Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Side 14
Klifur
Fatlaðir nemendur
og Háskóli íslands
Starfandi námsráðgjafar við Háskóla Islands. Taliðfrá vinstri: Mikael M. Karls-
son próf. í heimspeki og rekstrarstjóri Námsráðgjafar, Hrafnhildur Kjartansdóttir
námsráðgjafi, Auður R. Gunnarsdóttir námsráðgjafi, Magnús Stephensen fulltrúi,
Ragna Olafsdóttir námsráðgjafi og Arnfríður Olafsdóttir námsráðgjafi.
*
Háskóli Islands hefur leg-
ið undir ámæli á síðustu
misserum fyrir að sinna
ekki sem skyldi nemend-
um með sérþarfír. Blaða-
maður Klifurs leitaði til
Magnúsar Stephensen,
fulltrúa Námsráðgjafar
✓
Háskóla Islands og bað
hann um að segja frá stöð-
unni í málefnum fatlaðra
nemenda við háskólann.
Að sögn Magnúsar hefur
fjöldi þeirra sem þurfa á sér-
úrræðum að halda í námi við
HÍ farið stigvaxandi á síðustu árum.
Skólaárið 1995-1996 hafi Námsráð-
gjöf Háskóla íslands, NHÍ, liðsinnt
um það bil 60 nemendum með sér-
þarfir. „Það nýmæli var tekið upp
síðastliðið haust - að frumkvæði
Mikaels M. Karlssonar, rekstrar-
stjóra NHÍ, - að nemendur með sér-
þarfir gera nú sérstakan samning við
Háskóla íslands. í samningnum eru
sérþarfir hvers nemanda skilgreindar
í samráði við námsráðgjafa, raunhæf
námsáætlun er lögð fram og háskól-
inn og nemandinn skuldbinda sig
síðan til að framfylgja ákvæðum
samningsins eftir því sem kostur er
á. Skólaárið 1998-1999 voru gerðir
96 samningar af þessum toga. Þar
að auki er alltaf talsverður hópur
nemenda sem leitar eftir sérúrræðum
í prófum án þess að gera sérstakan
samning. Af þessum 96 nemendum
eru 50 með lesblindu, einn er fjöl-
fatlaður, fimm hreyfihamlaðir, þar af
tveir í hjólastól, 23 með langvarandi
veikindi, til að mynda flogaveiki,
gigtarsjúkdóma, sykursýki, veikindi
eftir slys og fleira, 14 eiga við sál-
ræn vandkvæði að glíma og þrír eru
verulega sjónskertir.“
Magnús segir úrræði fyrir þessa
nemendur vera margvísleg. I því
sambandi nefnir hann alhliða að-
stoðarmannakerfi, sem sé gjarnan
byggt á samnemendum þess fatlaða,
stuðningsviðtöl, ritari í prófum, inn-
lestur á hljóðsnældur, breyttar kröfur
um námsframvindu, lenging á próf-
tíma, tölvuherbergi fyrir þá sem taka
próf á tölvu, einrými fyrir þá sem
eiga við sálræn vandamál að etja,
prófkvíðanámskeið, námstækninám-
skeið, munnleg próf og skönnun
námsefnis.
Mun virkara ferli en áður
Magnús segir fyrrgreindan samning,
sem fatlaðir nemendur með sérþarfir
gera við háskólann, hafa haft mikil-
vægar breytingar í för með sér. „Nú
er í fyrsta skipti vel samhæft og
skipulegt samstarf milli allra þeirra
aðila innan háskólans sem með ein-
hverjum hætti geta greitt fyrir að-
gengi og úrræðum í námi og við
próftöku fatlaðra stúdenta. Fram-
kvæmdastjóri kennslusviðs, Þórður
Kristinsson, prófstjóri háskólans,
Hreinn Pálsson, námsráðgjafar há-
skólans, kennarar við HI og skrif-
stofustjórar allra deilda háskólans og
samstarfsmenn þeirra eru virkir þátt-
takendur í að framfylgja samningun-
um, hver og einn í samræmi við sitt
hlutverk. Þetta hefur leitt til þess að
allt það ferli sem fatlaðir nemendur
komast ekki hjá að ganga í gegnum
er mun virkara en áður. Síðan er það
á endanum hlutur Námsráðgjafar há-
skólans að hafa yfirsýn yfir fram-
kvæmdina og halda utan um og
miðla upplýsingum til viðkomandi
14