Morgunblaðið - 11.12.2021, Page 1

Morgunblaðið - 11.12.2021, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 291. tölublað . 109. árgangur . Mitsubishi Eclipse Cross PHEV Nýja ljósið í skammdeginu HEKLA · sími 590 5000 · Laugavegi 170 · hekla.is/mitsubishisalur *Um áramót falla niður ívilnanir stjórnvalda og þar með niðurfellingar á virðisaukaskatti sem eru um 960.000 kr. Komdu í heimsókn í dag og gæddu þér á jólalegum veitingum. Tryggðu þér nýjan tengiltvinnbíl fyrir áramót á frábæru verði frá aðeins 5.490.000 kr. til afhendingar strax. Sparaðu 960.000 kr.* jolamjolk.is Stekkjastaur kemur í kvöld dagar til jóla 13 SVANDÍS HEITIR ÞVÍ AÐ VINNA Í ÁTT AÐ SÁTT ÖNNUR ÁSÖKUN BÆTIST VIÐ RITSTULDUR 2 & 8200 MÍLUR 32 SÍÐUR Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hagræðing sem næst fram með kaupum Seðlabanka Íslands á 7,33% hlut í Reiknistofu bankanna, RB, gæti skilað yfir 500 milljónum króna á ári að sögn Gunnars Jakobssonar varaseðlabankastjóra. „Með tilfærslu ARK- og SWIFT- kerfa til RB auk sameiningar við JCC, seðlaver kerfislega mikilvægu bankanna, næst fram hagræðing strax. Auk þess sem kostnaðurinn af kerfum í útleiðingu hleypur á nokkur hundruðum milljónum á ári. Áætla má því að hagræðingin sem um ræðir gæti skilað yfir 500 milljónum króna ári,“ segir Gunnar. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að miklu máli skipti að ná fram fyrrnefndu hagræði enda fylgi gríð- arlegur kostnaður þeim tölvukerfum sem notuð eru í greiðslumiðlun bank- anna. Kostnaður sem á endanum lendir á notendum bankaþjónustu. Skýr markmið Að sögn Gunnars kemur Seðla- bankinn inn í RB með skýr markmið, að nútímavæða innviði og útleiða kerfi á stórtölvu RB, að innleiða staðlaðar reglubækur um uppgjör og tæknistaðla að evrópskri fyrirmynd og að koma á innlendri óháðri smá- greiðslulausn (A2A) sem litið er á sem þjóðaröryggismál. Innleiðing A2A-lausna eflir þjóð- aröryggi og dregur úr því að reiða þurfi sig nær eingöngu á greiðslu- kortainnviði í eigu erlendra aðila, þ.e. Visa og Mastercard, að sögn Gunn- ars. „Eins og þjóðaröryggisráð hefur bent á er nauðsynlegt að búa til aðra leið samhliða greiðslukortainnviðum. Hún yrði þá um leið varaleið ef hin erlendu fyrirtæki myndu af einhverj- um ástæðum hætta að þjónusta Ís- land.“ Hálfs milljarðs hagræðing - Litið á smágreiðslulausn sem þjóðaröryggismál - Seðlabanki Íslands vill með kaupum á hlut í RB nútímavæða innviði og innleiða staðlaðar reglubækur Kaup » Greiðsluveitan ehf., dótt- urfélag Seðlabanka Íslands, seldi ARK kerfi sitt gegn 7,33% eignarhlut í RB. » RB keypti jafnframt SWIFT- þjónustu Greiðsluveitunnar. » Einnig hafa Mentis, Valitor og Salt Pay selt hluti sína í RB. » Nú einungis í eigu innláns- stofnana og Greiðsluveitunnar. MSÍ eignast 7,33% hlut í RB »22 Ný Suðurey VE kom til heimahafnar í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum um hádegisbil í gær. Ísfélag Vest- mannaeyja festi kaup á skipinu eftir að ljóst varð að uppsjávarskipin þrjú myndu líklega ekki duga til að ná öll- um þeim afla sem sem úthlutaður hefur verið á yfirstandandi loðnu- vertíð. Skipstjórinn Bjarki Krist- jánsson kveðst spenntur að fá að halda til veiða á Suðurey. Koma skipsins er meðal umfjöll- unarefna í sérblaði 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Þar má meðal annars finna ítarlegt viðtal við Svandísi Svavarsdóttur, nýjan sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, og viðtal við Georg Lárusson, for- stjóra Landhelgisgæslunnar, þar sem fram kemur að stórir þyrludrónar kunni að koma í gagnið á næsta ári. Ljósmynd/Tói Vídó Eyjar Ný Suðurey VE kemur til hafnar í Eyjum í gærmorgun. Ný Suðurey til heima- hafnar í gær Opið var í Bláfjöllum í gær og í fyrradag og skíðatímabilið því formlega hafið. Um 2.500 manns gerðu sér ferð upp í Bláfjöll í gær og að sögn rekstrarstjóra skíðasvæðanna var færið með besta mögulega móti. Viðraði vel til skíða framan af degi en þó tók að blása þegar líða fór að kvöldi. Útlit er fyrir að lokað verði um helgina. „Það vill enginn sitja í lyftu í 30m/sek.,“ sagði rekstrarstjóri Bláfjalla. Morgunblaðið/Eggert Kátir gestir búa sig undir brun um brekkur Bláfjalla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.