Morgunblaðið - 11.12.2021, Page 48
Höfðabakka 9, 110 Rvk | run.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar – Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum – Egilsstöðum
• Kram – Stykkishólmi
• Fok – Borgarnesi
• Versl. Kristall – Neskaupsstað
• Verzl. Axel Ó. Vestmanneyjum
Útsölustaðir:
Tilvalin
jólagjöf
Aðventa, hin
dáða og hrífandi
nóvella Gunnars
Gunnarssonar,
sem fjallar um
eftirleitir Fjalla-
Bensa og föru-
nauta hans, Eit-
ils og Leós, á
Mývatnsöræfum
á aðventu, verð-
ur að venju lesin
í Gunnarshúsum
í Reykjavík og á
Skriðuklaustri á
morgun, þriðja sunnudag í aðventu. Hjá Rithöfunda-
sambandi Íslands í Gunnarshúsi á Dyngjuvegi 8 les Jó-
hanna Friðrika Sæmundsdóttir, leikkona og handrits-
höfundur, og hjá Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri les
Þór Ragnarsson áhugaleikari. Lesturinn hefst á báðum
stöðum kl. 13.30.
Sagan Aðventa, um Benedikt, Leó
og Eitil, lesin í Gunnarshúsum
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 345. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Íslandsmótið í knattspyrnu lengist um tæpar sjö vikur
á næsta ári ef áætlanir um fjölgun leikja í úrvalsdeild
karla ganga eftir. Eru grasvellir landsins tilbúnir fyrir
leiki frá 18. apríl til 29. október? Morgunblaðið ræddi
við vallarstjóra og aðra fulltrúa félaganna sjö í deildinni
sem leika á grasi á næsta ári. »41
Ráða vellirnir við lengra tímabil?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mynd eftir myndlistarkonuna Guð-
rúnu Elínu Ólafsdóttur, öðru nafni
Gunnellu, prýðir fyrstu opnu nýút-
gefinnar alþjóðlegrar bókar um um-
hverfismál, It’s
Up to Us: Build-
ing a Brighter
Future for Nat-
ure, People &
Planet, sem kom-
in er í sölu á ama-
zon.com og hugs-
uð sem kennslu-
bók í grunnskól-
um í enskumæl-
andi löndum og
víðar. Karl Bretaprins kemur að út-
gáfunni og samþykkti ásamt dóm-
nefnd birtingu myndar Gunnellu, en
formáli hans er á sömu opnu. „Þetta
er mjög spennandi og mikill heiður,“
segir listakonan, en 25 listamenn
hvaðanæva úr heiminum voru valdir
til þess að myndskreyta bókina.
Gunnella hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í fjölda
samsýninga. Hjartaheill og SOS-
barnaþorpin hafa gefið út jólakort
með myndum eftir hana og verk
hennar hafa prýtt konfektkassa frá
Nóa-Síríusi. Bandaríski rithöfund-
urinn Bruce McMillan hefur skrifað
tvær bækur út frá myndum hennar.
New York Times valdi aðra þeirra,
The Problem with Chicken, Hænur
eru hermikrákur, í þýðingu Sigurðar
A. Magnússonar, eina af tíu best
myndskreyttu barnabókunum 2005.
Gunnella átti verk á farandsýningu í
London, Brussel, Stokkhólmi og í
byggingu Sameinuðu þjóðanna í New
York í kjölfar myndlistarsamkeppni
Winsor og Newton árið 2000, en Karl
Bretaprins var verndari keppninnar,
í valnefnd mynda sem komust áfram
og kemur nú aftur við sögu.
Hænan passaði ekki
Bókinni er skipt upp í 25 kafla og
hvert þema fjallar um ákveðin mál-
efni í sambandi við umhverfismál og
sjálfbærni. Einn listamaður var val-
inn til þess að myndskreyta hvert
þema. Gunnella valdi þemað „People
and Garden“, fólk og garður, og var
orðið við þeirri ósk. Hún er þekkt
fyrir þjóðlegar myndir af bústnum
konum og hænum í íslensku um-
hverfi og segist hafa haldið að hún
ætti að mála í sínum stíl, hafi gert það
og sent útgáfunni. Þá hafi hún verið
spurð hvort hún gæti ekki málað
mynd af Karli Bretaprins að gróð-
ursetja tré í hallargarði konungsfjöl-
skyldunnar ásamt barnabörnum sín-
um og hundum fjölskyldunnar.
Ljósmynd af garðinum hafi fylgt
með, þar sem hafi sést í höllina, gos-
brunn og fleira. „Ég byrjaði upp á
nýtt og sendi aðra mynd, en allt kom
fyrir ekki og að loknum nokkrum
póstum fram og til baka sagði ég mig
frá verkinu. Þetta var svo gjörólíkt
því sem ég hafði fengist við, langt ut-
an míns þægindaramma, og því benti
ég á tvo aðra íslenska myndskreyta,
sem færu létt með að ljúka verkefn-
inu.“
Uppsögnin var ekki tekin til greina
og hún beðin að mála mynd eftir eig-
in höfði. Hún hafi því sent enn eina
mynd. „Í forgrunn setti ég andlit á
hænu, sem starði forvitnum augum
framan í áhorfandann, og síðan var
gróðursetningin í bakgrunni. Þá var
ég beðin að fjarlægja hænuna, sem
ég gerði, og málaði kind í staðinn.“ Á
þessari stundu var ekki ljóst hvort
myndin yrði í bókinni. „Hún þurfti
fyrst að fá samþykki dómnefndar og
Karl átti lokaorðið enda átti hún að
vera með inngangsorðum hans.“
Bókin er komin út í Bretlandi og
verður gefin út í öðrum enskumæl-
andi löndum eins og Bandaríkjunum,
Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
„Vonandi hefur íslenskt bókaforlag
samband við útgáfuna og gefur bók-
ina út á íslensku,“ segir Gunnella.
Morgunblaðið/Eggert
List Guðrún Elín Ólafsdóttir, Gunnella, með bókina þar sem sjá má mynd hennar og ávarp Karls Bretaprins.
Karl prins sagði já
- Samþykkti mynd eftir Gunnellu í bók um umhverfismál
Karl Bretaprins.