Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Page 23
Klifur
Rauði krossinn:
Alþjóðleg •
myndlistarsamkeppi
Búlgarski Rauði krossinn
gengst á þessu ári fyrir al-
þjóðlegri myndlistar- og list-
munasamkeppni fyrir andlega og
eða líkamlega fötluð börn undir heit-
inu: „Hvernig líst þér á myndverkið
mitt?“
Þetta er í þrettánda skipti sem slík
samkeppni er haldin. Islensk börn
hafa verið meðal þátttakenda í fimm
síðustu skiptin. Þau hafa alltaf feng-
ið verðlaun og síðast þegar íslensk
börn tóku þátt komu fimm verðlaun
í hlut íslenskra barna.
Þau verk sem hljóta verðlaun í
keppninni í ár verða sýnd á sérstakri
sýningu í Búlgaríu vorið 2000.
Þúsundir barna um allan heim hafa
tekið þátt í þessari samkeppni og er
þetta góður vettvangur til þess að
koma verkum fatlaðra barna á fram-
færi.
Reglur fyrir keppnina:
1. Samkeppnin er opin andlega og
likamlega fötluðum börnum á aldr-
inum 5-15 ára.
2. Verkin mega vera eins og hér
greinir: a) málverk b) teikningar c)
samsett myndverk.
3. Hvert barn má senda mest tvö
verk.
4. Þema verkanna er óbundið.
5. Listaverkum skal pakkað flötum í
góðum pappír og stoppað vel með-
fram. Munum úr brothættum efnum
verður að pakka tryggilega í kassa
og merkja (RKÍ mun síðan fá fag-
mann til þess að líma myndirnar á
stíft „karton“ þannig að heildarsvip-
ur verði á öllum verkum). Merkja
þarf hvert listaverk og fylla út þátt-
tökueyðublað og getur hver skóli
eða stofnun ljósritað það fyrir sig.
6. Öll verkin verða metin og þeim
skipt í tvo flokka eftir fötlun lista-
mannanna.
7. Að samkeppninni lokinni verða
verkin ekki endursend heldur verða
þau notuð til sýningar og skreyting-
ar á barnadeildum sjúkrahúsa, með-
ferðarstofnana og skólum í Búlgar-
íu. Ungmennahreyfing Búlgarska
Rauða krossins getur einnig notað
sum verkanna í fjáröflunarskyni fyr-
ir fötluð eða munaðarlaus börn.
8. Búlgarski Rauði krossinn áskilur
sér rétt til eftirprentunar listaverk-
anna.
9. Verðlaun verða veitt fyrir bestu
verkin. Allir þátttakendur fá lítinn
minjagrip sem þakklætisvott.
Verkin þurfa að berast Rauða
krossi Islands fyrir 1. ágúst 1999.
Vonast er eftir þátttöku sem flestra.
Nánari upplýsingar veitir Konráð
Kristjánsson, deildarstjóri barna- og
ungmennamála hjá Rauða krossi ís-
lands. Netfang: (konrad @ red-
cross.is).
Vinsamlegast sendið listaverkin til:
Rauði kross Islands
Efstaleiti 9
103 Reykjavík
Merkt: Myndlistarkeppni '99.
23