Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 38
Í
Síðumúla eitt er starfrækt fjölskyldu-
fyrirtæki sem kemur að mörgum sýni-
legum verkefnum í borgarlandinu og
raunar víðar. Verksýn var stofnað árið
2006 af Reyni Kristjánssyni, múrarameist-
ara og byggingafræðingi, og í dag á hann
fyrirtækið ásamt eiginkonu sinni og tveimur
sonum.
Reynir segir að upphaf fyrirtækisins megi
rekja til þess þegar hann áttaði sig á að
stóru verkfræðistofurnar höfðu ekki gefið
viðhaldsverkefnum, ekki síst fjölbýlishúsa,
minni gaum en mörgum öðrum verkefnum.
„Ég réð mig til fyrirtækis sem hét Verk-
vangur árið 1999. Það fyrirtæki sérhæfði sig
í viðhaldsmálum. Svo færði ég mig til
Eignaumsjónar sem kemur að rekstri fjöl-
býlishúsa. Að lokum varð að samkomulagi
milli mín og þáverandi eigenda fyrirtækisins
að ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki og tæki
viðhaldsmálin með mér.
Þannig varð Verksýn til og stuttu síðar
keypti Reynir viðhaldsdeild Verkvangs og
lagði inn í Verksýn og þannig var hann á
einhvern hátt kominn í hring.
„Það sem dreif mig áfram í þetta var að
þessum markaði var ekki nægilega vel
sinnt. Þessi viðhaldsmál voru að mörgu leyti
afgangsstærð hjá stærri aðilum. Þá lét ég
vaða og fór af stað. Fyrstu árin vorum við
tveir til fjórir en í dag eru starfsmenn 21,
að meðtöldum okkur eigendunum.
Fastmótaðir verkferlar
Reynir segir að fyrirtækið byggi á mjög
fastmótuðum ferlum sem skipti miklu til að
tryggja gæði þjónustunnar.
„Þegar viðskiptavinur kemur til okkar þá
er vegvísirinn mjög ljós. Við byrjum alltaf á
ástandsskýrslu. Svo eru hugmyndir lagðar
fyrir húsfundi. Þá er ráðist í útboð á grund-
velli vandaðra útboðsgagna og svo fylgjum
við verkum eftir til þess að eigendur þurfi
ekki að hafa áhyggjur af framkvæmdinni.
Við köllum eftir og semjum við verktaka.
Verksýn er ekki framkvæmdaaðili þegar
kemur að viðhaldi húsa heldur ráðgjafi og
hefur umsjón með að hlutirnir gangi vel fyr-
ir sig. Þannig geta viðskiptavinir leitað til
fyrirtækisins þegar komið er að viðhaldi og
látið Verksýn, með fulltingi annarra sér-
fræðinga, sjá um málið frá a til ö.“
Vanda val á samstarfsaðilum
Segir Reynir m.a. að mjög mikilvægt sé
að hafa reynslu af þeim verktökum sem
kallaðir eru til starfa.
„Það er partur af okkar gæðakerfi. Við
erum mjög grimm við verktakana, t.d. hvað
varðar fjárhagsstöðu þeirra. 99% af okkar
verkefnum fara í lokuð útboð. Við bjóðum
tilteknum verktökum að bjóða í verk. Við
auglýsum ekki eftir samstarfsaðilum. Það
hefur einfaldlega ekki reynst vel. Eftir ára-
tugi í þessum geira þekkir maður mark-
aðinn mjög vel og þannig er sérstaklega
hægt að sigta út þá aðila sem við teljum
ekki hæfa til samstarfs.“
Hann segir verkefnin sem fyrirtækið
komi að af öllum stærðum og gerðum.
Stærri verkefnin séu um 250 milljónir að
umfangi.
„Við segjum svo auðvitað ekki nei við litlu
húsfélögin og sum verkefnin eru einhvers
staðar á bilinu 10 til 15 milljónir og svo þar
upp úr.“
Þá hefur Verksýn einnig komið að ný-
framkvæmdum, m.a. að skólamannvirkjum í
Grindavík.
„Við störfuðum talsvert fyrir Grindavík á
sínum tíma og það samstarf gekk allt mjög
vel. Við komum þannig að eftirliti með upp-
byggingunni á íþróttamiðstöðinni og Hóp-
skóla sem eru glæsilegar byggingar. Síðar-
nefnda byggingin var hönnuð af Loga
Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar.
Það var mjög gaman að vinna með honum
að þessu verkefni. Hann er mjög röggsamur
arkitekt. Það var einnig byggt við grunn-
skólann í Grindavík og við gerðum einnig
úttektir á öllum eignum bæjarins og það var
staðið að miklum endurbótum á þeim eign-
um á árunum eftir hrun. Þau nýttu þann
tíma mjög vel til að koma sínum eignum í
gott stand.“
Þá hefur Verksýn einnig komið að mjög
stórum verkefnum í Mosfellsbæ á síðustu
árum.
„Við höfum verið byggingarstjóri að
Helgafellsskóla frá árinu 2017. Þetta er
verkefni sem er upp á u.þ.b. 3,5 milljarða og
þarna erum við bæði eftirlitsaðili fyrir sveit-
arfélagið og ég skrifa upp á það sem bygg-
ingarstjóri. Í fyrri áfanganum fórum við í
gegnum þetta með Ístaki og nú með Flot-
gólfi. Seinni áfanginn verður afhentur á
næstu dögum.“
Hann segir að fyrirtækið vinni einnig að
mörgum verkefnum fyrir Reykjavíkurborg.
„Við höfum m.a. eftirlit með nýju íþrótta-
húsi fyrir ÍR í Mjódd. Það er mjög spenn-
andi verkefni. Þá erum við einnig að prófa
okkur áfram með nýja nálgun á byggingar-
markaði. Það er fyrir fjárfestahóp sem er að
byggja 70 íbúða hús í Vogahverfinu. Sá aðili
er með verktaka sem einnig er byggingar-
stjórinn. Við höfum hins vegar gæðaeftirlit
með höndum. Þetta er dálítið ný nálgun,
þ.e. að það sé sérstakt gæðaeftirlit með hús-
næði sem verið er að byggja og selja. Þetta
mun draga úr hættunni á því að menn þurfi
að standa í eftirhreytum og lagfæringum
sem hefði verið hægt að ráðast í og laga
með minni tilkostnaði á framkvæmdatím-
anum.“
Ný nálgun og spennandi
Reynir segist ekki vita hvort þessi nálgun
muni ryðja sér til rúms.
„Ég vona að reynslan af þessu verði góð
og að menn átti sig á að þetta sé heppileg
aðferðafræði. Þetta kostar eitthvað meira á
framkvæmdatímanum en þetta á að draga
úr kostnaði við lok framkvæmda og afhend-
ingu.“
Hann segir að þótt fyrirtækið feti þarna
nýja slóð þá haldi það þéttingsfast í við-
haldsmarkaðinn. Þar liggi sérþekking fyrir-
tækisins ekki síst. Sá markaður þróist þó á
hverjum tíma og samstarfið við Jón Má
Halldórsson líffræðing sé dæmi um það.
„Við efndum til samstarfs við hann og
fengum hann til liðs við okkur til þess að
fást við úrlausn myglumála í húsum. Við
höfum reynt að nálgast þau mál út frá að-
ferðafræði sem Danir eru mjög framarlega
í. Þeir nálgast þetta þannig að þótt mygla
komi upp þá séu hlutirnir ekki ónýtir. Það
má koma hlutum í samt horf á ný. Við erum
í samstarfi við danskt fyrirtæki sem er gott
enda er það svo að mygla er þrálátara og
erfiðara vandamál viðfangs í Danmörku en
hér á landi en þar hefur það aldrei gerst að
hús hafi verið rifið vegna myglu. Stundum
er gengið langt í þessum málum hjá okkur
og okkur hefur gengið ágætlega í verk-
efnum sem þessum, þ.e. að uppræta myglu
og komast alfarið fyrir vandann.“
Reynir segir erfitt að svara því hvað geri
fyrirtæki á borð við Verksýn framúrskar-
andi. Það séu án efa margir þættir.
„Við erum með mjög öflugan hóp starfs-
manna og starfsmannaveltan er mjög lítil.
Þá langar mig að nefna að foreldrar mínir
voru fæddir í kringum 1925 og þau kenndu
mér að sýna ábyrgð í fjármálum. Þannig hef
ég rekið mín fyrirtæki. Það þarf að byggja
þau rólega upp. Erum í Síðumúla 1 og þar
erum við í eigin húsnæði, skuldum lítið og
tökum lítið út úr rekstrinum. Við rekum
þetta einfaldlega eins og hagsýn húsmóðir.“
Hann segir skipta öllu að vera með ánægt
starfsfólk.
„Þá er fólk tilbúið til að hlaupa hraðar.
Við erum ekki með stimpilklukku. Við gerð
síðustu kjarasamninga þegar farið var að
tala um styttingu vinnuvikunnar veltum við
vöngum yfir því hvað við gætum gert til
þess að bregðast við því. Við vorum þá með
vinnutíma milli átta og fimm nema til klukk-
an fjögur á föstudögum. Þetta voru í kring-
um 37 stundir á viku. Við erum með margt
barnafólk í vinnu og við tókum þá ákvörðun
að stytta tímann þannig að hann væri frá
8:30 til 16:00 og til 15:00 á föstudögum. Við
skárum u.þ.b. 20 tíma á mánuði af hverjum
starfsmanni og framlegðin minnkaði ekki.
Þetta var mjög djarft skref en það heppn-
aðist fullkomlega. Það kann fólk að meta.“
ses@mbl.is
Styttu vinnuvikuna um fimm stundir
Morgunblaðið/Unnur Karen
Verksýn er sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Helga Hauksdóttir, Reynir Kristjánsson, og Andri Már Reynisson stilla sér upp fyrir myndatöku en
Birgir Rafn Reynisson var fjarverandi vegna fæðingarorlofs. Fjölskyldan starfar öll hjá fyrirtækinu sem stofnað var árið 2006.
624. sæti
VERKSÝN
Meðalstórt 314. sæti
Reynir Kristjánsson
Verksýn hafði m.a. umsjón með miklum endurbótum á Blikahólum 2-4 í Breiðholti.
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI