Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík
Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal
Þrátt fyrir einhverjar takmark-
anir í þjóðfélaginu er ýmislegt að
gerast í Mýrdalnum. Ferðamenn
hafa verið duglegir að heimsækja
svæðið í allt sumar og fram eftir
hausti.
- - -
Víkurskóli fékk heimsókn
nú í haust frá samstarfsskólum
sínum innan Erasmus+-
verkefnisins. Þetta er samstarfs-
verkefni milli Víkurskóla og fimm
annarra skóla frá Þýskalandi,
Finnlandi, Póllandi, Grikklandi og
Kanaríeyjum. Það eru nemendur
úr 9. og 10. bekk sem taka þátt í
því ásamt kennurum sínum. Aðal-
áhersla verkefnisins er heilbrigði
og heilsuefling og er það unnið í
samstarfi við nærsamfélagið í
hverju landi. Hlutverk Víkurskóla
í verkefninu er að skoða og
styrkja sjálfsmynd nemenda og
efla þrautseigju. Einnig fengu er-
lendu nemendurnir að kynnast ís-
lenskri náttúru og skoða helstu
ferðamannaperlur Suðurlands
auk þess að kynna sér starfsemi
Kötluseturs og Skaftfellingabúðar
og svo að sjálfsögðu heimsóttu
þeir félagsmiðstöðina OZ í Vík.
- - -
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps
hefur samþykkt leyfi fyrir rekstri
á stöðvalausri deilingu fyrir
Hopp-rafhlaupahjól, en Hopp hef-
ur rekið starfsemi sína á 10 stöð-
um í þremur löndum. 10 mínútna
ferð á Hopp-hjóli kostar 400
krónur. Fyrirhugað er að opna
með 35 hjólum en hægt að fjölga
ef eftirspurn verður meiri. Þetta
er góð lausn til að minnka bíla-
umferð innan þorpsins og minnka
þar með útblástur.
- - -
Steinskipið sem fannst á
Fagradalsheiði í sumar hefur haft
töluvert aðdráttarafl í sumar,
fjöldi fólks farið til að skoða það.
Minjastofnun hefur þó ekki enn
fundið tíma til að kanna það nán-
ar og vita hvort einhverjar vís-
bendingar séu um hver tilgangur
þess hafi verið, og hvort eitthvað
af þeim hugmyndum eru trú-
legar sem fram hafa komið í
sambandi við það, þ.e allt frá því
að vera drykkjarker fyrir búfén-
að, viti fyrir sjófarendur, lækn-
ingaker, naglafar eða vera frá
tímum Papanna á Íslandi. Alla-
vega er ljóst að einhver lagði
mikla vinnu í að höggva skál í
blástein fyrir það löngu að ekki
eru einu sinni til munnmæla-
sögur um notkun þess
Margir hafa skoðað dularfulla steinskipið
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Samstarf Nemendur í Víkurskóla og gestir frá evrópskum skólum sem
taka þátt Emasmus+ verkefninu „Fit for life“ í Leikskálum í Vík í Mýrdal.
Ráðgáta Dularfulla steinskipið á Fagradalsheiði er enn þá mikil ráðgáta.