eins og rollum inn í fjárhús, heldur eru þeir í íbúðum út um allan bæ innan um annað fólk.“ Grétar Pétur segist ekki þekkja marga fatlaða einstaklinga sem eigi mörg börn og lifi fjölskyldulífi eins og hann. „Það eru meira og minna einstaklingar sem búa í Hátúni. Ég þekki eina konu sem er spastísk eins og ég sem á barn, en ég er örugglega sá sem á flesta krakkana. En ætli maður láti þetta ekki duga, það er yf- irdrifið nóg að eiga sex krakka. Þjóðfélagið í dag býður ekkert upp á það að fólk eignist svona mikið af börnum, hvort sem um er að ræða öryrkja eða aðra. Það kostar stórfé að vera með börn í dag. Síðan á nú elsta dóttir mín von á barni innan skamms þannig að ég verð bráðum afi,“ segir Grétar Pétur að lokum og stoltið leynir sér ekki. Viðtal: Kristrún M. Heiðberg. éUErnst&Young BNDURSKODUN & RÁÐGIÖF 11

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.