Morgunblaðið - 11.12.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Áður en kom að sýningunni í
London höfðu aðstandendur Dýrs-
ins verið í Bandaríkjunum með sýn-
ingar og móttökur fyrir Ósk-
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta hefur eiginlega verið æv-
intýraleg sigurganga til þessa,“ seg-
ir Hrönn Kristinsdóttir, annar
framleiðandi
kvikmyndarinnar
Dýrsins sem var
sett í sýningar í
kvikmynda-
húsum í Bret-
landi í gær.
Hrönn og aðrir
aðstandendur
myndarinnar
voru viðstaddir
hátíðarfrumsýn-
ingu á Dýrinu í
London á miðvikudag en fyrr í vik-
unni hafði Pete Bradshaw, gagnrýn-
andi The Guardian, farið lofsam-
legum orðum um myndina í fjögurra
stjörnu dómi. „Það var fullt hús og
góð stemning. Gestirnir voru allir
með lambagrímur sem var mjög
skemmtilegt,“ segir Hrönn um
frumsýninguna sem var í hinu forn-
fræga Ritzy-bíói.
arsakademíuna en myndin verður
sem kunnugt er framlag Íslands til
Óskarsverðlaunanna í ár. „Dreifing-
arfyrirtæki okkar í Bandaríkjunum,
A24, setti upp flotta herferð og telur
að við eigum séns að komast á
listann,“ segir Hrönn en 21. desem-
ber kemur í ljós hvaða 10-15 myndir
eiga möguleika á tilnefningu sem
besta erlenda myndin á Óskarnum.
Í febrúar er svo tilkynnt hvaða
fimm myndir hljóta tilnefningu.
Dýrið hefur notið mikillar vel-
gengni í Bandaríkjunum frá því
myndin var frumsýnd þar í landi í
október. Myndin hefur tekið inn um
2,7 milljónir dollara í miðasölu og
yfir 2,8 milljónir dollara á heims-
vísu. Það jafngildir um 365 millj-
ónum íslenskra króna. „Það er
óvenjulegt fyrir skandinavískar
myndir og myndir sem eru ekki á
ensku að fá slíka aðsókn í Banda-
ríkjunum. Þetta eru ekki peningar
sem renna beint til okkar. Það er
markaðskostnaður og ýmislegt ann-
að sem gengur fyrir,“ segir Hrönn.
Dýrið var sýnd í 578 sölum í Banda-
ríkjunum í upphafi en gekk svo vel
að sölunum var fjölgað í 800. Hún er
nú aðgengileg á efnisveitum. „Við
vorum í góðum félagsskap með
James Bond og Dune í bíóunum. Við
vorum ánægð með það.“
Um sex þúsund sáu Dýrið í kvik-
myndahúsum á Íslandi og játar
Hrönn aðspurð að hún hefði gjarnan
viljað að þeir væru fleiri. Myndin er
nú komin á efnisveitur hér.
Fram undan eru svo frumsýn-
ingar í fleiri löndum. „Frakkar ætla
að gera hana að jólamynd og frum-
sýna 29. desember. Pólland opnar á
nýársdag sem er mjög góður tími.
Hún er í sýningum á Spáni núna og
svo leiðir eitt af öðru. Það er nú
þegar búið að selja hana um allan
heim, nema til Kína. Það kemur
kannski síðar,“ segir Hrönn enn
fremur.
„Ævintýraleg sigurganga“ Dýrsins
- Kvikmyndin var frumsýnd í London í vikunni - Vel heppnuð kynningarherferð fyrir Óskarsverð-
launin að baki - Hefur tekið inn 365 milljónir króna í miðasölu - Fer í sýningar víða í Evrópu
AFP
Stemning Gestir á frumsýningu Dýrsins í London settu upp lambagrímur
fyrir sýningu. Myndinni var vel tekið og er nú komin í almennar sýningar.
Hrönn
Kristinsdóttir
Söngvarinn og tónlistarmaðurinn
Birkir Blær Óðinsson vann í gær-
kvöldi sænsku Idol-söngkeppnina
eftir æsispennandi og glæsilega úr-
slitakeppni. Keppnin var sýnd á
sænsku sjónvarpsstöðinni TV4.
Birkir og Jacqline Mossberg
Mounkassa kepptu til úrslita og
þóttu bæði standa sig vel, en þau
fluttu fjölda laga á lokakvöldinu.
Saman tóku þau lagið The Days
eftir plötusnúðinn og tónlistar-
manninn Avicii sem lést árið 2018.
Birkir tók í kjölfarið lögin All I Ask
eftir Adele og It’s A Man’s World
með James Brown.
Í þriðju og síðustu atrennu tók
parið lagið Weightless hvort í sínu
lagi en það lag var samið sér-
staklega fyrir keppnina í ár.
Báðir keppendur hlutu mikið lof
frá bæði áhorfendum og dómurum
en Birkir hafði betur að lokum í
símakosningu.
Birkir Blær sigraði í sænsku Idol-keppninni
Skjáskot/Instagram Birkis Blæs
Stjarna Birkir Blær söng meðal annars All
I Ask eftir Adele og hlaut mikið lof fyrir.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur fellt úr gildi
ákvörðun byggingarfulltrúa Sveit-
arfélagsins Árborgar um að sam-
þykkja byggarleyfi fyrir fjórbýlis-
hús á Selfossi. Húsið er fullbyggt,
íbúðirnar seldar og fólkið flutt inn.
Bæjarstjóri vonast til að hægt sé að
leysa úr málinu án þess að gerð
verði krafa um niðurrif nýbyggða
hússins. Úrskurðarnefndin hefur
áður látið deilumál við götuna til sín
taka.
Í skipulagi hverfisins er fyrst og
fremst gert ráð fyrir einbýlishúsum.
Verktaki sem keypti lóðina Fagur-
gerði 12 óskaði í byrjun síðasta árs
eftir leyfi til byggingar fjórbýlis-
húss á lóðinni og var það samþykkt
í bæjarstjórn að loknu skipulags-
ferli og grenndarkynningu. Eigandi
næsta húss gerði athugasemdir við
áformin á ýmsum stigum og kærði
deiliskipulagsbreytingu og útgáfu
byggingaleyfis. Úrskurðarnefndin
vísaði frá kröfunni um ógildingu
deiliskipulagsbreytingar en úr-
skurðaði að felld skyldi úr gildi
ákvörðun byggingarfulltrúa Ár-
borgar um að gefa út byggingar-
leyfi fyrir fjórbýli. Rökin voru eink-
um þau að sveitarstjórn hafi ekki
samþykkt byggingaleyfið eins og
áskilið sé en það var samþykkt á af-
greiðslufundi byggingafulltrúa með
þeim fyrirvara að brugðist yrði við
athugasemdum kæranda. Því sé
byggingaleyfið ekki í samræmi við
gildandi skipulag.
„Leiðinlegt mál“
Gísli Halldór Halldórsson bæjar-
stjóri segist eiga eftir að fara betur
yfir niðurstöðu málsins með lög-
fræðingum og byggingarfulltrúa.
Hann segist þó ekki hafa átt von á
þessari niðurstöðu. „Þetta er leið-
inlegt mál. Það urðu hjá okkur mis-
tök í stjórnsýslunni við að afgreiða
málið og svara erindum kæranda
sem gerir málið verra. Ástæða er til
að biðja hlutaðeigendur afsökunar á
því,“ segir Gísli Halldór.
Spurður um leiðir til lausnar seg-
ir bæjarstjórinn að vonandi verði
hægt að vinna úr málinu á sem
mildilegastan hátt. Vísar hann með
því til þess að umsóknin verði unnin
upp á nýtt, eins og húsið væri
óbyggt. Segir hann að á síðustu ár-
um hafi verið horfið frá því að gera
kröfur um niðurrif mannvirkja þótt
mistök hafi verið gerð. Segir hann
að leitað verði samráðs við stjórn-
völd um það hvernig bænum sé
heimilt að bregðast við.
Deiliskipulag við Fagurgerði hef-
ur áður komið til kasta sömu úr-
skurðarnefndar. Á árinu 2010 felldi
hún úr gildi ákvörðun Árborgar um
að heimila stækkun á húsi númer 1
og heimila byggingu húss á lóð
númer 3. Taldi nefndin að skort
hefði lagaskilyrði til þess að gera
deiliskipulag fyrir lóðirnar án þess
að jafnhliða væri að lágmarki unnið
og samþykkt deiliskipulag fyrir
götureitinn í heild.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Selfoss Fjórbýlishúsið við Fagurgerði 12, sem ekki er með gilt byggingarleyfi. Nágranninn býr í húsinu fjær.
Byggingarleyfi full-
gerðs húss fellt úr gildi
- Bæjarstjórinn á Selfossi vonast til að hægt verði að leysa
úr málinu án þess að gerð verði krafa um niðurrif hússins