Morgunblaðið - 11.12.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
H
ér er aldrei vont veð-
ur,“ segir Sigurður
Ægisson á Siglufirði
þegar hann er spurð-
ur hvernig viðrar fyr-
ir norðan. „Ef það er einhver væta
þá kalla Sigfirðingar það sóldögg,“
bætir hann við, vitnandi í gamlan
vin. Sigurður er mikill fugla-
áhugamaður, hefur fylgst með og
myndað fugla í áraraðir og gefið út
bækur um þá, nýlega kom út Fugla-
dagbókin 2022, Fuglar á Íslandi og
árstíðirnar fjórar. Þar getur fólk
skráð tegundir og fjölda fugla þá
daga sem því sýnist, hvernig viðrar
og svo framvegis. Auk þess er í upp-
hafi hverrar viku mynd og fróðleikur
um 52 fugla. Sigurður segist hafa
skrifað þessa fugladagbók því margt
fólk á Íslandi gefi fuglum að stað-
aldri að éta í sínum görðum og fylg-
ist vel með þeim.
„Þrjátíu þús-
und manns eru í
þremur hópum á
fésbók sem
tengdir eru fugl-
um, tveir hópar
fuglaljósmyndara
og einn hópur
sem heitir fugla-
fóðrun. Útgáfa
fugladagbók-
arinnar á upphaf sitt í því að ég og
Mikael sonur minn vorum staddir á
Höfn í Hornafirði fyrir nokkrum ár-
um, en þar var flækingsfugl sem
okkur vantaði að sjá. Sá heitir græn-
finka og þetta var þriðja atrenna
okkar feðga til að sjá og mynda slík-
an fugl. Við lögðum á okkur langt
ferðalag, það er sjö tíma akstur héð-
an til Hafnar og annað eins til baka.
Fólkið á Höfn, sem sá grænfinkuna í
garði sínum, bauð okkur inn í hús til
sín svo við gætum myndað fuglinn.
Þar á borði var sænsk fugladagbók,
sem ég féll fyrir. Ég sá hvað það
væri snjallt að geta skráð hjá sér
hvaða fugla maður sér hvenær og
hversu marga. Sjálfur gef ég fuglum
að éta allt árið og þarf nauðsynlega
svona bók, því það snjóar fljótt yfir
minnið.“
Litlir fuglar ótrúlega sterkir
Á Íslandi verpa um 75 tegundir
fugla að staðaldri en rúmlega 400
fuglar hafa sést hér.
„Helmingur þeirra fimmtíu og
tveggja fugla sem eru í fugladagbók-
inni eru íslenskir varpfuglar en
helmingur flækingar. Mig langaði að
beina kastljósinu að flækingsfuglum,
því við fáum hingað til lands fugla frá
Norður-Ameríku, Evrópu, Litlu-
Asíu og enn sunnar. Ég setti hjá
flækingsfuglunum upplýsingar um
hvar og hvenær þeir hafa sést hér á
landi, og annað um þá. Til dæmis var
hettusöngvara fyrst getið sem
hrakningsfugls á Íslandi 1939, en
eftir það hefur hann verið árviss
gestur. Ég merkti einmitt slíkan fugl
árið 2016 á Siglufirði og hann lifði af
norðlenskan vetur því hann náðist
tvisvar um veturinn. Hann flaug svo
heim að vori, því hann kom fram í
júlí 2017 í Innverness í Skotlandi.
Þetta er stórmerkilegt, því fram að
því var talið að fyrir svona lítinn fugl
sem kemur yfir Atlantsála í óveðrum
síðla árs, með vindinn í bakið, væri of
mikil þrekraun að fljúga til baka. Ég
og maðurinn sem náði honum í Skot-
landi höfum skrifast á allar götur
síðan, enda myndast oft góður vin-
skapur millli fuglaáhugafólks víða
um heim. Við tölumst við í hverri
viku, hann er afkastamikill merk-
ingamaður og við Mikael sonur minn
eigum heimboð þar.“
Með útblásnar kinnar
Kjarnbítur er einn af merkilegu
flækingunum sem Sigurður segir frá
í fugladagbókinni, en hann er líka
kallaður kirsuberjafugl.
„Þetta er alveg mögnuð skepna
sem ég sá fyrst á Stöðvarfirði. Hann
er með ótrúlega öflugan gogg, þykk-
an og mikinn, og vöðvarnir sem loka
goggnum ná í kringum hauskúpuna.
Hann er með öfluga kjálkavöðva og
lítur því út fyrir að vera með út-
blásnar kinnar. Kjarnbítur getur
brotið með sínum gogg grjótharða
steina úr aldinum, meðal annars
ólífukjarna, sem lætur ekki undan
fyrr en við 50 kílóa þrýsting.“
Flotmeisan er einnig sára-
sjaldgæfur flækingur, sem aðeins
hefur sést fjórum sinnum hér á
landi.
„Til er ljósmynd af henni þar
sem hún er að bora sig í gegnum ál-
tappa á rjómaflösku, hún er að ná
sér í feitmeti,“ segir Sigurður og
bætir við að ólíkt því sem margir
halda þá sé óhætt að gefa fuglum
brauð, en það verði þó fyrst að bleyta
það upp í olíu eða feitmeti, til dæmis
ósöltuðu smjöri. Sigurður nefnir
ormskríkjuna sem annað dæmi um
merkilegan flækingsfugl, en hún hef-
ur aðeins sést þrisvar á Íslandi.
„Hún sást fyrst 1956 á Snæfells-
nesi og ekki aftur fyrr en árið 2019
við Reykjanesvita. Sú þriðja sást í
Hrísey á Eyjafirði það sama ár, en
enginn skilur hvernig hún komst
þangað, sennilega hefur hún fokið.“
Markaði upphaf litlaskatts
Sigurður segir einnig í fugla-
dagbókinni frá þjóðtrú sem tengist
fuglunum sem þar er að finna, ef ein-
hver er. Gott dæmi þar um er hels-
ingi, fagur fugl sem hefur viðkomu á
Íslandi vor og haust á leið sinni til og
frá vetrarstöðvum á Bretlands-
eyjum, aðallega í Skotlandi.
„Hér áður fyrr var ýmist talið
að helsingi yxi á lifandi trjám og
kæmi þá úr aldinum þeirra, eða á
dauðum viði, bátum, skipum og reka-
trjám. Koma hans á vorin markaði í
Skagafirði upphaf litlaskatts, sem
var dálítil aukamáltíð, nokkru á und-
an morgunmat hjá mannfólkinu.“
Sigurður segir að bókin smell-
passi sem hliðarbók í náttúrufræði-
kennslu í skólum.
„Kennarar geta farið út með
krakka og fugladagbækur og hjálpað
þeim að bera kennsl á fugla og skrif-
að í bókina hvað þau sjá, nú eða fjöl-
skyldan heima við. Einnig er fróð-
legt fyrir þau að læra um gömlu
mánuðina, þorra, góu, hörpu, ýli og
svo framvegis, en ég hef merkt inn í
bókina hvaða dag hver slíkur mán-
uður hefst, en litirnir fjórir í bókinni
miðast við misseristalið. Mig langar
að vekja áhuga fólks á fuglum með
þessari bók, rétt eins og öðrum bók-
um sem ég hef skrifað,“ segir Sig-
urður sem sendi í fyrra frá sér veg-
lega bók, Íslensku fuglarnir og
þjóðtrúin.
„Meiningin hjá mér er að koma
með fugladagbók árlega og breyta
þá um fugla sem birtast á myndum í
henni og um þá fjallað.“
Ljósmynd/Rostislav Kralik
Ormskríkja Sjaldgæfur flækingsfugl, aðeins sést þrisvar hér.
Ljósmynd/ Sigurður Ægisson
Flotmeisa Sárasjaldgæf á Íslandi, oft í skrýtnum stellingum.
Ljósmynd/Paul Ellis
Helsingi Áður hélt fólk að hann yxi á lifandi trjám og bátum.
Ormskríkja aðeins sést þrívegis
Flækingsfuglar eru helmingur þeirra fugla sem prýða
nýja fugladagbók Sigurðar Ægissonar.
„Kennarar geta farið út með krakka og fugladagbækur
og hjálpað þeim að bera kennsl á fugla og skrifað í bók-
ina hvað þau sjá, eða fjölskyldan heima við.“
Ljósmynd/Michal Hykel
Kjarnbítur Með ógnarsterkan gogg hvers vöðvar ná í kringum hauskúpu.
Sigurður
Ægisson
Kærleikskúlan þetta árið heitir Eitt ár, eftir Sirru Sigrúnu
Sigurðardóttur. Sirra er nítjándi listamaðurinn sem tekst á
við það að tengja hugmyndir sínar og listræna sköpun við
Kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Mark-
miðið með sölu kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra
barna og ungmenna. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur
til sumarbúða Styrktarfélagsins í Reykjadal.
„Kúlan er umvafin teikningu sem lýsir sólargangi eftir
árstíma á Íslandi,“ segir Sirra. Handhafi Kærleikskúlunnar
að þessu sinni er Karl Guðmundsson listamaður.
Sirra Sigrún Sigurðardóttir hannaði Kærleikskúluna 2021
„Eitt ár“ heitir kúlan núna