Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 31
VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 31 Nýsmíði, viðgerðir, viðhald. Vélsmiðja Suðurlands Selfossi • Gagnheiði 5 • 482 1980 „Við höfum þurft að bregðast hratt við. Í fyrstu héldum við að allt bóluefnið kæmi í einni sendingu og jafnvel bara ein tegund en svo flæktist þetta og flæktist og að lokum reyndust þetta fjögur bóluefni sem komu í litlum skömmtum. Það hafa komið sendingar í hverri einustu viku frá því að innflutningurinn hófst. Þetta var mjög flókið, ekki síst vegna þess að þarna er um að ræða fjóra ólíka lyfja- framleiðendur með sérstakar kröfur. Svo þurfti nýtt ferli fyrir nýtt bóluefni því hvert og eitt þeirra þarf að geyma við ákveðið hitastig. Það er eins og alltaf í þessum geira að við get- um ekkert fyrr en gæðadeildin okkar er búin að setja upp ferlana og gilda þá og gilda flutn- ingsumbúðir þannig að tryggt sé að þær haldi réttu hitastigi.“ Segir hún að þetta tímabil hafi reynst mjög lærdómsríkt og hlutirnir gengið í raun ótrú- lega upp. „Við erum líka stolt af samvinnunni við yfir- völd. Eftir Covid-verkefni þetta þá er sam- vinna einkafyrirtækja og ríkisins í lyfjamálum orðin sterkari. Þetta reyndist mikið átaks- verkefni.“ Distica var valið til þess að annast þetta mikilvæga verkefni í baráttunni við farald- urinn. Skýrist það einkum af því að þrír fram- leiðendanna voru þá þegar í þjónustu fyrir- tækisins, þ.e. Astra Zeneca, Pfizer og Janssen, og þá var ákveðið að það myndi einn- ig sjá um dreifinguna og umsjónina með Mod- erna. Segir Júlía Rós að sú ákvörðun hafi ver- ið mikilvæg. Ekki hefði verið heppilegt ef fleiri en eitt fyrirtæki hefði þurft að stýra þessari vinnu. Í ársreikningi Distica fyrir árið 2020 má sjá að veltan jókst um nærri fjóra milljarða á árinu og nam ríflega 24 milljörðum króna. Júl- ía Rós segir að þessi mikla aukning tengist faraldrinum en þó ekki bóluefnunum sem slík- um. „Við flytjum inn mikið magn hjúkrunarvara sem notaðar hafa verið í baráttunni í faraldr- inum. Það tengist ekki bóluefnunum sem slík- um heldur lækningatækjum á borð við sýna- tökupinnana og tæki sem notuð eru til að greina Covid-sýni. Þá erum við með hlífð- arbúnað ýmiskonar, grímur, hanska, spritt og slíkt og það varð gríðarleg aukning á innflutn- ingi þessara vara á þessum tímum, en einnig hefur samstæðan verið að fjölþætta í sínum rekstri, t.d. að fara út í aukna sölu annarra vara en lyfja og hefur sá hluti einnig aukist verulega.“ Hún segir áskoranir fylgja því þegar stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins er ríkið en ekki einkaaðilar. „Þessi geiri er sérstakur að því leyti að lyfjaverð á Íslandi er ákvarðað af ríkinu. Það er gefin út lyfjaverðskrá einu sinni í mánuði þannig að ríkið setur bæði verðið og er við- skiptavinurinn. Það gerir það að verkum að þessi markaður er ólíkur flestum. En það að vinna í lyfjageiranum er flókið og það eru mjög margir sérfræðingar sem koma að því að meðhöndla vörurnar. Þær eru einnig lífs- nauðsynlegar. Það rjúka ekki allir upp til handa og fóta þótt einhverjar vörur vanti í landinu á hverjum tíma en ef það vantar lyf þá gegnir öðru máli. Samvinnan við yfirvöld gengur vel og við vinnum þetta vel saman.“ Júlía Rós segir það ekki sjálfgefið að fyrir- tæki eins og Distica sé á lista yfir framúrskar- andi fyrirtæki. Það sé afrakstur þrotlausrar vinnu. „Distica byggir rekstur sinn á styrkum stoðum sem teygja sig langt aftur. Við leggj- um mikið upp úr því að hafa trausta og rétta ferla. Við viljum gera hlutina rétt í fyrsta skiptið. Við leitum allra leiða til að útrýma sóun og stytta ferla. Það er gert til þess að tryggja gott vöruverð og sinna viðskiptavin- unum sem best. Við erum mikilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfi landsins og því tökum við hlutverk okkar mjög alvarlega. Við viljum vera traustur samstarfsaðili og að við- skiptavinir okkar geti stólað á okkur. Þess vegna erum við ótrúlega stolt af því að til- heyra þessum fámenna hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi. Það er ekki sjálfgefið. Starfsfólk okkar hefur unnið hörðum höndum að því að byggja upp þetta frábæra fyrirtæki.“ Og hún segir faraldurinn hafa fært fyrir- tækinu lærdóm sem það muni nýta sér til þess að veita áfram framúrskarandi þjónustu. „Það er mikið regluverk í kringum lyfjamál á Íslandi og við höfum oft verið svifasein af þeim sökum. En ég held að við höfum séð það í faraldrinum að þegar við leggjumst öll á eitt getum við verið mjög snör í snúningum án þess að það komi niður á gæðum. Þannig að ég held að við höfum lært á þessu og við getum gert meira þegar á hólminn er komið. Þetta birtist líka í því að lyfjafyrirtækin lögðust öll á eitt við að þróa þessi bóluefni mjög hratt. Það var stórkostlegt afrek og einnig að sjá hvernig allt small hér heima til að koma þessu í dreif- ingu. Það voru allir uppnumdir yfir því að mæta í bólusetninguna hér heima og hvernig þetta var gert, algjörlega fumlaust.“ ses@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikil viðhöfn var þegar fyrstu bóluefnisskammtarnir komu til landsins. Vikulega hafa þeir bor- ist til landsins síðan og Distica haft veg og vanda af innflutningnum, hýsingu og dreifingunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.