Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ @CliffordMovie CliffordMovie.com #CliffordMovie ÞVÍ MEIRA SEM ÞÚ ELSKAR HANN ÞVÍ STÆRRI VERÐUR HANN. KEMUR Í BÍÓ MEÐ ÍSLENSKU TALI 10. DESEMBER 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali SÝNDMEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI JÓLAMYND TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is President Bongo er listamanns- nafn Stephans Stephensen sem færi líklega best á að kalla fjöllistamann þar sem hann myndar, hljóðritar, skífuþeytir, dansar, gefur út, siglir fleyjum, bak- ar pítsur og klífur fjöll. Og gerir sirka skrilljón hluti í viðbót. Árið 2018 setti hann í gang út- gáfuröðina Les Aventures de Presi- dent Bongo til heiðurs belgíska ævintýramanninum Tinna, auðvitað (en hann skilgreindi hvað það er að vera ævintýramaður á 20. öldinni samkvæmt forsetanum). Alls eru 24 plötur áætlaðar og eru sex þegar komnar út. Árið 2018 kom út plata með endurhljóðblöndunum á tveim- ur Tilbury-lögum og sérstök útgáfa af plötu Högna Egilssonar, Shed your Skin. Árið 2019 var það Quad- rantes, sem var unnin í samstarfi við bassaleikarann og tónskáldið Óttar Sæmundsen og svo Château Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Platan Dolores Del Ríó, ánöfnuð Local Pro- duct, kom svo út 2019 og sjötta verk- ið kom í fyrra. Just a Closer Walk With Thee er bæði kvikmynd (gerð í samstarfi við Matthew Barney) og plata með The Emotional Carpen- ters sem er eitt nafnanna sem Stephan notar þegar hann skapar tónlist (hin þrælmagnaða Serengeti, 2015, er líka undir þeim hatti). Reykjavik Record Shop hefur nú tekið höndum saman með Radio Bongo (útgáfuarmi President Bongo) og í dag koma út tvær plöt- ur. Sjöunda platan er merkt dúett- inum Uwaga en sú áttunda er tónlist við Á annan veg, kvikmynd Haf- steins Gunnars Árnasonar, sem President Bongo samdi eftir að myndin hafði komið út (mjög for- setalegt!). Skrumskældur eyðimerkurblús Frekari upplýsingar um allt þetta efni og tónlistardæmi má finna á radiobongo.fm. Mig langar nefnilega til að nota restina af plássinu undir tónlistarlega greiningu, fara í saum- ana á Eros, plötu Uwaga (sem fjallar um ástarsamband Erosar og Psyche). Það eru margir sem koma að tónlistinni en Uwaga er að stofni til President Bongo og Þorsteinn Einarsson, Steini í Hjálmum. Ýmis kunnugleg nöfn má sjá í upplýsinga- runu plötunnar, Daníel Friðrik Böðvarsson og Aaron Roche koma m.a. að upptökum ásamt Bongo sem er annars í mörgum hlutverkum hérna. Hann, Daníel og Þorsteinn semja sjálfa tónlistina en ég læt vera að telja upp hljóðfæraleikara hér. President Bongo er kannski þekkt- astur fyrir aðkomu að allra handa raftónlist en hann fer létt með að svífa vængjum þöndum um aðra geira, sjá t.d. plöturnar sem upp hafa verið taldar. Uwaga er þó merkilega „eðlileg“ plata í öllu sam- hengi, hér höfum við lög og kunn- uglega rödd Steina þótt ávallt sé stutt í Bongo-snúning. Þannig er upphafslagið sólbökuð stemma í anda Rys Cooders mætti segja en strax á eftir tekur við gáskadrifið lag og allt allt öðruvísi, „Pleasure Thief“. „Discontent Fizzes“ er kannski ágætt dæmi um að hlutirnir geta aldrei verið of eðlilegir í útsend- ingum Radio Bongo og fjórða og síð- asta lagið á hlið A, „Fatal Hearts“, er í framsæknara lagi, naumhyggju- leg „ambient“-stemma með upp- brotum sem fær að hanga í rúmar átta mínútur. Plötunni er svo snúið við og platan verður í raun æ meira afstrakt. „Mating Display“ er í raun réttu hljóðverk, „Ultimate Union“ er dá- laglegt skrítipopp hvar sjálfur Ótt- arr Proppé kíkir í heimsókn og svo er plötu slitið með „Speed of Ill- usion“ sem kallast á við upphafið. Skrumskældur eyðimerkurblús með rafkryddi sem er fullkominn endir á ansi ævintýralegri sjö laga yfirreið. Myndband við lagið „Pleasure Thief“ eftir þau Gabríelu Friðriks- dóttur og Pierre-Alain Giraud var þá frumsýnt í dag og finna má hlekk að því á samfélagssíðum Reykjavík Record Shop, President Bongo og Radio Bongo og á arnareggert.is. Ævintýrið góða heldur áfram Tvær nýjar plötur bættust við útgáfuröð President Bongo, Les Aventures de Presi- dent Bongo, í dag. Ann- ars vegar plata með dú- ettinum Uwaga og hins vegar tónlistin við kvik- myndina Á annan veg. Umslag President Bongo - Uwaga. Ljósmynd/Benni Valsson Dúettinn Uwaga er skipaður þeim félögum President Bongo og Þorsteini Einarssyni. » Uwaga er þó merki- lega „eðlileg“ plata í öllu samhengi, hér höf- um við lög og kunn- uglega rödd Steina þótt ávallt sé stutt í Bongo- snúning. Sigurjón Sighvatsson kvikmynda- framleiðandi með meiru hefur um langt árabil unnið að sköpun fjöl- breytilegra ljósmyndaverka og opnar sýningu á úrvali þeirra í pop- up-rými á Hafnartorgi við Geirs- götu á morgun, sunnudag, kl. 16. Helmingur sýningarinnar er verk innblásin af þekktri ferðabók W.H. Audens og Louis MacNeice sem kom fyrst út 1937, Letters from Iceland. Hinn helmingurinn sækir innblástur til Bandaríkjanna, eink- um Los Angeles og listamanna sem þar hafa starfað, en í verkunum kallast Sigurjón markvisst á við verk nokkurra samtímalistamanna og beitir þá til dæmis collage-tækni og fellir texta á myndirnar. Ljósmyndarinn Sigurjón Sighvatsson sýnir nú fjölbreytileg ljósmyndaverk. Sigurjón sýnir ljósmyndaverk sín Morgunblaðið/Eggert Norræna húsið býður upp á pólskan ljóða- viðburð á morg- un, sunnudaginn 12. desember, frá klukkan 15-17. Viðburðurinn ber titilinn Pølse&Poesi og þar verður boðið upp á dýrindis pólskar pylsur og pólsk-íslensk ljóð. Skáldin Jakub Sachowiak, Mao Alheimsdóttir og Kamila Ciolko- Borkowska lesa eigin ljóð og Pyls- umeistarinn býður upp á pylsur og súrar gúrkur með. Skáldin eru öll pólsk að uppruna en hafa mismikil tengsl við Ísland og íslenska tungu. Upplesturinn verður á pólsku og ís- lensku. Pólskar pylsur og pólsk-íslensk ljóð Mao Alheimsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.