Morgunblaðið - 11.12.2021, Page 22
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Kartell
Skeifan 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
LÝSTU UPP
SKAMMDEGIÐ
BOURGIE
Glær 39.900,-
Kopar 59.900,-
11. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.32
Sterlingspund 171.92
Kanadadalur 102.62
Dönsk króna 19.822
Norsk króna 14.515
Sænsk króna 14.371
Svissn. franki 141.11
Japanskt jen 1.1497
SDR 182.16
Evra 147.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.3513
« Fasteignafélagið
Reitir hækkaði
mest í verði í gær í
Kauphöll Íslands,
eða um 2,05% í 33
milljóna króna við-
skiptum.Gengi fé-
lagsins er nú 87,25
krónur hver hlutur.
Úrvalsvísitala
aðallista lækkaði
annars um 0,4% í
gær.
Önnur mesta hækkunin í gær varð á
bréfum tryggingafélagsins VÍS, eða
um 1,96% í 593 milljóna króna við-
skiptum. Er gengi félagsins núna 20,8.
Þriðja mesta hækkunin á mark-
aðnum í gær varð á bréfum annars fast-
eignafélags, Eikar. Fyrirtækið hækkaði
um 1,65% í þriggja milljóna króna við-
skiptum. Er gengi félagsins nú 12,3.
Reitir hækkuðu mest í
kauphöllinni í gær
Guðjón Auðunsson
forstjóri Reita.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Seðlabanki Íslands hefur gerst eig-
andi á ný í Reiknistofu bankanna,
RB, fyrirtæki sem rekur helstu fjár-
málainnviði íslenska bankakerfisins.
Kaupin eru gerð til að treysta
rekstur og framþróun innviða
greiðslumiðlunar hér á landi, þar
með talið millibankakerfi Seðlabank-
ans, eins og Gunnar Jakobsson vara-
seðlabankastjóri og Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri útskýra fyrir
Morgunblaðinu.
Samhliða kaupunum verða breytt-
ar áherslur í starfsemi fyrirtækisins
með það að markmiði að efla öryggi
og stuðla að aukinni skilvirkni og
hagkvæmni í rekstri fjármálainn-
viða, að sögn Gunnars.
Greiðsluveitan seldi ARK
Kaupin fóru þannig fram að
Greiðsluveitan ehf., dótturfélag
Seðlabanka Íslands, seldi ARK kerfi
sitt gegn 7,33% eignarhlut í félaginu.
RB keypti jafnframt SWIFT-þjón-
ustu Greiðsluveitunnar.
Einnig hafa Mentis, Valitor og
Salt Pay selt hluti sína í RB.
Við kaup og sölu á hlutum var not-
ast við sama verðmat í öllum tilvik-
um sem byggði á bókfærðu verði RB
og þeirra kerfa sem skiptu um eig-
endur, að sögn Gunnars. Jafnframt
verður starfsemi JCC ehf., seðlavers
kerfislega mikilvægu bankanna,
sameinuð rekstri RB.
Í eigu innlánsstofnana
RB verður eftir breytinguna ein-
ungis í eigu innlánsstofnana og
Greiðsluveitunnar, sem fer með
eignarhlut Seðlabanka Íslands.
Að sögn Gunnars kemur Greiðslu-
veitan inn í RB með skýr markmið,
að nútímavæða innviði og útleiða
kerfi á stórtölvu RB, að innleiða
staðlaðar reglubækur um uppgjör og
tæknistaðla að evrópskri fyrirmynd,
og að koma á innlendri óháðri smá-
greiðslulausn (A2A) sem litið er á
sem þjóðaröryggismál. „Aðkoma
Greiðsluveitunnar sem hluthafa í RB
er hugsuð tímabundin og verður
endurskoðuð að þremur árum liðn-
um með hliðsjón af þeim markmiðum
sem stefnt er að,“ segir Gunnar.
Gunnar verður formaður
Gerð verður breyting á stjórn RB
og mun Gunnar taka við sem formað-
ur stjórnar. Aðrir stjórnarmenn eru
fulltrúar kerfislega mikilvægra
banka. Að auki er kosinn einn óháður
stjórnarmaður.
Með innkomu sinni telur Greiðslu-
veitan að betur verði hægt að
tryggja forgangsröðun verkefna og
virka stefnumótun. Eftirfylgni í þró-
un og rekstri fjármálainnviða hefur
ekki verið sem skyldi hér á landi síð-
astliðinn áratug vegna ónógs sam-
starfs um innviði sem standa utan
samkeppnisumhverfis, eins og
Gunnar útskýrir.
„Með tilfærslu ARK- og SWIFT-
kerfa til RB auk sameiningar við
JCC næst fram hagræðing strax,
auk þess sem kostnaðurinn af kerf-
um í útleiðingu hleypur á nokkur
hundruð milljónum á ári. Áætla má
því að hagræðingin sem um ræðir
gæti skilað yfir 500 milljónum króna
á ári.“
Spurður um í hverju hagræðingin
felist segir Gunnar að lögð verði
áhersla á að ljúka innleiðingu
SOPRA innlánskerfa og útleiðingu
kerfa af stórtölvu. „Síðastliðin ár
höfum við verið með tvöföld kerfi í
rekstri á sumum sviðum og það hef-
ur verið mikil sóun.“
Afleiðing þess að taka upp alþjóð-
legar reglubækur og staðla er að
sögn Gunnars sú að íslenskir fjár-
málainnviðir geta tengst erlendum
greiðslumiðlunarkerfum með hag-
kvæmari og skilvirkari hætti til
hagsbóta fyrir fyrirtæki og einstak-
linga. „Með breytingunni færum við
okkur því nær alþjóðlegri þróun í
greiðslumiðlun. Hér er bankinn að
stíga inn til að hafa meiri og jákvæð
áhrif til framtíðar.“
Eflir þjóðaröryggi
Innleiðing A2A-lausna eflir þjóð-
aröryggi og dregur úr því að reiða
þurfi sig nær eingöngu á greiðslu-
kortainnviði í eigu erlendra aðila,
þ.e. Visa og Mastercard, að sögn
Gunnars. „Eins og þjóðaröryggisráð
hefur bent á er nauðsynlegt að búa
til aðra leið samhliða greiðslukorta-
innviðum. Hún yrði þá um leið vara-
leið ef hin erlendu fyrirtæki myndu
af einhverjum ástæðum hætta að
þjónusta Ísland.“
Til að útskýra þessa A2A-greiðslu-
miðlunarleið nánar yrði mögulega
um að ræða kerfi sem nýttu sér milli-
færslur í innláns- og millibankakerf-
um. „Til dæmis væri hægt að þróa
app, eða láta fólk skanna QR-kóða
úti í búð. Þessi leið yrði nýr og ódýr-
ari valkostur. Okkur vantar einungis
„síðasta metrann“, þ.e. greiðsluvið-
mótið, svo þessi greiðsluleið verði
nothæf og aðgengileg. Þá verður Ís-
land ekki lengur eins háð innviðum í
eigu erlendra stórfyrirtækja.“
Hagræðið skiptir máli
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
ítrekar að það skipti miklu máli að ná
fram fyrrnefndu hagræði enda fylgi
gríðarlegur kostnaður þeim tölvu-
kerfum sem notuð eru í greiðslumiðl-
un bankanna. Kostnaður sem á end-
anum lendir á notendum
bankaþjónustu. „Arðsemi félagsins
skal vera hófleg og verðlagning
gagnsæ. Það er ekki markmið félags-
ins að greiða arð til hluthafa heldur
að verja hagnaði í þróun og upp-
byggingu fjármálainnviða,“ segir
Ásgeir.
Hann segir að RB geti ekki tekið
að sér ný verkefni án þess að nýr
vettvangur Seðlabankans um
framþróun fjármálainnviða, svokall-
aður framtíðarvettvangur, beini
verkefnum til RB.
„Þetta er gríðarlega jákvætt skref
fyrir íslenskan fjármálamarkað,
fyrirtæki og fólkið í landinu,“ segir
Gunnar að lokum.
SÍ eignast 7,33% hlut í RB
Grunnkerfi RB rekur helstu fjármálainnviði íslenska bankakerfisins.
- Treysta rekstur og framþróun innviða greiðslumiðlunar hér á landi - Vill auka skilvirkni og minnka
sóun - Eflir þjóðaröryggi- Dregur úr því að reiða þurfi sig nær eingöngu á Visa og Mastercard
Gunnar
Jakobsson
Ásgeir
Jónsson
Ný stjórn
» Stjórnina skipa Gunnar Jak-
obsson varaseðlabankastjóri,
Anna Bjarney Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri rekstrar,
fjármála og tækni hjá RÚV,
Halldóra G. Steindórsdóttir,
hópstjóri í hugbúnaðarlausn-
um á upplýsingatæknisviði
Landsbankans, Riaan Dreyer,
frkvstj. upplýsingatæknisviðs
Íslandsbanka, og Styrmir Sig-
urjónsson, frkvstj. upplýsinga-
tæknisviðs Arion banka.