Morgunblaðið - 11.12.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 11.12.2021, Síða 24
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is S kráð atvinnuleysi á land- inu var 4,9% í seinasta mánuði eða hið sama og í október en er þó nokkru lægra í nóvember en gert var ráð fyrir þar sem atvinnuleysi eykst yfirleitt á milli október- og nóv- embermánaða. Hafði Vinnumála- stofnun (VMST) spáð því að það yrði 5-5,3% í mánuðinum. Nú spá- ir Vinnumálastofnun að atvinnu- leysi muni lítið breytast í desem- ber og verða á bilinu 4,9% til 5,1%. Bent er meðal annars á það í vinnumarkaðsskýrslu Vinnu- málastofnunar sem kom út í gær að fjölgun atvinnulausra í bygg- ingargreinum hafi verið minni í nóvember en áður. Alls voru 10.155 einstaklingar án atvinnu í lok nóvember, 5.719 karlar og 4.436 konur. Af þessum hópi höfðu alls 4.083 einstaklingar verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok nóvember en þeim fækkaði þó lítið eitt eða um 169 frá mánuðinum á undan. Lang- tímaatvinnulausir eru þó orðnir fleiri en á sama tíma fyrir ári þrátt fyrir að dregið hafi úr at- vinnuleysi á landinu en þeir sem höfðu verið atvinnulausir lengur en í eitt ár voru 3.919 í lok nóv- ember á seinasta ári. „Þeim sem hafa verið atvinnulausir í 6-12 mánuði fækkaði talsvert frá októ- ber eða um 246 og voru 1.807 í lok nóvember en 2.053 í lok október. Í nóvember 2020 var þessi fjöldi 5.961,“ segir í skýrslu VMST. Atvinnuástandið er sem fyrr mismunandi eftir landshlutum og svæðum. Atvinnuleysi minnkaði á höfuðborgarsvæðinu í nóvember en á sama tíma jókst það á lands- byggðinni um 5,5% að meðaltali. Atvinnuleysið mælist mest á Suð- urnesjum þar sem það jókst í seinasta mánuði úr 9,2% í október í 9,5% í nóvember. Næstmest var atvinnuleysið á höfuðborgarsvæð- inu eða 5,1%. „Atvinnulausum fækkaði m.a. í opinberri þjónustu, í verslun, í sérfræðiþjónustu, í far- þegaflutningum og í upplýs- ingatækni á bilinu rúmlega 1% til tæpra 7% frá október. Þeim fjölg- aði hins vegar lítils háttar í sjáv- arútvegi, byggingariðnaði, gisti- þjónustu og ýmiss konar þjónustustarfsemi,“ segir í skýrslu VMST. Þá má sjá að atvinnulausum fækkaði í seinasta mánuði meðal sérfræðinga og fólks í þjónustu- störfum og í sölu- og afgreiðslu- störfum. Hins vegar fjölgaði at- vinnulausum meðal verkafólks og iðnaðarmanna. Atvinnuleysi á undanförnum misserum hefur komið sérstaklega niður á erlendum ríkisborgurum og voru 4.175 erlendir atvinnuleit- endur án atvinnu um seinustu mánaðamót. Þeim fjölgaði um 106 á milli mánaða. Þessi fjöldi sam- svarar um 11,3% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. Atvinnuleysið breytist lítið og mælist 4,9% 5,0% 9,2% 17,8% 13,0% 9,6% 8,8% 9,4% 9,8% 11,1% 12,0% 12,1% 12,8% 12,5% 12,1% 11,5% 10,0% 7,4% 6,1% 5,5% 5,0% 4,9% 4,9% 5,0 3,5 5,7 10,3 7,5 5,6 7,4 2,1 7,5 7,9 8,5 9,0 9,9 1,4 10,6 1,4 10,7 1,2 11,6 11,4 11,0 10,4 9,1 7,4 6,1 5,5 5,0 4,9 4,9 Þróun atvinnuleysis frá febrúar 2020 2020 2021 feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. Almennt atvinnuleysi Vegna skerts starfshlutfalls Heimild: Vinnumálastofnun Höfuðb.sv. Landsbyggðin Vesturland Vestfirðir Norðurl.vestra Norðurl.eystra Austurland Suðurland Suðurnes 5,1% 4,6% 2,7% 2,8% 2,1% 4,1% 2,1% 3,4% 9,5% Almennt atvinnuleysi eftir lands- hlutum í nóv. 2021 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Umræðan um það hvort sú vörn, sem örv- unarskammtur af bóluefni veitir, gæfi tilefni til að endurskoða fyrir- komulag sótt- varnaaðgerða hefði átt að opna á möguleikan um að undanskilja hina þríbólusettu hraðprófsskyldu vegna stórra viðburða, en hún var fljót að fara út af sporinu. Hér á landi hefur verið far- ið ofan í nýgengi smita eftir því hvort fólk er bólusett eða ekki og hvað marga skammta bóluefnis hinir bólusettu hafa fengið. Fyrir rúmri viku var rætt um þetta við Thor Aspelund, prófessor í líftöl- fræði við Háskóla Íslands, á mbl.is og sagði hann að með þriðja skammti af bóluefni fengi fólk 90% meiri vörn gegn kórónuveirunni en það hefði fengið með öðrum skammti. Þá var 14 daga nýgengi á hverja 100 þúsund íbúa 751 hjá óbólusettum fullorðnum, 478 hjá fullbólusettum, en að- eins 56 hjá þeim sem höfðu fengið þrjá skammta af bólu- efninu. „Þetta er rosalegur mun- ur,“ sagði Thor í viðtalinu. Daginn eftir sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is að nú lægju fyrir faglegar forsendur til að hefja umræðu um að þeir, sem væru þríbólusettir, þyrftu ekki að sæta sömu tak- mörkunum og aðrir. „Við get- um sagt með nokkurri vissu að þeir sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefni eru mun ólíklegri til að smitast og smita út frá sér,“ sagði Þór- ólfur. Í kjölfarið hófst umræða um það hvort ekki væri vara- samt að skipta fólki upp í hópa og ræða þyrfti siðferðis- legar hliðar þess að mismuna fólki eftir því hvort það væri bólusett eða ekki. Það er í sjálfu sér verðugt umræðuefni, en velta má fyr- ir sér hvort sú umræða eigi ekki meira erindi í löndum þar sem andstaðan við bólu- setningu er meiri og hlutfall óbólusettra því mun – og oft margfalt – hærra en hér. Hugmyndin um að útiloka óbólusetta snýst yfirleitt að hluta til einnig um að þrýsta á þá að láta bólusetja sig. Það virkaði til dæmis rækilega í Frakklandi þar sem slíkum takmörkunum var mótmælt í fyrstu, en í kjöl- farið fjölgaði bólusettum svo um munaði þar í landi. Hér á landi eru 90% manna yfir 12 ára aldri bólusett. Hlutfallið hjá þeim, sem eru 70 ára eða eldri, er við 100%. Í þeim hópi hafa rúmlega 80% fengið þriðja skammtinn, samkvæmt upplýsingum á covid.is. Þetta hlutfall er það hátt að erfitt væri að rökstyðja að beita þá sérstakri útilokun, ekki síst vegna þess að margir hinna óbólusettu eru það ugglaust af heilsufarsástæðum. Í áðurnefndu viðtali við Thor Aspelund kom einnig fram að verulegur munur væri á innlagnatíðni. Á vef- síðunni covid.is kemur fram á línuriti, sem sýnir 14 daga nýgengi innlagna eftir stöðu bólusetningar á 100.000 manns, að það var 1,1 hjá þeim, sem eru fullbólusettir með örvun, 7. desember. Tal- an var 7,5 hjá fullorðnum með fulla bólusetningu og 44,8 hjá fullorðnum, sem ekki voru fullbólusettir, sama dag. Orðalagið um síðasta hópinn er ekki afgerandi um hvort þar séu aðeins óbólusettir. Í honum gætu verið einhverjir, sem fengu fyrsta skammt og létu þar staðar numið. Þetta er engu að síður sláandi mun- ur og sýnir virkni bólusetn- ingarinnar svo ekki verður um villst. Tölurnar um vörnina, sem þriðja bólusetningin veitir, bera með sér að óhætt sé að slaka á kröfunni um hraðpróf. Nú þurfa allir sem ætla á við- burði, þar sem verða yfir 50 manns, að fara í hraðpróf. Öll vísindaleg rök hníga að því að hraðprófum sé ofaukið hjá þeim, sem fengið hafa þriðja skammtinn af bóluefni. Frá- leitt væri að segja að verið væri að mismuna fólki ef þeir, sem fengið hafa örvunar- skammtinn, yrðu undan- þegnir hraðprófsskyldunni. Ef til vill meira umstang að fara í hraðpróf, en það er ekki útilokun. Hins vegar myndi drjúgur skildingur sparast því að hraðprófin kosta ríkið um kvartmilljarð króna á viku. Hinn þríbólusetti lagði líka inn með því að fara í þriðju bólusetninguna. Í umræðunni um takmark- anir hefur verið hamrað á því að vísindin ættu að ráða för. Það ætti þá að eiga við í þessu máli líka. „… þeir sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefni eru mun ólíklegri til að smitast og smita út frá sér“} Þriðji skammturinn og hraðprófið F yrirtækið Ísteka hefur undanfarin ár staðið fyrir stórauknum blóðmerabúskap á Íslandi. Fyrirtækið hefur samið við fjölda bænda um kaup á blóði úr fylfullum merum, en fyrirtækið á sjálft fjölda blóðmera. Ísteka þóttist koma af fjöllum þeg- ar dýraverndarsamtökin AWF/TSB birtu heimildarmynd um blóðmerahald á Íslandi og stórfellt dýraníð sem fellst í blóðtöku úr fyl- fullum merum. Myndin sviptir hulunni af óréttlætanlegri meðferð á hryssum sem ganga með folöld, sem öllu sómakæru fólki býður við. Flokkur fólksins lagði fram frumvarp um bann við blóðmerahaldi sl. vor við lítinn fögn- uð hagsmunaaðila. Fjöldi umsagnaraðila fullyrti að vel- ferð dýra væri í hávegum höfð og að virkt eftirlit MAST (Matvælastofnunar) og margrómað innra eftirliti Ísteka tryggði öryggi og velferð blóðmeranna og folalda þeirra. Um frumvarp Flokks fólksins sagði framkvæmda- stjóri Ísteka: Greinargerð sú sem fylgir frumvarpinu er gerð af svo mikilli vanþekkingu að því miður er ekki hægt að svara henni efnislega af neinu viti. Því verður ekki gerð tilraun til þess hér. Nú er komið annað hljóð í strokkinn. Framkvæmda- stjórinn sendi alþingismönnum bréf sama dag og frum- varp Flokks fólksins um bann við blóðmerahaldi var á dagskrá Alþingis nú í vikunni. Hvílík tilviljun! Í bréfinu lofaði hann ýtrustu umbótum til að tryggja velferð hryssanna. Það var þá eitthvað í ólagi eftir allt saman! Ég vona að hann átti sig á hve innantóm orð hans eru nú. Gleymum ekki að fram- kvæmdastjóri Ísteka hefur margdásamað innra eftirlit fyrirtækisins. Sami fram- kvæmdastjóri var viðstaddur það dýraníð sem kemur berlega í ljós í margumtalaðri heimildarmynd. Hvar var eftirlitið þá? Ísteka sækist nú eftir að framleiða árlega frjósemislyf úr 600.000 lítrum af blóði. Til að ná slíkri framleiðslu þarf að níðast á hátt í 20.000 fylfullum hryssum. Blóðmerahald er fordæmt víða um heim, m.a. af Evrópuþinginu. Íslendingar leggja mikið upp úr ímynd landsins og góðu orð- spori. Það er óverjandi að loka augunum fyrir slíkri fordæmingu. Íslenski hesturinn er elsk- aður og dáður um allan heim. Íslandsstofa hefur varið miklum fjármunum í kynningu hans erlendis með frá- bærum árangri. Þriðja árið er röð er slegið Íslandsmet í sölu á íslenska hestinum til annarra landa. Áætlað verð- mæti útflutningsins 2021 er um tveir milljarðar króna. Tæplega 10% erlendra ferðamanna koma gagngert í þeim tilgangi að kynnast íslenska hestinum. Hesta- mannaleigur velta margfalt hærri fjárhæðum en Ísteka. Ekki er mögulegt að efast um að við sem þjóð erum að fórna svo miklum mun meiri hagsmunm fyrir minni ef þessi starfsemi verður ekki stöðvuð strax. Setjum velferð dýra og orðspor þjóðarinnar í fyrsta sæti. Bönnum blóðmerahald! Inga Sæland Pistill Dýrkeypt dýraníð Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á því í nýrri umsögn við fjárlagafrumvarp næsta árs að af rúmlega tíu þúsund atvinnulaus- um á landinu í október hafi rösk- lega tvö þúsund starfað við ferða- þjónustu. Nálægt 60% þeirra sem voru á hlutabótum höfðu starfað í ferðaþjónustu og voru síðastliðið vor á þriðja þúsund talsins. Senni- lega taki hluti þeirra nú þátt í átakinu Hefjum störf sem gerði fyrirtækjum kleift að sækja um styrk fyrir starfsmenn sem fengu hlutabætur. „Það gefur til kynna að ekki sé allt sem sýnist í lágum tölum um fjölda atvinnulausra,“ segja Samtök ferðaþjónustunnar. Ekki er allt sem sýnist SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR UM ATVINNUÁSTANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.