Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
✝
Ása Hjálm-
arsdóttir
fæddist á Hofi á
Kjalarnesi 29.
september 1924.
Hún lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
9. nóvember 2021.
Foreldrar hennar
voru hjónin Hjálm-
ar Þorsteinsson,
bóndi og skáld, f.
á Reykjum í
Hrútafirði 5.9. 1886, d. 20.5.
1982, og Anna Guðmundsdóttir
húsfreyja, f. á Hurðarbaki í
Torfalækjarhreppi 24.8. 1884,
d. 13.1. 1964. Ása var næst-
yngst 13 systkina og lést síðust
þeirra. Þau voru: Sigríður, f.
1906, Hörður, f. 1912, Gyða, f.
1913, Auður, f. 1914, Hlíf, f.
1915, Haukur, f. 1917, Hlöð-
ver, f. 1918, Haukur Hlöðver,
f. 1919, Hlöðver, f. 1920, Hild-
ur, f. 1921, Anna, f. 1923, og
Hulda, f. 1926.
Ása giftist 1953 Ragnari
Konráðssyni sjómanni, f. 13.
júlí 1927, d. 2. sept. 1997. Þau
skildu. Ragnar var sonur Kon-
ráðs Þorsteinssonar, f. 30.8.
1894, d. 23.4. 1943, og Sól-
rúnar Kristjánsdóttur, f. 26.1.
1898, d. 5.1. 1981. Börn þeirra
sínum Guðbrandi G. Hann-
essyni, bónda í Hækingsdal, f.
1936, d. 2018. Þau eru: a)
Hörður, f. 1961, kvæntur Mar-
íu Benónýsdóttur, f. 1958, eiga
fimm börn og 11 barnabörn. b)
Kolbrún, f. 1963, gift Jóni J.
Kristjánssyni, f. 1963, eiga tvo
syni. c) Hannes, f. 1964. d)
Bragi, f. 1965. e) Helgi, f.
1967, kvæntur Dóru S. Gunn-
arsdóttur, f. 1982, eiga eina
dóttur. f) Ása Aðalbjörg, f.
1974. g) Anna Sigríður, f.
1980, gift Sigursteini Sigurðs-
syni, f. 1982, eiga tvo syni. 6)
Sonja Garðarsdóttir félagsráð-
gjafi, f. 1950, gift Lúðvík S.
Georgssyni verkfræðingi, f.
1949. Börn þeirra eru: a)
Georg, f. 1976, fyrri sambýlis-
kona H. Lydía Ellertsdóttir, f.
1975, þau eiga tvo syni. Seinni
sambýliskona Kristrún T.
Gunnarsdóttir, f. 1984, þau
eiga einn son. b) Ása Guðlaug,
f. 1977. c) Magnús Þorlákur, f.
1988.
Ása bjó allan sinn búskap í
Hafnarfirði, lengst af á Slétta-
hrauni. Hún menntaði sig sem
sjúkraliði og starfaði á hjúkr-
unarheimilum, lengst af í Há-
túni hjá Sjálfsbjörg, einnig á
Landakoti, Sólvangi og víðar.
Starfsferill hennar náði fram á
níræðisaldur. Jafnframt var
hún húsmóðir á stóru heimili.
Síðasta hálfa árið bjó hún á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útför Ásu fór fram í kyrr-
þey hinn 1. desember 2021.
eru: 1) Aðalbjörg
kennari, f. 1953,
hún á Alexander
Örn Úlfsson, f.
1984, býr með Jo-
hönnu Robertsson,
f. 1990. 2) Konráð
rafvirki, f. 1957,
kvæntist Laufeyju
A. Emilsdóttur
hjúkrunarfræð-
ingi, f. 1963, þau
skildu. Börn
þeirra: a) Þorvaldur, f. 1976, í
sambúð með Celiu Navarro,
eiga tvær dætur. b) Ninna Íris,
f. 1983, á einn son. c) Brynjar
Kári, f. 1988, býr með Emiliu
Ylitalo, f. 1983, eiga tvö börn.
d) Róbert Emil, f. 1994. e) Jak-
ob Hjálmar, f. 1995, unnusta
Krista M. Sveinbjörnsdóttir, f.
1997. 3) Ragnar Hjálmar fé-
lagsliði, f. 1959, d. 1994. Synir
hans: Birkir Freyr, f. 1985, d.
2003, og Sindri Rafn, f. 1986.
4) Rúnar verkamaður, f. 1960,
d. 2021. Kvæntist Söndru Su-
rairat, f. 1962, þau skildu. Þau
eiga Ragnar C., f. 1992. Fyrir
hjónaband eignaðist Ása tvær
dætur, þær eru: 5) Annabella
bóndi, f. 1943, d. 2014, ætt-
leidd af Herði bróður Ásu.
Hún átti sjö börn með manni
Það kemur ekki á óvart þeg-
ar kona farin að nálgast tírætt
kveður. Því fylgir sorgarferli
og uppgjör við fortíðina – en
kannski einnig gleði yfir að
komið var að velþeginni hvíld.
Það eru yfir 50 ár síðan ég
fór að venja komur mínar í
Hafnarfjörðinn, þar sem vænt-
anleg tengdamóðir mín, Ása
Hjálmarsdóttir, bjó. Ása var
borin og barnfædd á Hofi á
Kjalarnesi, næstyngst í hópi 13
systkina, og kveður nú síðust
og elst þeirra. Kreppuárin lit-
uðu uppvaxtarár Ásu og það
gat verið hart í ári og þá var
lífið ekki alltaf sanngjarnt.
Gleðistundirnar voru þó einnig
margar og Hof var henni ávallt
hjartfólgið. Og þar eignaðist
hún, 18 ára að aldri, fyrsta
barnið sitt, Önnubellu.
Ása sótti vinnu í Reykjavík
þegar hún hafði aldur til og
dvaldi þar oft milli helga, enda
langt út á Kjalarnes á þessum
tíma. Síldin heillaði einnig, og
sumrin á Siglufirði við síldar-
söltun voru henni minnisstæð.
Það kom sérstakur glampi í
augun á Ásu er talað var um
síldarárin. Þar hitti hún vænt-
anlegan tengdaföður minn
Garðar Magnússon, sjómann
frá Keflavík. Ekki náðu þau
Garðar saman til langframa, en
dótturina Sonju eignuðust þau
sumarið 1950. Ása bast hins
vegar öðrum sjómanni, Ragn-
ari Konráðssyni, og Hafnar-
fjörður varð heimili þeirra. Þar
bættust fjögur börn í hópinn,
Aðalbjörg, Konráð, Ragnar og
Rúnar.
Ása starfaði lengst af sem
sjúkraliði á hjúkrunarheimil-
um. Fjölskyldan var henni þó
allt og á heimilinu bar hún
langþyngstu byrðina. Lífið var
ekki auðvelt með þrjá kraft-
mikla drengi sem tóku mikið
til sín og veikan eiginmann. En
styrkur þessarar hæglátu konu
var ótvíræður og það mátti
treysta því að Ása gerði sitt til
að ná endum saman, með tvö-
faldri eða jafnvel þrefaldri
vinnu. Börnin áttu líka alltaf
skjól hjá henni hvað sem gekk
á. Og ekki var óreglunni fyrir
að fara, hún smakkaði hvorki
tóbak né vín. Áföllin voru samt
nokkur. Sárast var líklega þeg-
ar elsti sonurinn var tekinn frá
henni 11 ára gamall og sendur
á Breiðavík fyrir léttvægar
sakir. Þar dvaldi hann í 18
mánuði, nokkuð sem Ása gat
aldrei fyrirgefið þeim sem að
stóðu. Þegar Breiðavíkurmálin
komu upp fyrir 12-14 árum
voru þau mæðgin í fararbroddi
þeirra sem kröfðust leiðrétt-
ingar og réttlætis fyrir þann
hóp sem þurfti að þola þá
ómannúðlegu vist sem boðið
var upp á. Mikið óskaplega var
ég þá stoltur af tengdamóður
minni. Þá var ekki auðvelt að
sjá á bak öðrum syninum, sem
lést aðeins 35 ára gamall. Lífið
bauð þó einnig upp á góðar
stundir. Sambýli hennar með
yngsta syninum Rúnari, sem
lést fyrir skömmu, og sonar-
syninum, Ragnari, sem segja
má að hún hafi gengið í móð-
urstað síðustu tvo áratugina,
sýndi vel hvað fjölskyldan
skipti hana miklu mál. Ekki
síður umhyggja Ragnars fyrir
ömmu sinni, eftir að faðir hans
veiktist og var lagður inn á
hjúkrunarheimili.
Hversdagshetja er gjarnan
haft um einstaklinga í daglega
lífinu, sem leggja allt í söl-
urnar fyrir aðra þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika. Ása tengda-
móðir mín hefur um langt ára-
bil verið hversdagshetjan mín.
Megi góður guð blessa þig og
varðveita um alla eilífð.
Lúðvík S. Georgsson.
Elsku amma mín. Þú varst
alltaf svo glöð að sjá mig þegar
ég kom í heimsókn og bauðst
mér kaffi á nóinu. Þú sagðir
líka næstum alltaf að ég væri
svo fín og hvað það væri gam-
an að fá svona góðan gest.
Dásamlegar móttökur. Það var
svo fallegt þegar við heimsótt-
um þig, rétt áður en þú kvadd-
ir, þegar Ari Lúðvík, eins og
hálfs árs nýbyrjaður að tala,
kom hlaupandi á móti þér og
sagði „amma“ og andlit þitt
lýstist upp af gleði. Þú varst
svo óendanlega barngóð, elsku
amma. Þau voru ófá börnin
sem nutu góðs af því. Og þú
skammaðir sko aldrei börn
heldur þvert á móti fannst þér
„óþekku krakkarnir skemmti-
legastir“ eins og þú sagðir
stundum sjálf, með kankvíst
blik í auga. Það voru orð að
sönnu. Ég og Georg bróðir
fórum ekki varhluta af um-
hyggju þinni. Þegar við kom-
um í pössun í Hafnarfjörðinn
vildir þú allt fyrir okkur gera.
Við bíræfnu systkin stýrðum
því eðlilega á þann háttinn að
hefja kvöldið á KFC, leigja því
næst einhverja epíska bann-
aða spólu og enda svo á góðum
sjeik á Skalla. Þess á milli
bakaðir þú fyrir okkur heims-
ins bestu pönnukökur, allt
með sykri og rjóma. Þú bak-
aðir líka loftkökur, vanillu-
hringi, randalínur og hjóna-
bandssælur og gafst helst
allan baksturinn jafnóðum,
sendir okkur heim með kökur
í poka. Þú varst svo gjafmild,
elsku amma. Þú varst líka
skemmtileg og það var svo
gaman þegar þú fékkst hlát-
urskast, hnykktir höfðinu
fram eins og unglingsstelpa og
ljómaðir af gleði og húmor.
Það var svo dásamlega smit-
andi og ekki annað hægt en að
skella upp úr með þér.
Ég er einstaklega lánsöm
að hafa átt þig sem ömmu. Þú
gast gefið skilyrðislaust, þrátt
fyrir öll áföllin á lífsskeiði
þínu. Þú sýndir hetjulund með
því að stíga fram og ræða op-
inskátt um Breiðavíkurmálið.
Takk fyrir hugrekkið, elsku
amma. En fyrst og síðast
varstu svo ótrúlega góð mann-
eskja og góð við alla sem urðu
á vegi þínum. Þegar ég hugsa
um þig, þá sé ég milda, bjarta,
gullfallega konu sem geislar af
góðmennsku. Takk allra besta
amma og nafna fyrir mann-
gæskuna, örlætið og hlátur-
inn. Takk fyrir að vera
dásamleg fyrirmynd.
Ása Lúðvíksdóttir.
Þá er hún farin frá okkur.
Hún var sú síðasta af systk-
inunum þrettán frá Hofi á
Kjalarnesi. Þar ólst hún upp
við venjuleg sveitastörf í
stórum systkinahópi.
Ása giftist Ragnari Kon-
ráðssyni og bjuggu þau mörg
ár í bæjarraðhúsunum neðst
við Öldugötu í Hafnarfirði.
Þar var oft þröngt setið með
mörg börn. Maður hefði hald-
ið að ekki væri á það bætandi.
En þar sem hjartarúm er, þar
er alltaf hægt að rýma til.
Faðir minn var bróðir Ásu
og kom með mig og systur
mína til hennar í jólamat í
mörg ár.
Ég hændist snemma að
hjartagæsku þessarar frænku
minnar og ekkert af systk-
inum föður míns heimsótti ég
eins oft og hana. Margar
þrautir mátti hún yfirstíga á
lífsleiðinni. Ein sú versta var
þegar maður hennar frelsað-
ist svo hastarlega á trúarsam-
komu að hann hætti að vinna.
Sat hann þá bara heima og
endurtók í sífellu: „Guð
bjargar þessu öllu saman.“
Jú og Guð bjargaði mál-
unum á þann hátt að Ása varð
að láta Ragnar gæta
barnanna meðan hún vann
baki brotnu sem sjúkraliði til
að halda heimilinu gangandi.
Allar aukavaktir sem buðust
tók hún og lagðist oft þreytt
til hvílu á þeim árum. Ótrú-
legt er hvernig hún komst í
gegnum þennan tíma með
elju sinni og þrautseigju. Hún
var bjargið sem fjölskyldan
hvíldi á. Meira að segja tókst
henni að eignast stóra og
góða íbúð á Hjallabraut 2 í
Hafnarfirði.
Við Ása ræddum það
stundum síðar að ef maður
léti ekki erfiðleika lífsins
buga sig þá myndi mótlætið
efla mann og þroska. Já mað-
ur yrði þá betri manneskja
með aukinn skilning á lífinu.
Þetta átti sannarlega við um
Ásu. Hún er ein sú besta
manneskja sem ég hef kynnst
í mínu lífi.
Ása var sannarlega ein af
þessum hversdagshetjum sem
lítið láta fyrir sér fara og lítið
er talað um.
Að leiðarlokum óska ég
henni velfarnaðar á ókunnum
slóðum eilífðarinnar. Hin
bjarta minning hennar mun
verða ljós á vegi mínum um
ókomin ár. Börnum hennar og
öðrum aðstandendum votta
ég mína dýpstu samúð.
Helgi Theódór Hauksson.
Ása
Hjálmarsdóttir
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGMUNDUR TÓMASSON,
Sóleyjarima 9, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 2. desember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 14. desember klukkan 13.
Allir eru velkomnir í kirkjuna en verða að sýna fram á neikvætt
hraðpróf við innganginn, ekki eldra en 48 klst. Hraðpróf eru
pöntuð fyrirfram á hradprof.covid.is. Streymt verður frá https://
www.youtube.com/channel/UCLoNRDNgtA4a6tgIEywDCGw
Anna Sigríður Ólafsdóttir Jensen
Ólafur Sigmundsson
Margrét Sigmundsdóttir Árni Viðar Sveinsson
Tómas Jón Sigmundsson Inga Dóra Björnsdóttir
afabörn og langafabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
RUT RÚTSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
3. desember. Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
16. desember klukkan 13. Allir eru velkomnir í kirkjuna en
vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna fram á neikvætt
Covid-19-hraðpróf sem er ekki eldra en 48 klst. við komu í
kirkju. Heimapróf eru ekki tekin gild.
Birgir Guðbjörnsson
Guðbjörg Birgisdóttir
Rútur Örn Birgisson Kristín Jónsdóttir
Anika Rut, Myrra Kristín, Jón Birgir og Sigríður Rut
Ástkær faðir minn, sonur og bróðir,
ÁRNI BÖÐVARSSON,
lést miðvikudaginn 3. nóvember.
Útförin hefur farið fram.
Dagur Árnason
foreldrar, systkini og makar
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KRISTBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
Stórakrika 2b, Mosfellsbæ,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 6. desember.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 17.
desember klukkan 15. Kirkjugestir þurfa að framvísa neikvæðu
hraðprófi, ekki eldra en 48 klst. Streymt verður frá athöfninni
sem hægt er að nálgast á www.mbl.is/andlat. Blóm eru
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Lífskraft.
Halldór Valdín Gíslason
Jóhanna Björg Halldórsd.
Ólafur Valdín Halldórsson Ragnheiður Gló Gylfadóttir
Gísli Elvar Halldórsson Elsa Þóra Jónsdóttir
og ömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTBJÖRG SIGURBJÖRNSDÓTTIR
frá Múlastekk í Skriðdal,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
5. desember. Útför hennar fer fram
í Grafarvogskirkju á Lúsíudag, 13. desember, kl. 10-11 í
viðurvist allra nánustu ættingja vegna sérstakra aðstæðna.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Hjartans þökk fyrir einlæga samkennd og samúð.
Ingunn St. Svavarsdóttir Sigurður Halldórsson
Kristbjörg, Kristveig, Halldór Svavar
og fjölskyldur
Birna Kristín Svavarsdóttir Kristinn Ingólfsson
Svava, Ásdís, Sigurbjörn
og fjölskyldur
Erla Kolbrún Svavarsdóttir Gunnar Svavarsson
Guðrún Mist, Melkorka og fjölskyldur
Alma Eir Svavarsdóttir Guðjón Birgisson
Magnús Már, Svavar
og fjölskyldur