Morgunblaðið - 11.12.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 11.12.2021, Síða 36
Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Elsku amma mín. Ég hef í marga daga reynt að finna réttu orðin sem lýsa því hversu mikils virði þú ert mér og hversu mikið ég á eftir að sakna þín. Það hefur reynst mér erfitt að finna þessi orð, að hluta til held ég að það sé vegna þess að ég hef ekki að fullu meðtekið það að þú sért farin á vit nýrra ævintýra. Í þínum fallega fíngerða lík- ama var þessi risastóri og stór- kostlegi persónuleiki, kona með bein í nefinu sem lá ekki á skoð- unum sínum og fussaði og sveiaði á þær mannvitsbrekkur sem vissu hreinlega ekki betur. Þú varst kvenskörungur mikill og ég hef alltaf verið stolt af því að skapgerð okkar hafi verið keim- lík. Ása Pálsdóttir ✝ Ása Pálsdóttir 19. janúar 1935. Hún lést 2. nóvember 2021. Hún var jarðsungin 19. nóvember 2021. Þú varst hlý og góð amma og langamma, allar stundirnar sem við áttum saman þegar ég var yngri. Það var ekkert skemmtilegra en fimmtudagskvöld hjá ömmu að horfa á Dr. Quinn, kalda kókið í ísskápnum sem við fengum allt- af af og súru gúrkurnar eða apa- typpin hans Gunnars sem okkur þótti alltaf jafn fyndið. Þú kennd- ir mér að bera virðingu fyrir öll- um dýrum og þá sérstaklega kis- um. Þú varst kattarhvíslari og allar kisur elskuðu þig því þú sýndir þeim svo mikla alúð og umhyggju. Það var svo spennandi að fá að afgreiða í sjoppunni og læra hvernig átti að sjóða sjoppupyls- ur rétt með smá pilsner í vatninu. Allar krossgáturnar, spilakapl- arnir, fegrunarráðin og bíltúr- arnir í Gripið og greitt með henni Blíðu í aftursætinu. Öll áramótin í Sævangi þar sem þú áttir alla þessa flottu áramótahatta og grímur. Jólaöl í flottu álglösunum og skreytingarnar á borðinu. Endalaust af góðum minningum og ást. Elsku amma mín, nú ertu komin aftur heim í Landsveitina þar sem þú ert umkringd þínum nánustu. Þar er þitt draumaland. Hvíldu í friði. Þín Sunna Ella. Hulda og Hólmi á Vermundarstöð- um í Ólafsfirði tóku að sér börn úr kaupstöðum, fæddu þau og fræddu, elskuðu sem sín eigin og tóku aldrei krónu fyrir. Þau kenndu okkur kaupstaðabörnun- um að vinna og hugsa. Hulda var kennari af guðs náð. Hún út- skýrði og rökræddi og hafði sterka málvitund og réttlætis- kennd. Henni var oft heitt í hamsi þegar umræðan barst að illri meðferð á konum og börn- um. „Það var ekkert svo ljótt sagt um hann Jóakim í Ásæti að ég tryði því ekki“ sagði hún (nafnabreyting AS). Heil og elsk- andi við heiminn en stygg sem ljón ef henni fannst brotið á minni máttar. Hún tók okkur að sér eitt af öðru, yfir 30 börn, hlúði að okkur og sagði dæmi- sögur og lagði fyrir okkur gátur. Hún kenndi okkur vinnubrögð, t.d. að snúa heyi, raka dreifar, sinna kúm og hænsnum og á rigningardögum kenndi hún okkur að prjóna neðan við leista. Tungutak Huldu og Hólma var í mörgu ólíkt því sem ég átti að venjast á Siglufirði og í Reykjavík. Þau kölluðu mig heillina sína, voru framfrá og sögðu fólk fara vestur á Siglu- fjörð. Rödduðu samhljóðana og söngur tungumálsins var annar. Mér fannst ég eins og í annarri veröld þegar ég hlustaði á þau hjón tala en hafði þó vanist norð- lensku í tveggja fjalla fjarlægð, máli sem hljómaði allt öðruvísi. Þetta var eins og í ævintýri. Hulda, sem sólbrennd stritaði á túnum og engjum, fóðraði dýr og handmjólkaði, eldaði matinn, Hulda Kristjánsdóttir ✝ Ríkey Huld Kristjánsdóttir (Hulda) fæddist 1. desember 1926. Hún lést 14. nóv- ember 2021. Útför Huldu var 27. nóv- ember 2021. bakaði brauðið, þvoði heila þvotta- daga í suðupotti sem hún hrærði í, ásamt svo ótal- mörgu öðru, þurfti að sætta sig við að líkaminn lét undan í puðinu. Einhver ár liðu og nú voru þau Hólmi flutt í indælt raðhús á Ólafsfirði. Hulda hafði fengið tvö sett af mjaðmaliðum og end- urheimt heilsuna og Hólmi smíð- aði og skar út í tré. Þau voru komin á bíl, með sjónvarp í stofu og inn í nútímann. Hún sagðist hafa lifað alla Íslandssöguna, fæðst í torfbæ, án rafmagns og véla, eins og fólk hefði gert frá landnámi, lifað iðnbyltinguna og upplifað nútímann og það að sjá ungt fólk fá að menntast. Sjálf fékk hún ekki tækifæri til þeirr- ar skólagöngu sem hún þráði en það var að verða kennari. Harm- aði hún það alla tíð. En hún naut nútímalífsins, var sjálfstæð, sótti námskeið, fór í sundlaug, útbjó sér heitan pott úr fiskikari við sumarbústaðinn og Hólmi og Skjöldur voru ávallt til taks. Malaði kúmen í kaffið, bauð upp á heimabakað til 94 ára aldurs, heklaði milliverk í rúm- föt, vann ýmiss konar bróderí, harðangur og klaustur, bjó til listafalleg jólakort, hafði mjög fallega rithönd og skrifaði pistla og sögur. Við ræddum bókmenntir, hún las mikið og mundi allt. Setti líf og atburði í samhengi, kunni Ís- landssöguna og sá pólitíkina í öllu. Ég mun sakna þessara sam- ræðna og samvistanna með henni. Við sem nutum dvalar hjá Huldu og Hólma erum þeim æv- inlega þakklát fyrir það uppeldi og ástúð sem þau gáfu okkur. Við systkinin sendum innilegar sam- úðarkveðjur til Skjaldar, Krist- ínar, Rebekku og fjölskyldna. Anna Sjöfn Sigurðardóttir. Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlát- um og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar- greinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein ogæviágrip. Þjónustu- skrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendur við fráfall ástvina Minningarvefur á mbl.is HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.