Morgunblaðið - 11.12.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 11.12.2021, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 ✝ Hannes Hólm Hákonarson fæddist 31. október 1952 í Brekkukoti Reykholtsdal. Hann lést á Landspítalan- um 23. nóvember 2021. Foreldrar Hann- esar voru Hákon Hólm Leifsson, f. 28. apríl 1931, d. 8. maí 1994, og Ingv- eldur Hannesdóttir, f. 13. des. 1932, d. 20. ágúst 2011. Bræður Hannesar eru: Krist- mundur, f. 1956, Leifur Ólafur, f. 1965, og Kristinn Sigurður, f. 1967. Hinn 9. desember 1972 kvæntist Hannes Jóhönnu Mar- gréti Guðlaugs- dóttur, f. 1952. Börn þeirra eru: 1) Bára Konný, f. 1973, og á hún dæt- urnar Sorayu Yasmin, f. 2006, og Ariönu Selmu, f. 2010. 2) Heiðar Bragi, f. 1977, og á hann börnin Arnar Gauta, f. 2006, og Hildi Elvu, f. 2009. 3) Valdimar Hannes, f. 1981, og á hann Sölva Snæ, f. 2000, og Kára Stein, f. 2006. Hannes var bifreiðastjóri alla tíð og rak sitt eigið fyrirtæki með sendibíla og hópferðabíla. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Minn elsku eiginmaður og besti vinur er búinn að kveðja þennan heim eftir erfið veikindi og eftir situr sár söknuður. Efst í huga mér er þakklæti fyrir allar gleðistundirnar sem við áttum saman í gegnum lífið, alla um- hyggjuna og ástina. Minningar sem munu ylja mér um hjartarætur alla mína daga. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðing lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér og ég veit þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Og þó ég fengi ekki að þekkja þig þú virðist alltaf getað huggað mig það er eins og þú sért hjá mér og leiðir mig um veg. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Og þegar tími minn á jörðu hér, liðinn er þá er ég burtu fer, þá ég veit að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsd.) Þín Margrét. Elsku pabbi. Ólýsanlegur söknuður og sorg fyllir hjarta mitt og ég trúi ekki að þú sért farinn. Þegar ég var lítil varstu alltaf í mínum augum stærstur og sterkastur af öllum, „pabbi getur allt“, sagði ég. Það breytt- ist í rauninni ekki mikið á fullorð- insárum. Þú varst einstaklega góðhjartaður, skilningsríkur, hjálpsamur og traustur pabbi og vinur. Líf þitt snerist um mömmu og okkur systkinin, þú vannst myrkranna á milli til að gefa okkur sem best líf en gleymdir samt aldrei að gefa þér líka tíma í að hafa gaman með okkur, kenna okkur lífsreglurn- ar, kyssa okkur og knúsa. Þú trúðir alltaf á mig og stóðst með mér í öllu því sem ég tók mér fyr- ir hendur jafnvel þó þú vissir að kannski væri betra að gera hlut- inn öðruvísi því þú vissir að ég yrði að gera mistök og læra af þeim, að þessu mun ég búa alla ævi og reyna að miðla til minna barna. Þegar ég var lítil man ég alltaf eftir því hvað mér þótti vænt um hvað þið mamma voruð samrýnd og mikill kærleikur á milli ykkar, þið kvöddust alltaf með kossi þegar annað ykkar var að fara eitthvað og fram á þinn síðasta dag hefur þessi kærleik- ur og nánd haldist á milli ykkar. Það voru mikil lífsgæði og for- réttindi að alast upp með for- eldra eins og ykkur. Þegar þú eignaðist barnabörn- in var sama sagan, þú baðaðir þau í ást og umhyggju og tókst þátt í þeirra daglega lífi og tóm- stundum, enda varstu í þeirra augum „besti afi í heimi“. Ég mun að eilífu vera þér þakklát fyrir hvað þú varst yndislegur við dætur mínar, gekkst þeim að miklu leyti í föðurstað og varst alltaf til staðar fyrir þær. Við mæðgur vorum mikið með ykkur mömmu og þið hjálpuðuð mér óendanlega mikið með stelpurn- ar. Í dag er ég þakklát að eiga all- ar þessar minningar um allt það sem við gerðum saman, samtölin, sumarbústaðaferðirnar, matar- boðin, ferðalögin, og alla hvers- dagslegu hlutina, heill banki af yndislegum minningum. Þú tjáð- ir þig kannski ekki mikið tilfinn- ingalega en sýndir ást þína í gjörðum, varst alltaf mættur fyrstur á svæðið. Það er ekki hægt að minnast þín án þess að tala um að þú varst handlaginn hvort sem það hafði með hluti eða bíla að gera og ekki fór það framhjá barnabörnunum þínum sem töldu alltaf best að hringja í afa ef eitthvað þurfti að laga. Þú undir þér þó best í sum- arbústaðnum sem þið mamma áttuð og það eru ófáar minningar og listaverk sem hafa fengið að rísa þar, það síðasta var sólstofa sem þú dundaðir þér við í miðri lyfjameðferð og náðir næstum að klára. Þetta var þín afslöppun. Elsku pabbi, sorgin að missa þig ristir óendanlega djúpt og tárin eru endalaus. Ég verð æv- inlega þakklát að hafa átt þig sem pabba og mun hugsa til þín á hverjum degi. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og börnin mín, allt það sem þú kenndir mér, ástina og umhyggjuna. Elska þig alltaf. Þín dóttir Bára. Elsku afi. Þú varst eins og pabbi okkar. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og hjálpaðir okkur í gegnum svo margt. Hjörtun okkar eru brotin, við hugsum um þig á hverjum ein- asta degi og við munum ávallt minnast þín og segja öðrum fal- legar minningar um þig. Takk fyrir að vera besti afi/pabbi í heiminum. Allt er svo tómlegt án þín og við trúum ekki að þú sért farinn. Við værum ekki þær manneskjur sem við erum í dag ef þú hefðir ekki verið til staðar. Við myndum gera allt til að fá að hitta þig aftur, knúsa þig og hlæja með þér. Vildum óska að þú hefðir getað verið hjá okkur lengur. Við munum varðveita minningu þína og segja börnun- um okkar hvað langafi þeirra var góður afi. Hvíldu í friði elsku afi og við elskum þig meira en allt. Soraya Yasmin og Ariana Selma. Elsku Hannes minn, það er erfitt að trúa því að þú sért far- inn frá okkur allt of snemma. Ég ætla að hafa orð prestsins í huga og muna allar góðu og yndislegu minningarnar okkar saman. Hvernig ég frétti fyrst af þér var ansi skondið svo ekki sé meira sagt. Bréfið fræga frá vinkon- unni sem hún sendi mér þegar ég var við vinnu í New York. Þá voru skrifuð sendibréf, engir GSM- símar í þá daga. Í bréfinu stóð að hún væri trúlofuð strák, næst kom fullt nafn sem mér fannst þvílíkt vel skáldað og að hann væri bílstjóri og keyrði út banana. Þetta var nú algjör lyga- saga og ég trúði ekki orði af þess- um skáldskap. Sendi snarlega svar til baka að ég vildi fá betri sögu í næsta bréfi. Reyndin varð nú önnur, heilagur sannleikur og ég varð að trúa öllu. Síðan var spennan mikil að hitta Hannes sem var búinn að stela vinkon- unni frá mér. Ég hafði nú getað sleppt öllu stressi því alveg frá fyrstu stundu náðum við svo vel saman. Samverustundirnar eru yndislega margar í gegnum árin og þær hlýja manni inn að hjarta. Hannes var alltaf mjög duglegur og undi sér ekki öðruvísi en að vera að gera og græja, ekkert fyrir hangs. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn í bústaðinn og sjá hvað hann var búinn að framkvæma. Hann ljómaði allur þegar hann sýndi okkur hvað var búið að gera og hvað átti að gera næst, næstu áform voru alltaf til staðar. Ég sagði oft við hann, farðu nú að slaka á og njóta en það passaði honum ekki. Takk fyrir allt. Ég vola ekki neitt með- an ég skrifa þetta því ég veit að þér líkar það ekki. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Þín vinkona, Ingibjörg Þ. Nú er komið að kveðjustund hjá okkur og besta vini okkar, Hannesi Hólm Hákonarsyni. Leiðir okkar og barnanna okkar hafa legið saman í hartnær 50 ár í gleði og sorg, svona eins og lífið hefur boðið upp á hverju sinni ásamt því að vinna og ferðast saman. Mesta sameiginlega gleði okk- ar allra hlýtur þó að vera sú ákvörðun að hafa keypt okkur samliggjandi sumarbústaðarlönd fyrir 30 árum. Og það getum við svo sannarlega þakkað Hannesi sem tvínónaði aldrei við hlutina heldur framkvæmdi. Dag einn hringdi hann í Steina og sagðist vera búinn að taka frá tvær sum- arbústaðarlóðir fyrir okkur, við höfðum jú oft talað um að gera þetta en nú var það orðið að veru- leika og þær eru austur á Laug- arvatni, sagði Hannes, við getum allavega farið og skoðað landið, það kostar ekkert. Og hvað gerð- ist; landið var skoðað, keypt, girt af og síðan byggt á því tveimur árum seinna. Svona var Hannes. Þarna höfum við verið í sum- arsælunni hverja stund sem gafst með okkar allra tryggustu vinum, Möggu og Hannesi. Ekki hefur verið ónýtt að eiga svona stað í þessu covid-ástandi síðastliðið ár og mánuði. Þetta var mikið gæfuspor fyrir okkur öll, börnin og barnabörnin að geta komið í Sparikot og Sælukot til að leika og slaka á. Og ekki má gleyma besta vin- inum honum Víkingi sem er varð- hundurinn á staðnum en heldur sig vera aðalborinn og hegðar sér eftir því. Elsku Hannes er búinn að vera mikið lasinn í sumar og haust en sagði samt alltaf ég hef það fínt, ef hann var spurður, sama hvernig honum leið. Það er þyngra en tárum taki að sjá á eftir svo góðum vini, en við eigum minningar um góðar stundir þar sem við hlógum, töl- uðum, borðuðum saman eða bara vorum. Þessi tími er ómetanleg- ur. En þó hann sé farinn eru enn til staðar Sparikot, Sælukot, Magga vinkona, Víkingur og allir hinir sem eiga þessa fallegu minningu um góðan dreng og stað þar sem verkin hans tala til manns hvar sem litið er í sveit- inni. Elsku Magga, Bára, Heiðar, Valdi og allir krakkarnir, megi guð og allar góðar vættir vera með ykkur. Við hjónin óskum vini okkar góðrar ferðar í sum- arlandið. Sjáumst seinna. Margrét (Magga) og Steindór (Steini). Hannes Hólm Hákonarson Elsku amma mín, núna ertu farin frá mér og ég er alveg viss um að þú ert með besta sæti á himnum með Munda þínum, þú varst allavega Halldóra Kristín Björnsdóttir ✝ Halldóra Krist- ín Björnsdóttir fæddist 3. apríl 1922. Hún lést 13. október 2021. Jarðarförin fór fram 29. október 2021. búin að vinna þér það inn hér. Virðing, orðið virðing kemur fyrst upp í hugann þegar ég hugsa til þín, þú komst alltaf fram við alla af virðingu og þú hlaust virð- ingu hvar sem þú komst. Þú varst hin fullkomna amma, hlý, blíð, glöð og alltaf ríkti gleði í kringum þig. Þú vissir alltaf besta svarið, ég gat alltaf verið viss um að ef ég færi eftir ráðum þínum þá yrði útkom- an góð. Þú tókst við mér þegar ég var aðeins um 18 mánaða gömul, mikið vann ég í lottóinu þá elsku amma mín, að fá að vera hjá þér í öll þessi ár og alltaf vorum við bestu vinkonur, aldrei þurftir þú svo mikið sem skamma mig nokk- urn tímann, allar minningarnar okkar einkennast af gleði, hlýju og ró, tja, nema þegar við sung- um Bella símamær! Jólin voru tíminn okkar, við elskuðum jólaljósin, skrautið, kertin og kakóið. Ég er svo oft búin að setja fallegt jólaskraut, helst með ljósum, í körfuna til að gefa þér en þú ert farin og ég get ekki komið með þetta til þín, þar sem þú tekur á móti mér með brosi og fallegum orðum og segir svo: „Nei, af hverju ertu að þessu Linda mín!“ Þú elskaðir ljósið og friðinn. Ég vil þakka þér enn og aftur fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og ég veit að þú vissir hvað ég elskaði þig mikið og ég veit líka hvað þú elskaðir mig mikið. Við áttum svo kærleiksríkt og gott samband alla tíð, hvort sem við vorum í sama landi eða ekki, þú varst alltaf til staðar fyrir mig elsku amma mín. Ég er svo enda- laust þakklát fyrir þig, besta gjöf sem ég hef fengið og betri gjöf er ekki hægt að fá en svona fallega æsku með þér. Takk elsku amma mín, þangað til næst. Þín Linda Rós. Elsku amma. Þetta sérðu aldrei. Mér finnst það svo skrýtið hvernig minningargreinar hafa orðið til. Svo skrýtið að það tíðkist hjá mörgum að halda að sér hlutum en láta svo allt gossa þegar viðkom- andi er farinn. Ég hugsaði þetta svo oft síðastliðna mánuði. En það var einmitt svo erfitt að fara að tala um eitt og annað við þig þar sem minnið var brostið. Mér fannst það engum til gagns eða gleði. Ótrú- lega dapurt. Ég veit að minningargrein á ekki að vera svona. Hún á víst að snúast um að deila minningum. Ég hef hugsað svo margt og rifjað upp endalaust af indælisminningum en ég fæ mig ekki til að gera þetta öðruvísi en svona. Spjallið eigum við bara saman heima og í höfðinu á mér. Mikið vona ég að þú heyrir í mér. Fyrir hina sem lesa þá legg ég hér við hugleiðingu um það að segja einlægan hug sinn og gera það strax. Enginn veit hvenær Þorbjörg Steinólfsdóttir ✝ Þorbjörg Stein- ólfsdóttir fæddist 12. maí 1934. Hún lést 11. nóvember 2021. Út- för Þorbjargar fór fram í kyrrþey. okkar tími kemur. Takk amma fyrir mig, takk fyrir að gefa mér og mínum þessa dásamlegu gjöf sem lífið er. Hlakka til að hitta þig hinum megin. Minningargrein um lif- andi mann eða kver um góða konu. Hvers vegna geymum við það að segja okkar skoðun? Ef orðin þau hitta í hjartastað við kjósum þau djúpt að graf En í hyldýpi hugans allt fyllist snart og hjartað fer að bugast. Árin upp safnast og minningar með uns á grafarbakka við stöndum. Þá þegar loksins of seint það er við gremjumst og huganum vart höldum. Streymir þá úr augum og hjartanu brostna allt það sem sálin vildi segja. En mér finnst það svo skakkt og svo óþarflega hart því hún var sú eina sem þetta átti að heyra. Svo ef heppnin er með ykkur og þið hittið hana/hann enn, deilið þá strax með hjartanu heila. Martina Vigdís Nardini. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, JÓHANN EYJÓLFSSON málarameistari, áður til heimilis á Vesturgötu 59, Reykjavík, lést á Hlévangi, Reykjanesbæ, miðvikudaginn 17. nóvember. Útförin hefur farið fram. Kærar þakkir til starfsfólks Hlévangs fyrir umönnun og alúð síðustu ár. Ásgeir Jóhannsson Áslaug Jóhannsdóttir Sævar Þór Sigurðsson Ingibjörg Jóhannsdóttir Thor Ólafur Hallgrímsson og barnabörn Bestu þakkir til allra þeirra sem vottuðu samúð og hlýhug sinn við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Strikinu 12, Garðabæ. Fjölskyldan þakkar starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans fyrir hlýja og góða umönnun. Þórður Jónsson og fjölskylda Ástkær faðir minn, bróðir okkar, tengdafaðir og afi, INGIMUNDUR AXELSSON sjómaður, Ugluhólum 2, Reykjavík, lést mánudaginn 6. desember á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð. Útför fer fram miðvikudaginn 15. desember klukkan 11. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir. Aðalheiður E. Ingimundard. Ingi Rúnar Georgsson Steinunn Helga Axelsdóttir Lárus Konráðsson Páll Konráðsson Kristjana Ingibergsdóttir Erla Lárusdóttir Bjarni Torfi Álfþórsson Ingimundur Vilberg og Þórey Lilja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.