Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI H ulda Guðný Kjartansdóttir, fram- kvæmdastjóri Miðbaugs ehf., rekstraraðila gleraugnaverslana Optical Studio, var ung að árum þegar faðir hennar, sjóntækjafræðingurinn Kjartan Bragi Kristjánsson, stofnaði Gler- augnaverslun Keflavíkur á Hafnargötunni í bænum árið 1982. „Pabbi lærði sjóntækjafræði hjá Herbert Pietsch, þýskum optikermeistara í Gleraugnaversluninni Optik í Reykjavík. Hann starfaði svo í eitt ár við fagið í Þýskalandi og lauk seinna sjónfræðinámi (námi í sjónmæl- ingum) frá Háskólanum í Kongsberg í Noregi,“ segir Hulda. Fyrirtækið rekur nú fjórar verslanir en þær eru auk verslunarinnar í Keflavík í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Smáralind og á Hafnartorgi í Reykjavík. Spurð um nafn fyrirtækisins segir Hulda að faðir hennar hafi keypt gleraugnaverslunina Optical Studio af bandaríska hernum sem hafði rekið gleraugnaverslun með því nafni á varnar- svæðinu. Það nafn hafi í framhaldinu þótt hent- ugt til að nota áfram, enda eigi birgjar erlendis erfitt með að bera fram íslenskt nafn eins og „Gleraugnaverslun Keflavíkur“ bendir Hulda á. Skrautfjöður á Hafnartorgi Verslunin á Hafnartorgi er skrautfjöðrin í hatti Optical Studio að sögn Huldu. „Þar erum við með allar flottustu vörurnar okkar. Sem dæmi, þegar við fáum mjög glæsilega vöru í einu eintaki komum við henni fyrir á Hafnar- torginu.“ Hulda mælir með að fólk komi á Hafnar- torgið ef það vill láta dekra við sig. „Starfsfólkið þar hefur góðan tíma til að snúast í kringum viðskiptavini. Þar er aðeins rólegra en í hinum verslunum okkar.“ Boðið er upp á fríar sjónmælingar í öllum verslunum og hægt er að panta á heimasíðu. „Við leggjum upp með að bjóða jafn góða þjón- ustu í öllum verslununum. Hjá okkur starfa ell- efu sjóntækjafræðingar,“ segir Hulda en alls starfa þrjátíu manns hjá félaginu. Aðspurð hvort það hafi ekki verið áfall þegar kórónuveirufaraldurinn brast á skömmu eftir opnun verslunarinnar á Hafnartorgi árið 2019 játar Hulda því. „Það var samt ótrúlegt hvað rættist úr því. Íslendingar eru spenntir fyrir nýjungum og þegar þeir voru búnir að átta sig á að það væri ekkert vandamál að leggja í mið- bænum, jafnvel auðveldara en við verslunar- miðstöðvarnar, þá var eftirleikurinn auðveldur.“ Að sögn Huldu er hægt að leggja í bílakjall- ara undir Hafnartorginu og ganga svo nánast beint inn í verslunina. Slíkt sé mjög þægilegt á veturna þegar veður er slæmt. Hlakka til að fá meira líf „Við hlökkum til að fá meira líf á torgið og bíðum spennt eftir fleiri ferðamönnum. Við er- um vongóð um að flæðið niðri í bæ verði gott, enda er mikil og spennandi uppbygging þar.“ Spurð hvað það sé helst sem ferðamennirnir kaupi í verslunum fyrirtækisins segir Hulda að þeir elski merkjavöru. „Þeir koma sérstaklega til okkar að kaupa lúxusvöru frá stóru tískuhús- unum eins og Gucci, Saint-Laurent, Cartier og Crome Hearts. Bandaríkjamenn og Kínverjar eru sérstaklega hrifnir af Crome Hearts, sem er vel þekkt gæðamerki. Fólk kemur langar leiðir til að kaupa þær vörur.“ Hulda segir aðspurð að þau hjá Optical Stud- io leggi sig fram um að halda verði á merkjavör- unni samkeppnishæfu við útlönd. „Verðið er skör lægra ef eitthvað er.“ Spurð um ákvörðun hennar sjálfrar að feta í fótspor föður síns segir Hulda að áður en hún tók við stjórnartaumunum í fyrirtækinu hafi hún starfað sem lögmaður. „Ég vann m.a. í hér- aðsdómi og við lagastofnun Háskóla Íslands og síðar meir í eigin rekstri. Árið 2017 fór ég að hugsa um að prófa að gera eitthvað tengt við- skiptum og rekstri. Ég hafði áður komið að rekstri fyrirtækisins sem ráðgjafi en eitt leiddi af öðru og ég ákvað að minnka við mig í lög- mennskunni og auka aðkomuna að Optical Studio. Ég er með lögmannsréttindin og tek að mér eitt og eitt mál, en tíminn er orðinn af skornum skammti.“ Skemmtilegra í fyrirtækjarekstrinum Spurð hvort sé skemmtilegra, fyrirtækja- reksturinn eða lögmennskan, segir Hulda að fyrirtækjareksturinn hafi vinninginn. „Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt. Þó að lög- mennskan sé fjölbreytt og skemmtileg þá er fyrirtækjareksturinn enn fjölbreyttari. Mér finnst líka gaman að geta unnið við tískubrans- ann og fylgst náið með straumum og stefnum, farið á sýningar og séð hvað er að gerast. Það er líka gaman að sinna markaðssetningu og aug- lýsingum fyrir verslanirnar. Þetta heillar mig meira en lögmennskan.“ Hulda segir að lögfræðin nýtist mjög vel í fyrirtækjarekstri svo sem við samningagerð og ákvarðanatökur í rekstrinum. Í faraldrinum fóru öll samskipti við birgjana yfir á netið. „Teams-fundirnir virkuðu ótrúlega vel en það kemur ekkert í staðinn fyrir að hitta fólk í eigin persónu. Á dögunum fórum við í fyrsta sinn í tvö ár á sýningu í París. Það var gaman að hitta fólkið aftur eftir tveggja ára hlé og máta og handleika vöruna á nýjan leik. Það skiptir gríðarlegu máli því tískubransinn þróast svo hratt.“ Eins og aðrar verslanir í Leifsstöð varð Opti- cal Studio fyrir miklu raski þegar faraldurinn stöðvaði öll ferðalög milli landa. Nú er umferð um völlinn aftur að aukast. „Það er allt í mikilli uppsveiflu núna. Fólk er aftur farið að ferðast til útlanda. Það er líf og fjör að færast í húsið á ný.“ Hagnaður jókst milli ára Fyrirtækið var rekið með 83 milljóna króna hagnaði á síðasta ári og jókst hagnaðurinn um rúmar 25 milljónir frá fyrra ári. „Ég er mjög ánægð með niðurstöðu síðasta árs. Við náðum að halda sjó í gegnum faraldurinn. Við vorum passasöm og héldum kostnaði í lágmarki. Við erum stöðugt á tánum og fylgjumst vel með öll- um tölum. Það má aldrei sofna á verðinum. Þó að við höfum lokað í flugstöðinni þá kom á móti að meira var að gera í hinum verslununum okk- ar. Verslunin færðist heim þegar Íslendingar komust ekki til útlanda og við nutum góðs af því. Reksturinn hefur gengið framar vonum í faraldrinum, sem var ekki fyrirséð.“ Optical Studio hefur meðal annars nýtt tím- ann til að uppfæra heimasíðuna. Hún er nú að sögn Huldu öflugri og flottari en áður. Þangað inn fari allar vörur og fólk geti skoðað úrvalið og verslað. Þarf að hemja sig í fjölskylduboðum Auk Huldu starfar bróðir hennar hjá félaginu auk annarra fjölskyldumeðlima. „Bróðir minn sér um tæknimálin. Svo hefur nýstúdentinn dóttir mín unnið hér. Hún fór með mér á sýn- inguna í París um daginn og aðstoðaði við inn- kaupin. Það er gott að fá unga fólkið inn til að aðstoða við tískuna. Þá hefur bróðursonur minn unnið hér og móðir mín starfaði í félaginu um árabil. Maðurinn minn, sem er lögmaður, kem- ur líka að stjórnun félagsins og sinnir ráðgjöf. Þetta er því sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Maður þarf að hemja sig í fjölskylduboðunum að tala ekki bara um fyrirtækið, enda er það að- aláhugamálið,“ segir Hulda að lokum og brosir. tobj@mbl.is Ferðamennirnir elska merkjavöru Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 303. sæti OPTICAL STUDIO Meðalstórt 105. sæti Hulda Guðný Kjartansdóttir Spurð um stefnur og strauma í gleraugna- tískunni segir Hulda að í dag sé í tísku að vera með keðjur í gleraugunum. „Það þykir flott í dag. Við sjáum þetta til dæmis í gler- augum frá Gucci. Þá hangir keðjan niður á bringu eins og hálsmen. Svo er hægt að taka keðjuna af ef maður vill.“ Hulda hvetur fólk til að prófa gleraugu af mörgum stærðum og gerðum. „Fólk á ekki að vera feimið við að vera með alls konar gleraugu. Það fer til dæmis litlu andliti vel að vera með stór gleraugu.“ Hún segir að fólk ætti að hafa mörg gler- augu til skiptanna, enda er andlitið mest áberandi partur líkamans. „Þú átt kannski mörg skópör fyrir mismunandi tilefni en að- eins ein gleraugu. Þú ættir að leyfa þér að eiga til dæmis ein létt og þægileg til að nota heima, en önnur þegar þú ert að fara út sem eru þá í stíl við aðra skrautmuni eða fatnað.“ Keðjur þykja flottar í dag Huldu finnst gaman að geta unnið við tísku- bransann og fylgst náið með straumum og stefnum, farið á sýningar og séð hvað er að gerast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.