Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Qupperneq 19

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Qupperneq 19
Klifur til vinnu og lifa sjálfstæðu lífi, a.m.k. að svo miklu leyti sem vinnu er að fá. Atvinnuleysi í Bosníu er reyndar í kringum 50% um þessar mundir og í serbneska hlutanum er ástandið sérstaklega slæmt þar sem nærri 80% eru án atvinnu. Að sögn Huldar Magnúsdóttur, gæðastjóra Össurar hf., eru margir í Bosníu að fá sinn annan gervifót. Þeir fengu ódýran plastfót fyrst sem er eingöngu skammtímalausn. Starf Össurar hf. í Bosníu heyrir til undan- tekninga og væri ekki í gangi ef ekki kæmi til frumkvæði og atbeini ís- lenskra stjórnvalda í samstarfi við Alþjóðabankann. „Yfirleitt fara vör- ur okkar ekki til stríðshrjáðra landa, einfaldlega vegna þess að trygginga- stofnanir erlendra ríkja eru helstu viðskiptavinir okkar og heilbrigðis- kerfið í borgum á borð við Angóla, Mósambik og Afganistan er ekki í stakk búið til að bregðast við með þessum hætti.“ Börnum stafar mest hœtta af jarðsprengjum Þó að stríðinu í Bosníu-Hersegóvínu eigi að heita lokið eru hætturnar ekki úr sögunni. Jarðsprengjur leynast víða og því miður eru það börn og unglingar sem eru stærsti áhættu- hópurinn. „Það er erfiðara að gera börn meðvituð um hætturnar heldur en fullorðna. f leikjum gleyma börn auðveldlega boðum og bönnum full- orðna fólksins, þau vilja kanna nýja stigu og þá er hættan á næsta leiti,“ segir Huld. Að sögn Huldar eru aðstæður í Bosníu hrikalegar. „Fólk sem slas- aðist í stríðinu var drifið á spítala og fóturinn bara höggvinn af. Ekki margra klukkutíma aðgerð eins og hér heima og ekki verið að hugsa um taugaenda og húð. Ekki er hugað að því við aðgerð hvers konar gervifót sjúklingurinn þarf að henni lokinni. í ofanálag er mikið um ígerðir eftir aðgerð. Ljósi punkturinn er hins vegar sá að Bosníumönnum hefur tekist mjög vel að tileinka sér hina nýju stoðtækni okkar og Össur hf. er í mjög góðu samstarfi við stoðtækja- verkstæði í borgunum Sarajevo, Tuzla, Moztar, Zenica og Livno.“ Taliðfrá vinstri: Senad Terovic (26 ára), Celina Jasmina (39 ára), Adis Jahic (17 ára) og Edis Sadovic (25 ára) eru öll með gervifœtur. Adis Jahic var aðeins 10 ára gamall er hann varðjyrir sprengju. Samstarf Össurar hf við Rauða krossinn í Finnlandi Eftir að hafa verið í Bosníu gekk Össur hf. til samstarfs við Rauða krossinn í Finnlandi sem hafði reynslu í landinu, en þess má geta að finnski Rauði krossinn framleiðir sjálfur gervifætur. Saman hafa þess- ir aðilar skipulagt málin og í fram- haldi af því hve vel hefur tekist til um samstarf Össurar hf. við íslensk stjórnvöld og utanríkisráðuneytið, hefur finnska ríkið ákveðið að hluti af gjöf Finna til Bosníu verði sams konar og sú sem íslendingar hafa staðið að. I því skyni munu Finnar kaupa stoðtæki frá Össuri hf. Margrét G. Ormslev. Celina Jasmina stundar vinnu sína á skrifstofu í Sarajevo. 19

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.