Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI F jármálakreppan 2007 og 2008 olli keðjuverkun sem m.a. kældi ís- lenska húsbyggingamarkaðinn og kom illa við fyrirtæki eins og Húsa- smiðjuna sem byggja rekstur sinn að stórum hluta á sölu byggingarefnis og þjónustu við iðnaðarmenn. Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir það hafa verið ánægjuefni fyrir fimm árum þegar fyrir- tækið komst á lista Creditinfo yfir fram- úrskarandi fyrirtæki í framhaldi þess að tek- ist hafði að byggja reksturinn upp að nýju og styrkja undirstöðurnar: „Allur byggingamarkaðurinn var í sárum eftir hrun og í okkar tilviki var eiginfjárhlut- fallið ekki nema í kringum 10%, sumar rekstrareiningarnar reknar með tapi, okkar helsta upplýsingakerfi tæplega 20 ára gam- alt og bæta þurfti í endurnýjun ýmissa rekstrarfjármuna. En við réðumst í fjölda góðra innri verkefna með okkar frábæra starfsfólki, og með mikilli vinnu og þolin- mæði náðum við frábærum árangri og fyrir- tækið núna í fremstu röð, með eiginfjárhlut- fall yfir 50% og sterka innviði,“ segir Árni. Sjálfsafgreiðsla með símanum Meðal þess sem efldi innviði fyrirtækisins var innleiðing nýs tölvukerfis sem einfaldaði daglega starfsemi og lagði um leið grunninn að nýrri vefverslun og ýmiss konar viðbót- arþjónustu við viðskiptavini. „Með nýju net- versluninni gátu viðskiptavinir okkar t.d. skráð sig inn og notið allra sinna afsláttar- og viðskiptakjara á netinu og ruddum við jafnframt brautina í timbursölu á netinu. Þá höfum við getað unnið jafnt og þétt að því að bæta ferla og auka skilvirkni og erum um leið að létta viðskiptavinum okkar lífið. Geta t.d. þeir sem skráðir eru í viðskiptakerfi okkar núna sjálfir skipt og dreift greiðslum þegar þess er þörf.“ Húsasmiðjan hefur haldið áfram að byggja ofan á þessa tækni og felst nýjasta viðbótin í að viðskiptavinir geta notað snjallsímann sinn til að skanna sjálfir inn vörur í verslun um leið og þeim er raðað í innkaupakörfuna. „Bæði má sækja vöruupplýsingar í gegnum símann og ganga frá greiðslu, og þarf þá ekki að koma við á afgreiðslukassa á leiðinni úr búðinni heldur einungis gera „hraðtékk“. Vonumst við til að þetta flýti fyrir við- skiptum og skapi aukna ánægju og við- skiptatryggð,“ útskýrir Árni en notendapróf- anir á þessu nýja sjálfsafgreiðslukerfi eru á lokametrunum og verður þjónustan gerð að- gengileg almennum viðskiptavinum á kom- andi dögum í öllum verslunum Húsasmiðj- unnar. Opna nýja verslun á Akureyri Í dag eru verslanir Húsasmiðjunnar sex- tán talsins og dreifast um allt land. Undir fyrirtækið heyrir líka rafiðnaðarheildsalan Ískraft sem starfrækir fimm útibú, og Blómaval sem er á sjö stöðum. Í byrjun næsta árs opnar Húsasmiðjan nýja 5.000 fer- metra verslun á Akureyri og nýlega tryggði félagið sér byggingarlóð undir nýja verslun á Selfossi. Á ársgrundvelli eru stöðugildi hjá félaginu tæplega 400 talsins en á háannatíma á sumr- in eru starfsmenn rúmlega 500. Árið 2019 varð fyrirtækið það fyrsta á íslenskum bygg- ingavörumarkaði til að hljóta jafnlaunavott- un og hefur félagið gefið út samfélags- skýrslu í samstarfi við Bygma frá árinu 2017. Veltutölur hafa farið hratt batnandi að undanförnu og nam veltan á síðasta ári rúm- um 20 milljörðum króna, með 900 milljóna hagnaði fyrir skatta. Jókst veltan um 7% milli áranna 2019 og 2020 og útlit fyrir áframhaldandi góðan vöxt í veltu á þessu ári. Góðan gang í sölunni í ár og í fyrra má m.a. rekja til þess hve duglegir landsmenn voru að huga að heimilinu í kórónuveiruf- araldrinum. „Fagaðilar eru okkar stærsti vi- skiptavinahópur en það sem við sáum gerast í faraldrinum var að sprenging varð í fram- kvæmdagleði einstaklinga. Fólk varði meiri tíma heima við og hafði meira ráðrúm til að ráðast í alls kyns viðhald og framkvæmdir. Notuðu margir tækifærið til að mála eða láta drauminn um sólpall rætast,“ segir Árni. Markaðurinn kallar á fleiri lóðir Húsbyggingageirinn náði sér aftur á strik eftir hrun og segir Árni að þar hafi veltan tekið að glæðast á árunum 2012 til 2013. Á undanförnum árum hafa umsvifin í húsbygg- ingum verið á nokkuð eðlilegu reiki. „En eft- ir situr að í nokkur ár eftir bankahrun var of lítið byggt og tölurnar sýna að þarf að auka framboð nýbygginga enn hraðar til að ná langtíma jafnvægi“ segir Árni og bætir við að því miður séu blikur á lofti: „Samkvæmt nýjustu talningu Samtaka iðnaðarins er íbúðum í byggingu að fækka og á sama tíma sjáum við merki um aukna eftirspurn á fasteignamarkaðnum en fáar til- búnar íbúðir í sölu sem auðvitað ýtir upp verði íbúða. Það er samdóma álit flestra þeirra byggingaverktaka sem ég ræði við að of fáar nýjar lóðir séu í boði og þær lóðir sem boðist hafa á þéttingarreitum á höfuð- borgarsvæðinu séu mjög dýrar. Þetta veldur bæði því að ójafnvægi myndast á fast- eignamarkaði og verktökum gengur erf- iðlega að hafa góðan og jafnan gang í bygg- ingaframvæmdum svo þeir þurfa jafnvel að framkvæma með hléum með tilheyrandi áhrifum á framkvæmdakostnað.“ Segir Árni að ástandið sé áberandi verst á höfuðborgarsvæðinu en einnig heyrist áhyggjur af skorti á tilbúnum byggingar- lóðum á Akureyri. Aftur á móti hafi ýmis önnur sveitarfélög gengið á lagið og nýtt sér hækkandi fasteignaverð og lóðaskort á höf- uðborgarsvæðinu til að laða til sín fólk í leit að húsnæði á hagstæðara verði: „Ef við skoðum t.d. Árborg, Reykjanesbæ, Akranes og Hveragerði hefur þar verið ágætis- framboð af lóðum og meira líf færst í hús- byggingaverkefni.“ Árni bendir á að það komi sér mjög illa fyrir ákveðna hópa þegar framboð á fast- eignamarkaði heldur ekki í við eftirspurn og komi m.a. niður á unga fólkinu sem er að byrja að búa. „Lausnin ætti að felast í sam- spili frjálsa markaðarins í bland við fé- lagslegar lausnir, s.s. óhagnaðardrifin félög sem hafa vaxið og dafnað á undanförnum ár- um. En umfram allt hvílir sú skylda á herð- um sveitarfélaganna að bjóða nýjar bygg- ingalóðir tímanlega og í góðum takti við eftirspurn, og þá á skynsamlegu verði þann- ig að sem best jafnvægi haldist á mark- aðnum.“ ai@mbl.is Framboð lóða verður að passa við eftirspurn Morgunblaðið/Eggert Árni segir nýtt sjáfsafgreiðslukerfi á lokametrunum þar sem viðskiptavinir nota snjallsímann til að skanna vörur beint ofan í körfu. 52. sæti HÚSASMIÐJAN Stórt 52. sæti Árni Stefánsson Hörð samkeppni er á markaði með bygg- ingarefni og segir Árni að samhliða því geri kaupendur æ ríkari kröfur um gæði, upp- runa og ýmsa eiginleika vörunnar. Hann segir m.a. hafa orðið greinilega breytingu í byggingageiranum hvað varðar notkun á sjálfbærum og umhverfisvænum vörum. „Mjög hraðar breytingar hafa orðið á bygg- ingavörumarkaði og leiðandi framleið- endur m.a. kynnt til leiks alls kyns efnavör- ur á borð við lím og málningu sem framleiddar eru úr mun umhverfisvænni efnum en áður. Sama gildir um umbúða- notkun þar sem birgjar keppast við að þróa umhverfisvænni lausnir og halda magni umbúða í lágmarki með umhverfis- vernd að leiðarljósi.“ Segir Árni að í dag bjóði Húsasmiðjan þúsundir vörunúmera byggingavara sem séu ýmist með viðurkennd umhverfis- merki, sjálfbærnivottanir eða sannanlega leyfðar í vistvottuð byggingarverkefni. „Þá eru þessar vörur orðnar samkeppnishæfar í verði og gefa eldri vörum ekkert eftir hvað varðar endingu og gæði. Nánast allt timbur sem við seljum í dag er til dæmis með sjálfbærni- og rekjanleikavottun.“ Bendir Árni þó á að opinberir aðilar mættu hugsanlega bæta eftirlit með gæð- um innfluttra byggingavara og vakta betur að allar þær vörur sem innfluttar eru á ís- lenskum markaði hafi tilskildar vottanir og fullnægi Evrópukröfum. „Því miður hefur borið á því að í samkeppni við viður- kenndar vörur séu aðilar að bjóða vörur sem ekki standast ýtrustu kröfur og staðla og henta jafnvel alls ekki við íslenskar að- stæður.“ Umhverfisáhrif og sjálfbærni að leiðarljósi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.