Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI V erk THG arkitekta blasa við víða í borgarlandslaginu; hótel, hjúkr- unarheimili, íbúðarhús, skrifstofur og verslanir svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið hefur að sögn Freys Frostasonar arkitekts og meðeiganda alltaf lagt áherslu á góðan og stöðugan rekstur. Velta félagsins var svipuð árin 2019 og 2020 þrátt fyrir sam- drátt vegna veirufaraldursins. „Við höfum alltaf passað vel upp á okkar rekstur,“ segir Freyr. „Við reynum að spenna bogann ekki of hátt. Fyrirtækið er nánast skuldlaust og við forðumst áhættu í rekstri. Þessi geiri sveiflast dálítið mikið upp og niður í takt við efnahagslífið hverju sinni og margar stofur fóru til dæmis illa út úr hruninu. En við höf- um reynt að hafa bæði belti og axlabönd hvað fjármál og rekstur varðar og horfum til framtíðar.“ Afkoman góð í fyrra Rekstur stofunnar gekk nokkuð vel í fyrra að sögn Freys. „Afkoman var góð í fyrra. Við erum með mjög trausta viðskiptavini og gott samstarfsfólk í verkefnum, bæði einka- aðila og opinbera aðila sem bera mikið traust til okkar. Þó að ákveðin verkefni hafi verið sett í bið í faraldrinum héldu önnur áfram þrátt fyrir ástandið. Það hjálpaði okk- ur að fara í gegnum tímabilið með nánast óbreyttan starfsmannafjölda milli ára. Ár- angurinn er góðu starfsfólki og viðskipta- vinum okkar að þakka,“ útskýrir Freyr. THG arkitektar skera sig frá flestum öðr- um arkitektastofum að því leyti að innan stofunnar er sérstök tæknideild sem sér um verkefnastjórnun og eftirlit. „Við fylgjum verkefnum eftir alla leið þar til byggingar eru komnar í notkun. Verkefnin eru mjög fjölbreytt, allt frá skipulagstengdum hönnunarverkefnum að deiliskipulagi og allt niður í innréttingar húsa, hvort sem það er atvinnu- eða íbúðarhúsnæði.“ Stór og smá verkefni Freyr segir að verkefnin séu því bæði stór og smá og nefnir sem dæmi að THG arki- tektar séu aðalhönnuðir Kringlunnar. „Þegar einstaka verslun er breytt í verslunarmið- stöðinni fer það alltaf í gegnum okkur. Svo erum við með stór verkefni eins Curio by Hilton-lúxushótelið á Landsímareitnum og Sléttuna, lífsgæðakjarna fyrir aldraða við Sléttuveg.“ Eins og Freyr útskýrir snúa 25-30% af verkefnum fyrirtækisins að verkefnastjórnun og eftirliti. „Við erum með óvenjumarga tæknimenn og byggingarfræðinga innan okkar vébanda. Við skiptum félaginu í raun upp í THG arkitekta og THG ráðgjöf. Við viljum skapa ráðgjöfinni aukna sérstöðu.“ Spurður um gildi þessa fyrirkomulags segir Freyr að það að hafa allt ferlið undir sama þaki auðveldi öll samskipti. „Það hefur reynst bæði hagkvæmara fyrir verkkaupa og sparað talsverðan tíma. Ef þetta er hvort í sínu lagi, þ.e. að ráðgjöfinni sé sinnt af öðr- um aðilum, getur komið upp ágreiningur.“ THG arkitektar hafa hannað fjölda hótela á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal Hótel Marina og Konsúlathótelið. Verið er að leggja lokahönd á fyrrnefnt lúxushótel á Landsímareit. Þá er fyrirtækið með talsvert af íbúðalóð- um í byggingu í Vogabyggð í Reykjavík, á Héðinsreit og á fleiri stöðum. Spurður um þátttöku í samkeppnum segir Freyr að stofan reyni að taka þátt í einni slíkri á hverju ári. „Síðast lentum við í öðru sæti í samkeppni um miðborgarleikskóla fyr- ir aftan Austurbæjarbíó. Nú erum við nýbú- in að skila tillögu okkar að höfuðstöðvum Icelandair á Völlunum í Hafnarfirði.“ Hóf störf með stofnandanum Freyr hefur starfað hjá THG arkitektum um árabil. „Ég hóf störf hjá stofnanda stof- unnar, Halldóri Guðmundssyni, árið 1997, eftir nám hjá Architectural Association í London og SCI-Arc í Los Angeles.“ Skólinn í Los Angeles var framúrstefnu- legur að sögn Freys, sem kaus að fara ekki til Danmerkur í nám eins og flestir gerðu á þessum tíma. „Ég heyrði af þessum skóla í gegnum kunningja og ákvað að láta slag standa. Ég fór svo í framhaldsnám til Lund- úna en Architectural Association er einn elsti arkitektaskóli í heimi. Ég stundaði þar nám í rannsóknararkitektúr. Við vorum einkum að skoða þarfir tölvufyrirtækja til framtíðar.“ Rannsókn Freys og skólasystkina snerist þannig um samvinnurými starfsmanna og það hvernig hin hefðbundna skrifstofa heyrði sögunni til. Fólk myndi í framtíðinni vinna í opnu rými og í samvinnukjörnum. Blaðamaður spyr hvernig þau fræði hafi elst. „Þetta hefur þróast á svipaðan hátt og við vorum að skoða þarna á þessum tíma. Opið skrifstofurými er orðið ráðandi. Áhersla er orðin á að einu lokuðu rýmin séu fundarrými eða svona tímabundin verkefnatengd sam- verurými þar sem nokkrir samstarfsaðilar koma saman.“ Spurður um strauma og stefnur í dag í þróun skrifstofuhúsnæðis segir Freyr að aukin krafa sé nú gerð um næði í vinnu. Það að geta einbeitt sér betur að vinnunni þyki mikilvægt og sé að koma sterkar inn, eins og Freyr orðar það. Fólk vilji geta lokað sig af til að vinna verkefnin í algjörri þögn. „Sá möguleiki fyrir t.d. 2-3 starfsmenn að loka sig af í nokkrar vikur í vinnuumhverfi sem þeir geta lagað að sínum þörfum fyrir ákveð- ið verkefni er það sem koma skal.“ Menningarstarfsemi og verslun Um helstu tískustrauma í öðrum teg- undum bygginga minnist Freyr á hótel- hönnun. „Í dag er áhersla lögð á að á jarð- hæð hótela sé blanda af menningarstarfsemi og verslun, að jarðhæðin sé eins konar al- menningsrými til að auka fjölbreytileika í upplifun ferðamanna. Að hótelin séu lifandi rými en ekki bara móttökusalur sem gengið er inn í af götunni. Reykjavíkurborg ætti að taka svona þróun fagnandi í stað þess að berjast á móti hótelstarfsemi í miðbænum. Svona fyrirkomulag ýtir undir líf og menn- ingu og skapar mannlegt flæði í mið- bænum.“ Gott dæmi um þetta að sögn Freys er nýja Marriot Edition-hótelið á hafnarbakk- anum í Reykjavík. Sami hátturinn er einnig hafður á í Curio by Hilton sem THG eru að ljúka við. „Í dag er orðið algengt að fólk hittist á fundum eða í kaffi í hótellobbíum, til að eiga samtal. Flæði almennings inn í hótelrýmin er að aukast og því ber að fagna.“ Freyr segir að ferðamenn vilji komast í nána snertingu við íbúa á hverjum stað. „Ef þú ert ferðamaður viltu vera í sama rými og fólkið sem býr á staðnum og notar rýmið frá degi til dags,“ segir Freyr að lokum. tobj@mbl.is Aukin krafa um næði Morgunblaðið/Unnur Karen Freyr segir að verkefnin séu mjög fjölbreytt, allt frá skipulagstengdum hönnunarverkefnum að deiliskipulagi og allt niður í innréttingar húsa. 277. sæti THG ARKITEKTAR Meðalstórt 89. sæti Freyr Frostason Um það hvort einhver ákveðinn stíll sé ráðandi í hönnun stofunnar segir Freyr að svo sé ekki. Stíllinn sé fjölbreyttur. Það eigi reyndar við um flestar arkitektastofur hér á landi, enda sé markaðurinn lítill og nauðsynlegt að geta sinnt ólíkum úrlausnarefnum. „Við þurf- um að geta sinnt allt frá endurgerð friðaðra húsa upp í stórar glerbyggingar eða háhýsi. Leiðarljós í okkar starfsemi er frekar að hafa fjölbreytni og staðaranda ofarlega í huga. Stíllinn er því mjög breytilegur eftir því hvert verkefnið er og hvar það er staðsett.“ Fjölbreytni og staðarandi Curio by Hilton-lúxushótelið á Landsímareitnum er hannað af THG arkitektum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.