Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Kartell Skeifan 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is LÝSTU UPP SKAMMDEGIÐ BOURGIE Glær 39.900,- Kopar 59.900,- 11. desember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.32 Sterlingspund 171.92 Kanadadalur 102.62 Dönsk króna 19.822 Norsk króna 14.515 Sænsk króna 14.371 Svissn. franki 141.11 Japanskt jen 1.1497 SDR 182.16 Evra 147.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.3513 « Fasteignafélagið Reitir hækkaði mest í verði í gær í Kauphöll Íslands, eða um 2,05% í 33 milljóna króna við- skiptum.Gengi fé- lagsins er nú 87,25 krónur hver hlutur. Úrvalsvísitala aðallista lækkaði annars um 0,4% í gær. Önnur mesta hækkunin í gær varð á bréfum tryggingafélagsins VÍS, eða um 1,96% í 593 milljóna króna við- skiptum. Er gengi félagsins núna 20,8. Þriðja mesta hækkunin á mark- aðnum í gær varð á bréfum annars fast- eignafélags, Eikar. Fyrirtækið hækkaði um 1,65% í þriggja milljóna króna við- skiptum. Er gengi félagsins nú 12,3. Reitir hækkuðu mest í kauphöllinni í gær Guðjón Auðunsson forstjóri Reita. STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Seðlabanki Íslands hefur gerst eig- andi á ný í Reiknistofu bankanna, RB, fyrirtæki sem rekur helstu fjár- málainnviði íslenska bankakerfisins. Kaupin eru gerð til að treysta rekstur og framþróun innviða greiðslumiðlunar hér á landi, þar með talið millibankakerfi Seðlabank- ans, eins og Gunnar Jakobsson vara- seðlabankastjóri og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri útskýra fyrir Morgunblaðinu. Samhliða kaupunum verða breytt- ar áherslur í starfsemi fyrirtækisins með það að markmiði að efla öryggi og stuðla að aukinni skilvirkni og hagkvæmni í rekstri fjármálainn- viða, að sögn Gunnars. Greiðsluveitan seldi ARK Kaupin fóru þannig fram að Greiðsluveitan ehf., dótturfélag Seðlabanka Íslands, seldi ARK kerfi sitt gegn 7,33% eignarhlut í félaginu. RB keypti jafnframt SWIFT-þjón- ustu Greiðsluveitunnar. Einnig hafa Mentis, Valitor og Salt Pay selt hluti sína í RB. Við kaup og sölu á hlutum var not- ast við sama verðmat í öllum tilvik- um sem byggði á bókfærðu verði RB og þeirra kerfa sem skiptu um eig- endur, að sögn Gunnars. Jafnframt verður starfsemi JCC ehf., seðlavers kerfislega mikilvægu bankanna, sameinuð rekstri RB. Í eigu innlánsstofnana RB verður eftir breytinguna ein- ungis í eigu innlánsstofnana og Greiðsluveitunnar, sem fer með eignarhlut Seðlabanka Íslands. Að sögn Gunnars kemur Greiðslu- veitan inn í RB með skýr markmið, að nútímavæða innviði og útleiða kerfi á stórtölvu RB, að innleiða staðlaðar reglubækur um uppgjör og tæknistaðla að evrópskri fyrirmynd, og að koma á innlendri óháðri smá- greiðslulausn (A2A) sem litið er á sem þjóðaröryggismál. „Aðkoma Greiðsluveitunnar sem hluthafa í RB er hugsuð tímabundin og verður endurskoðuð að þremur árum liðn- um með hliðsjón af þeim markmiðum sem stefnt er að,“ segir Gunnar. Gunnar verður formaður Gerð verður breyting á stjórn RB og mun Gunnar taka við sem formað- ur stjórnar. Aðrir stjórnarmenn eru fulltrúar kerfislega mikilvægra banka. Að auki er kosinn einn óháður stjórnarmaður. Með innkomu sinni telur Greiðslu- veitan að betur verði hægt að tryggja forgangsröðun verkefna og virka stefnumótun. Eftirfylgni í þró- un og rekstri fjármálainnviða hefur ekki verið sem skyldi hér á landi síð- astliðinn áratug vegna ónógs sam- starfs um innviði sem standa utan samkeppnisumhverfis, eins og Gunnar útskýrir. „Með tilfærslu ARK- og SWIFT- kerfa til RB auk sameiningar við JCC næst fram hagræðing strax, auk þess sem kostnaðurinn af kerf- um í útleiðingu hleypur á nokkur hundruð milljónum á ári. Áætla má því að hagræðingin sem um ræðir gæti skilað yfir 500 milljónum króna á ári.“ Spurður um í hverju hagræðingin felist segir Gunnar að lögð verði áhersla á að ljúka innleiðingu SOPRA innlánskerfa og útleiðingu kerfa af stórtölvu. „Síðastliðin ár höfum við verið með tvöföld kerfi í rekstri á sumum sviðum og það hef- ur verið mikil sóun.“ Afleiðing þess að taka upp alþjóð- legar reglubækur og staðla er að sögn Gunnars sú að íslenskir fjár- málainnviðir geta tengst erlendum greiðslumiðlunarkerfum með hag- kvæmari og skilvirkari hætti til hagsbóta fyrir fyrirtæki og einstak- linga. „Með breytingunni færum við okkur því nær alþjóðlegri þróun í greiðslumiðlun. Hér er bankinn að stíga inn til að hafa meiri og jákvæð áhrif til framtíðar.“ Eflir þjóðaröryggi Innleiðing A2A-lausna eflir þjóð- aröryggi og dregur úr því að reiða þurfi sig nær eingöngu á greiðslu- kortainnviði í eigu erlendra aðila, þ.e. Visa og Mastercard, að sögn Gunnars. „Eins og þjóðaröryggisráð hefur bent á er nauðsynlegt að búa til aðra leið samhliða greiðslukorta- innviðum. Hún yrði þá um leið vara- leið ef hin erlendu fyrirtæki myndu af einhverjum ástæðum hætta að þjónusta Ísland.“ Til að útskýra þessa A2A-greiðslu- miðlunarleið nánar yrði mögulega um að ræða kerfi sem nýttu sér milli- færslur í innláns- og millibankakerf- um. „Til dæmis væri hægt að þróa app, eða láta fólk skanna QR-kóða úti í búð. Þessi leið yrði nýr og ódýr- ari valkostur. Okkur vantar einungis „síðasta metrann“, þ.e. greiðsluvið- mótið, svo þessi greiðsluleið verði nothæf og aðgengileg. Þá verður Ís- land ekki lengur eins háð innviðum í eigu erlendra stórfyrirtækja.“ Hagræðið skiptir máli Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ítrekar að það skipti miklu máli að ná fram fyrrnefndu hagræði enda fylgi gríðarlegur kostnaður þeim tölvu- kerfum sem notuð eru í greiðslumiðl- un bankanna. Kostnaður sem á end- anum lendir á notendum bankaþjónustu. „Arðsemi félagsins skal vera hófleg og verðlagning gagnsæ. Það er ekki markmið félags- ins að greiða arð til hluthafa heldur að verja hagnaði í þróun og upp- byggingu fjármálainnviða,“ segir Ásgeir. Hann segir að RB geti ekki tekið að sér ný verkefni án þess að nýr vettvangur Seðlabankans um framþróun fjármálainnviða, svokall- aður framtíðarvettvangur, beini verkefnum til RB. „Þetta er gríðarlega jákvætt skref fyrir íslenskan fjármálamarkað, fyrirtæki og fólkið í landinu,“ segir Gunnar að lokum. SÍ eignast 7,33% hlut í RB Grunnkerfi RB rekur helstu fjármálainnviði íslenska bankakerfisins. - Treysta rekstur og framþróun innviða greiðslumiðlunar hér á landi - Vill auka skilvirkni og minnka sóun - Eflir þjóðaröryggi- Dregur úr því að reiða þurfi sig nær eingöngu á Visa og Mastercard Gunnar Jakobsson Ásgeir Jónsson Ný stjórn » Stjórnina skipa Gunnar Jak- obsson varaseðlabankastjóri, Anna Bjarney Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, fjármála og tækni hjá RÚV, Halldóra G. Steindórsdóttir, hópstjóri í hugbúnaðarlausn- um á upplýsingatæknisviði Landsbankans, Riaan Dreyer, frkvstj. upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka, og Styrmir Sig- urjónsson, frkvstj. upplýsinga- tæknisviðs Arion banka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.