Morgunblaðið - 11.12.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.12.2021, Qupperneq 32
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR STELLA HELGA ÓLAFSDÓTTIR, Akurhólum 4, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 3. desember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 15. desember klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á www.selfosskirkja.is Jón Karl Róbertsson Ingveldur Sævarsdóttir Kristrún Eva Róbertsdóttir Sigurbjörg Sara Róbertsd. Ármann Magnús Ármannsson barnabörn og barnabarnabarn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LÓA GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR, áður til heimilis á Sandabraut 10, Akranesi, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða Akranesi miðvikudaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. desember með nánustu fjölskyldu og vinum. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða fyrir góða umönnun. Guðný Elín Geirsdóttir Garðar Geir Sigurgeirsson Valdimar Geirsson Sigríður Ellen Blumenstein Hrafnhildur Geirsdóttir Ólafur R. Guðjónsson Anna Lóa Geirsdóttir Engilbert Þorsteinsson Erla Geirsdóttir Ársæll Alfreðsson Gísli Geirsson Elín Þóra Geirsdóttir Valur Jónsson ömmubörnin Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGI SIGURJÓNSSON, Geirlandi við Suðurlandsveg, lést fimmtudaginn 25. nóvember. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 16. desember klukkan 13. Allir sem vilja fylgja honum eru velkomnir en vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna neikvætt Covid-19-hraðpróf við innganginn, tekið af viðurkenndum aðila og ekki eldra en 48 tíma. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni https://youtu.be/L64lhiYVK_M. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat Árni Brynjar, Helga Björk Sigurjón Rúnar og Guðrún Hlín Bragabörn tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KJARTAN OTTÓSSON, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 14. desember klukkan 13. Allir eru velkomnir í kirkjuna en vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna neikvætt hraðpróf við innganginn sem er ekki eldra en 48 klst. Hraðpróf er pantað fyrir fram á covidtest.is eða testcovid.is. Guðríður Þorvalds Jónsdóttir Ottó Guðmundsson Inga Jónsdóttir Guðný Guðmundsdóttir Jóhannes Stefánsson Lárus Guðmundsson María Jóhanna Sigurðardóttir Örn Guðmundsson Ingunn Þorvarðardóttir Sigurður Guðmundsson afabörn og langafabörn ✝ Guðný Þór- arinsdóttir fæddist á Blönduósi 1. ágúst 1943. Hún lést á HSN Blöndu- ósi 29. nóvember 2021. Foreldrar henn- ar voru Helga Kristjánsdóttir og Þórarinn Þorleifs- son, bæði látin. Maki Guðnýjar er Óskar Sigurfinnsson, for- eldrar hans voru Björg Erlends- dóttir og Sigurfinn Jakobsson, bæði látin. Börn Guðnýjar og Óskars eru: 1) Þóranna Björg, f. 12.11. 1960, gift Þorsteini Björnssyni. 2) Hólmfríður Sig- rún, f. 31.10. 1961, í sambúð með Vigni Björnssyni. 3) Þor- leifur Helgi, f. 13.1. 1963, giftur Þór- eyju Guðmunds- dóttur. 4) Júlíus Árni, f. 1.12. 1964, í sambúð með Dýr- finnu Vídalín Krist- jánsdóttur. 5) Hulda Björk, f. 20.8. 1966, d. 14.10. 1971. Afkomendur þeirra eru á fimmta tug. Útför Guðnýjar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 11. des- ember 2021, klukkan 14. Hægt er að nálgast vefstreymi á face booksíðu Blönduóskirkju. Ég man það elsku mamma mín, hve mild var höndin þín. Að koma upp í kjöltu þér var kærust óskin mín. Og ennþá rómar röddin þín, svo rík í hjarta mér. Er nóttin kemur dagur dvín, í draumi ég er hjá þér. (Jenni Jónsson) Móðir mín, Guðný Þórarins- dóttir, góð, velviljuð, lífsglöð og hjartahlý kona, er gengin. Í mín- um huga er minningin um mömmu fyrst og fremst minning um mannvin sem ekki unni sér hvíldar ef hjálpa þurfti öðrum, ættingjum, vinum eða sveitung- um. Mamma bar djúpa virðingu fyrir lífinu og gjöfum jarðar og það sama hefur hún lagt áherslu á við sína nánustu. Hún lagði mikið upp úr að hrósa og hvetja börn og barnabörn og aðra sem hún var í samskiptum við. Gott var að hafa mömmu til að „fletta“ upp í ef muna þurfti afmælisdag eða vita ættartengsl og annað sem tengdist mannlífinu. Hún var ótrúlega minnug og vel upp- lýst. Þegar stund gafst frá dag- legum önnum í sveitinni prjónaði hún og heklaði og nutu ófáir af- raksturs þeirrar miklu og vönd- uðu framleiðslu. Þegar aldur færðist yfir og krankleiki herjaði á var hún endalaust að þakka fyr- ir alla aðstoð og hlýju sem hún og pabbi fengu frá vinum og ætt- ingjum. Móðir mín var verndari minn, fyrirmynd og vinur. Ég get aldrei nógsamlega þakkað að hafa fengið að eiga hana að allt mitt líf, læra af henni og fá að hafa hana með mér áfram í minn- ingunni til æviloka. Sigrún Óskarsdóttir. Í dag kveðjum við góða vin- konu okkar, Guðnýju í Meðal- heimi. Manni finnst svo ótrúlega skrítið að hún skuli vera farin frá okkur, svona allt í einu. Við töl- uðum saman á laugardag og var hún þá glöð og hress. Ég sagði seinast í lok samtals, við tölum svo saman seinna, en það verður vonandi bið á því. Á mánudags- morgninum eftir samtalið var hún dáin. Guðný var manneskja sem sérlega gott var að þekkja. Hún var alltaf boðin og búin til að rétta hjálparhönd hverjum sem var, ekki síst þeim sem erfitt áttu á einhvern hátt og þurftu á hjálp að halda. Hún var alltaf glöð og tók öllum erfiðleikum og sorgum af stakri rósemi við hlið síns góða manns, Óskars Sigurfinnssonar, en þau voru búin að búa í Með- alheimi allan sinn búskap. Hún og þau öll í Meðalheimi gerðu okkur hjónunum t.d. eitt sinn mikinn greiða er við fluttum til Reykjavíkur 2006 og gátum ekki farið með hann Smala okkar með okkur. Þá hringdum við í Guð- nýju og sögðum henni frá vand- ræðum okkar og nefndum það hvort hún gæti leyst úr þeim. Þá, eins og alltaf, var hennar svar: „Jú, jú, alveg sjálfsagt að lofa honum að vera hjá okkur ef hann vill það, greyið.“ Og það vildi hann svo sannarlega því þar var hann í marga vetur og þar leið honum alltaf vel og fór þaðan í margar heiðargöngur. Ég held að hann hafi verið hættur að vita hvort hann átti frekar heima á Merkjalæk eða Meðalheimi sein- ustu árin hans og segir það sitt. Guðný ólst upp í stórum systk- inahópi á Blönduósi og var gam- an að heyra hvað hún hafði mikið samband við þau öll systkinin og fylgdist vel með hvað fjölskyldan stækkaði ört. Hún hugsaði alltaf sérlega vel um börnin sín og barnabörn. Hún var mikil prjóna- kona og var búin að prjóna mikið á hópinn sinn allan, jafnt á stóra sem smáa. Guðný hafði auðvitað nóg að gera á sínu stóra heimili en samt sem áður unnu þau hjón, Guðný og Óskar, bæði í fjölda- mörg haust í sláturhúsinu við sauðfjárslátrun og má segja að þar hafi okkar fyrstu kynni orðið. Í Meðalheimi var alltaf mikill gestagangur og þar var ætíð gott að koma. Móttökur voru þar hlýj- ar og notalegar og mikið var þar spjallað við eldhúsborðið. Að lok- um viljum við þakka Guðnýju innilega fyrir samfylgdina gegn- um árin og alla hennar vinsemd og hjálp og vottum Óskari og fjöl- skyldunni allri innilegrar samúð- ar. Ragnhildur og Sigurður, Merkjalæk. Guðný Þórarinsdóttir ✝ Bjarni Gunn- arsson fæddist í Reykjavík 6. júní 1946. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 29. nóvember 2021. Foreldrar hans voru Gunnar Vagnsson, f. 15. júlí 1918, d. 23. september 1977, og Sigríður Bjarnadóttir, f. 14. febrúar 1920, d. 24. mars 2006. Systkini Bjarna eru Krist- ín, f. 7. apríl 1948, Gunnar Vagn, f. 11. ágúst 1950, og Margrét, f. 23. janúar 1965, d. 23. ágúst 2014. Þann 8. janúar 1944 kvænt- ist Bjarni Dagbjörtu Gunnars- dóttur, f. 19. mars 1950. For- eldrar hennar voru Gunnar J. Ólason, f. 1903, d. 1973, og Kristín Bæringsdóttir, f. 1914, d. 2006. Bjarni gekk hefðbundna skólagöngu og útskrifaðist frá Menntaskólanum í sér að þýðingum en hann hafði öðlast réttindi sem lög- gildur skjalaþýðandi og dóm- túlkur. Við þetta starfaði hann meðan heilsa hans leyfði. Frá barnæsku var Bjarni í tónlistarnámi, hann lærði á klarinett við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann lék um ára- bil með Lúðrasveitinni Svani og ýmsum fleiri hljómsveitum. Einnig stundaði Bjarni söngnám í Söngskólanum í Reykjavík, og söng í ýmsum kórum, lengst í Langholt- skórnum og Hljómeyki. Á seinni árum lærði Bjarni á harmonikku og var í Félagi harmonikkuunnenda í Reykja- vík. Bjarni og Dagbjört bjuggu mestan sinn búskap í Bogahlíð 20 í Reykjavík. Bjarni hafði unun af ferða- lögum bæði innanlands og ut- an. Þau hjónin ferðuðust ófáar ferðir til Ítalíu, einnig til margra fleiri landa þar sem þau nutu tónlistar og ann- arrar menningar meðan heilsa Bjarna leyfði. Útför Bjarna hefur farið fram. Reykjavík 1966. Því næst stund- aði hann ensk- unám í Háskóla Íslands einn vetur en fór síðan til Ír- lands og innrit- aðist í Trinity Collage í Dublin þar sem hann lagði stund á ensku sem að- alfag, einnig þýsku og listasögu. Eftir heimkomuna kenndi hann í Menntaskólanum í Reykjavík, einnig starfaði hann í menntamálaráðuneyt- inu sem ráðgjafi. Hann fór þá til Bandaríkj- anna og innritaðist í Univers- ity of Southern Illinois Car- pendale og útskrifaðist þaðan með meistaragráðu í ensku. Eftir heimkomuna frá Bandaríkjunum réðst Bjarni til Menntaskólans í Reykjavík og kenndi ensku þar í 36 ár. Eftir starfslok í Menntaskólanum sneri hann Í annað sinn minnist ég þess er ég kom í Tjarnarflöt 4 til að kynn- ast fjölskyldunni sem þar bjó. Þar var hár og stæðilegur maður er gaf fast handtak og hlýtt hjarta. Bjarni var alla tíð opinn, góður grínisti og gaf af sér. Tón- list átti stóran þátt í lífi hans, hann spilaði á klarínett, gítar og nú seinni árin harmoniku. Fleiri hljóðfæri átti hann við en það var söngurinn sem gaf honum mikið. Hann lærði söng og söng með Langholtskórnum og Hljómeyki. Eftir lát tengdaföður míns komu þau tengdamóðir mín, Bjarni og Margrét systir hans mörg að- fangadagskvöld til okkar og þá var Bjarni hrókur alls fagnaðar. En það varð að bíða með matinn þar til Bjarni kom því hann söng í Langholtskirkju jólamessuna með kórnum. Eftir að Bjarni kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni fóru leiðir okkar að liggja saman í ferðalögum innanlands og margar góðar stundir áttum við saman á tjaldstæðum, í ættar- og fjölskylduferðum. Eins hafa þau ferðast mikið erlendis, t.d. á Ítalíu og farið á tónleika erlendis. Það var gaman að ræða við Bjarna, hann kynnti sér ótal mál- efni og oft bar hæst tæknimálin sem var áhugamál ásamt tónlist- inni. Bjarna varð ekki barna auð- ið en hann sýndi börnum okkar og barnabörnum mikinn áhuga og þau hjón gáfu þeim vandaðar og góðar gjafir um hver jól. Hann lánaði þeim hljómplötur og ræddi um tónlistina við þau og sýndi ávallt áhuga á því sem þau voru að gera. Mörg undanfarin áramót hafa Bjarni og Dagbjört komið til okkar og fagnað með okkur nýju ári og kvatt það gamla. Oft var minnst á líðandi stundir en ekki síst hvað nýja árið bæri í skauti. En fljótt skipast verður í lofti því Bjarni veiktist snemma í sumar og ekki varð af neinum ferðalög- um í sumar, en minning um góðan samferðafélaga mun ávallt lifa, og þar kemur að við njótum him- neskrar tónlistar í hæstu hæðum. Ólafur I. Jóhannsson. Skólafélagi okkar og bekkjar- bróðir, Bjarni Gunnarsson, er fallinn frá eftir erfið veikindi. Hann var skólabróðir minn fyrst rétt eftir miðja síðustu öld í Aust- urbæjarskólanum og síðan í Gagnfræðaskóla Austurbæjar, landsprófi og að lokum sessu- nautur í Menntaskólanum í Reykjavík. Þar vorum við í fá- mennum bekk, 6. D, sem taldi þrettán nemendur og lukum þar stúdentsprófi árið 1966. Nú eru tveir fallnir frá í fámennum hópi og er skarðið stórt. Þegar Bjarna er minnst kemur fyrst í hugann ljúfur, kurteis, hláturmildur, fróður og skemmti- legur maður með svolítið góðan breskan húmor. Hann minnti að mörgu leyti á breskan séntilmann í tvídjakkafötunum sínum, nær- gætinn og fágaður í framkomu. Í MR var hann góður námsmaður og afbragðs enskumaður. Að loknu námi í MR fór Bjarni til enskunáms við Trinity College í Dublin, þann virðulega, gamla háskóla. Hann starfaði lengst af sem enskukennari í MR en hann var einnig löggiltur skjalaþýð- andi og tók að sér verkefni þegar krafist var sérstakrar kunnáttu og nákvæmni. Að stúdentsprófi loknu tvístr- aðist bekkurinn, mismunandi framtíðarverkefni voru valin, flestir héldu í háskóla hér á landi en aðrir sóttu menntun utan landsteinanna og breytingar urðu á fjölskylduhögum. Tæki- færi til að hittast urðu færri þar til fyrir nokkrum árum að við bekkjarfélagarnir ákváðum að hittast reglulega og eiga góða stund saman. Þar var Bjarni hrókur alls fagnaðar á sinn ljúfa og hógværa hátt. Tónlist var Bjarna hugleikin og var hann með afar góða söng- rödd sem hann nýtti í kórastarfi og á góðra vina fundum. Minn- isstætt er þegar æfður var kór í MR til að flytja enska madrígala. Þar var Bjarni á heimavelli með sína góðu rödd og áhuga á breskri menningu. Hann var afar vel að sér um sígilda tónlist og sótti m.a. gjarnan tónleika Sinfó þar sem hann þekkti tónlistina manna best. Farinn er góður drengur sem er sárt saknað og er Dagbjörtu og öðrum aðstandendum vottuð innileg samúð. Fyrir hönd bekkjarbræðra í 6. D, Guðmundur Ragnarsson. Bjarni Gunnarsson 32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Dalsbyggð 15, 210 Garðabær Sími 551 3485 • olip2409@gmail.com Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.