Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 2
Norðmaðurinn Magnus Carlsen
varði í gær heimsmeistaratitilinn í
skák þegar hann sigraði Rússann
Ian Nepomniachtchi í elleftu einvíg-
isskák þeirra um titilinn.
Carlsen, sem hefur einokað
heimsmeistaratitilinn frá árinu
2013, kvaðst „ánægður með tafl-
mennsku“ sína í einvíginu er hann
ræddi við blaðamenn í kjölfar sig-
ursins.
Með sigrinum tryggði Carlsen sér
7,5 vinninga gegn 3,5 vinningum
Nepomniachtchis.
180 milljónir í verðlaunafé
Carlsen hafði svart í gær. Skákin
var í jafnvægi fram í 22. leik þegar
Nepomniachtchi virtist leika illa af
sér. Carlsen var samt nokkuð lengi
að innbyrða vinninginn en eftir 49
leiki hafði Nepomniachtchi fengið
nóg og gafst upp.
Verðlaunaféð í einvíginu nam 2
milljónum evra, jafnvirði nærri 300
milljóna króna. Fær Carlsen 60%
heildarupphæðinni sem nemur 180
milljónum króna. »27
Carlsen heimsmeistari í skák
- Fimmti titillinn í röð - 180 milljónir króna í verðlaunafé
AFP
Yfirburðir Carlsen þykir meðal
fremstu skákmanna sögunnar.
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
JólaLottó!
Þessi og fleiri frábær flug- og hóteltilboð á
www.plusferdir.is
Ámaður ekki skilið gott tjill um jólin og um áramótin?
Ná stressinu úr skrokknum, mæta núllstillt inní næsta ár.
Bókaðu hjá okkur SólarLottó til Tenerife og við sendum þér
upplýsingarnar um hótelið nokkrum dögum fyrir brottför
SÓL
UMJÓLOG
ÁRAMÓT
STRÖNDIN
KALLAR!
SÓLARLOTTÓ TENERIFE
Brottför 23. desember - 06. janúar
flug, gisting og innritaður farangur.
149.900 kr.
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
Verð 172.900 kr. á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn
Verð 216.900 kr. á mann m.v. 2 fullorðna
til Tenerife
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
strönd sem hafi fyrr á tíð verið
„sjálfskipaður áningarstaður“ þegar
riðið var fyrir Klofning.
„Í Snorraskjólum er nokkuð um
að slegið hafi verið undir í barn og
stundum í ótíma eða til þess höfð
viðleitni, þótt ei mætti takast. Er
enn einhver mögnun eða útgeislun á
þessum áningarstað frá fyrri tíð. Rís
mönnum þar gjarnan hold að þarf-
lausu, einum á ferð. Einnig slaknar
konum þar skaut þó einsamlar séu.
Hafa orðið eftir í Snorraskjólum ein-
hverskonar taufur, sambærileg við
reimleika þar sem voveiflegir at-
burðir hafa átt sér stað, nema þvert
á móti.“
Í bók Bergsveins Svar við bréfi
Helgu, sem gefin var út árið 2010,
kemur að nokkru leyti fyrir sama
orðalag og í bók Finnboga, nema
Sigurður Bogi Sævarson
sbs@mbl.is
„Jú, líklega er þetta ritstuldur hjá
Bergsveini en hann vildi ekki viður-
kenna það á sínum tíma þegar ég
bar það upp á hann,“ segir Finnbogi
Hermannsson, rithöfundur í Hnífs-
dal. Nú í vikunni sté Bergsteinn
Birgisson fram og sakaði Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóra um að
hafa byggt nýja bók sína, Eyjan
hans Ingólfs, á verki sínu Leitin að
svarta víkingnum án þess að geta
þess í nokkru. Hugmyndir um land-
nám Íslands sem settar eru fram í
bókinni væru sínar en ekki Ásgeirs.
Sá andmælir þessum ásökunum.
Slaknar konum þar skaut
Árið 2003 sendi Finnbogi Her-
mannsson frá sér bókina Einræður
Steinólfs, sem var ævisaga Steinólfs
Lárussonar, bónda í Ytri-Fagradal á
Skarðsströnd í Dölum – jafnhliða því
að vera lýsing á ýmsum staðháttum
þar um slóðir. Í þeirri bók (bls. 106 )
segir þar m.a. frá Ballará á Skarðs-
hvað Snorraskjól er nú kennt við
Freyju. Í bókinni segir (bls. 24):
„Síðan fór ég á lullinu fram hjá
Freyjuskjóli þar sem mönnum rís
hold og konum slakna skaut, að þarf-
lausu einum á ferð, enda um gamlan
áningarstað að ræða þar sem gjarna
var slegið undir í barn. Þar í þeim
fornu taufum fór ég hægt og hugsaði
til þín.“
Ætti að vera stoltur af
Finnbogi Hermannsson segir að
nokkuð sé um liðið frá því athygli sín
á þessari frásögn var vakin. Til sín
hafi hringt glögg kona sunnan af
Álftanesi og sagt sér frá þessu.
Hann hafi þó ekki gert neitt í málinu
enda seinþreyttur til vandræða.
„Eftir því sem Bergsveini Birgis-
syni hefur vaxið fiskur um hrygg
sem rithöfundi og fræðimanni ætti
ég eiginlega að vera stoltur af því að
hann skuli hafa þurft að stela mínum
textum. Ég hef heldur enga siða-
nefnd til að klaga í, hvað þá dómstóla
á Norðurlöndum sem einn skáldyrð-
ingur á 66 gráðum norður. Ég hef
kosið að kalla mig orðasmið eða
skáldyrðing eins og sá guðsvolaði
trosberi Magnús Hj. Hjaltason, alías
Ólafur Kárason Ljósvíkingur,“ sagði
Finnbogi Hermannsson við Morg-
unblaðið í gær. »8
Orðalag sama og líklega ritstuldur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Höfundur Finnbogi Hermannsson hér með bók sína Einræður Steinólfs, ævi-
sögu og héraðslýsingu úr Dölum, frá 2004, sem hann endurútgaf árið 2019.
Rithöfundur Bergsveinn sendi frá
sér Svar við bréfi Láru árið 2010.
- Bergsveinn gagnrýndur - Setningar úr Svari við bréfi Helgu enduróma lýsingar í Einræðum
Steinólfs - Engin siðanefnd til að klaga í og seinþreyttur til vandræða, segir Finnbogi Hermannsson
Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnaði í
fyrradag og var þá einnig opið á
svæðinu í gær. Einar Bjarnason,
rekstrarstjóri skíðasvæðanna, segir
tímabilið fara afar vel af stað en um
tvö þúsund og fimm hundruð manns
gerðu sér ferð upp í Bláfjöll í gær.
„Við erum bara gríðarlega sátt við
þetta svona miðað við að þetta er
bara dagur tvö á tímabilinu og
margir með hugann við jólin,“ segir
Einar í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir færið hafa verið með
eindæmum gott, bæði í gær sem og í
fyrradag. Raunar svo gott að hann
sagðist varla muna eftir sambæri-
legu færi hér á landi.
„Það er bara langt síðan það hefur
verið svona gaman á skíðum, manni
leið eiginlega bara eins og maður
væri í Ameríku en ekki í Bláfjöll-
um.“
Vegurinn ófær um stund
Tilkynning barst frá skíðasvæðinu
um áttaleytið í gær þess efnis að
vegurinn upp að svæðinu væri ófær.
Þá festist bíll á veginum, enda var
afar hált og snjór á veginum. Einar
segir þó að vel hafi gengið að leysa
það og vegurinn því lokaður í ein-
ungis tíu mínútur. „Þetta hefði getað
verið alveg ömurlegt en svo tók
þetta ekki nema um tíu mínútur svo
þetta slapp mjög vel.
Undirbúningsvinna fyrir skíða-
tímabilið hefst að jafnaði í maí að
sögn Einars. Þá sé sumarið nýtt í
viðgerðir á tækjabúnaði auk al-
menns viðhalds á húsum og slíku.
„Það þarf að smyrja allan búnað
og viðhalda öllu svæðinu. Það gerum
við almennt að sumri til, svo þegar
fyrsti snjórinn fellur þá klárum við
undirbúninginn. Við erum í raun í
viðhaldsvinnu alla níu mánuðina sem
alla jafnan er lokað.“
Sóttvarnir ekki til trafala
Bláfjöll hafa leyfi til þess að taka á
móti 75% af þeim fjölda sem venju-
lega væri leyfi fyrir á svæðinu vegna
takmarkana. Einar segir að sótt-
varnaráðstafanir séu ekki til neinna
trafala eins og stendur.
„Við bara biðjum fólk um að virða
nándarreglur og bera andlitsgrímu
þegar þess er þörf.“
Spurður hvort opið verði á svæð-
inu um helgina segir hann: „Við vær-
um svo sannarlega til í það en ef
marka má veðurspá þá mun enginn
vilja vera hér á morgun, enda spáð
hálfgerðu fárviðri á svæðinu.“
Morgunblaðið/Eggert
Vel mætt í fjallið Færið var með fádæma góðu móti í Bláfjöllum í gær.
Man varla eftir
jafn góðu færi
- Fyrstu tveir dagarnir lofa mjög góðu