Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 24
Í slandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, eru með um tólf þúsund viðskiptavini og hátt í fjögur hundruð milljarða í stýringu. Nánar tiltekið 377 milljarða í júní síðastliðnum. Íslandssjóðir eru meðal framúrskarandi- fyrirtækja hjá Creditinfo í ár. Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmda- stjóri Íslandssjóða, segir þá ánægjulegu breyt- ingu hafa orðið síðustu vikurnar að viðskipta- vinir séu aftur farnir að koma í kaffibolla til að ræða málin, fara yfir sitt eignasafn og sína stöðu, eftir að kórónuveirufaraldurinn gekk til baka. „Maður hefur saknað þessara samskipta við viðskiptavini,“ segir Kjartan Smári og útskýrir að Íslandssjóðir aðstoði sparifjáreigendur við að ávaxta fjármuni sína. Með um 12 þúsund viðskiptavini „Okkar viðskiptavinir eru í kringum 12 þús- und manns á Íslandi, mest einstaklingar, og okk- ar mikilvægasti viðskiptavinahópur eru almenn- ir sparifjáreigendur, venjulegt fólk, sem er að byggja undir sitt fjárhagslega sjálfstæði með því að leggja fyrir, reglubundið eða óreglulega. Ís- landssjóðir eru dótturfélag Íslandsbanka þannig að allir viðskiptavinir bankans geta keypt í sjóð- um Íslandssjóða, í gegnum þjónustu bankans í útibúum og í netbankanum eða með appinu. En það er gaman að segja frá því að við vorum fyrst til að bjóða upp á viðskipti með sjóði í gegnum app, en Íslandssjóðir komu inn í Íslandsbanka- appið í sumar,“ segir Kjartan Smári. En Ís- landssjóðir bjóða hlutabréfasjóði, blandaða sjóði og skuldabréfasjóði. Nánar tiltekið fjóra hluta- bréfasjóði, níu blandaða sjóði og tíu skuldabréfa- sjóði. Nokkrar gerðir af hlutabréfasjóðum „Félagið var stofnað árið 1994 og síðan þá hef- ur sjóðaúrvalið okkar sífellt verið að þróast og nú erum við með besta úrvalið af sjóðum á ís- lenskum markaði. Við notum aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga í allri okkar stýringu, með sérstaka áherslu á loftslags- og jafnréttismál. Við erum með nokkrar gerðir af hlutabréfa- sjóðum, allt frá hagkvæmum og ódýrum kostum, eins og Úrvalsvísitölusjóðinn, sem er hlutlaus vísitölusjóður sem dreifir fjármagni sínu eins og úrvalsvísitala kauphallarinnar er samsett, upp í virka sjóði eins og EQUUS, sem er áhættu- sæknari og tekur virkar stöður á innlendum hlutabréfamarkaði. Svo erum við með úrval af skuldabréfasjóðum en elstu ríkis- skuldabréfasjóðirnir okkar eru yfir 30 ára gaml- ir. Þá bjóðum við gott úrval af sértryggðum skuldabréfasjóðum sem fjárfesta í sértryggðum skuldabréfum bankanna. Þar erum við í raun að fjármagna íbúðalánastarfsemi bankanna allra, sem gefa út sértryggð bréf með veði í sínum íbúðalánum. Þetta er því gott úrval af sjóðum, á öllum áhættuskalanum, en við höfum í gegnum tíðina lagt heldur meiri áherslu á áhættuminni fjárfestingarkosti.“ Kynjahlutföllin eru orðin jöfn Kjartan Smári varð framkvæmdstjóri Íslandssjóða fyrir fimm árum. Þá voru tíu karlar í vinnu hjá sjóðnum en ein kona. Nú eru kynja- hlutföll jöfn og tíu karlar og tíu konur eru starf- andi hjá félaginu í dag. „Ég hef alltaf verið með þá grundvallarsýn að jafnvægi í þessum efnum skiptir miklu máli. Þá sérstaklega þegar kemur að ákvarðanatöku í flóknum hlutum, eins og fjárfestingum og slíku. Ég er mjög stoltur af þessari breytingu. Mörg sambærileg fyrirtæki á markaðnum eru óttaleg- ir hrútakofar, ef svo má að orði komast, en við höfum náð að byggja þetta svona upp og það þurfti auðvitað átak til að byrja með. Við gerum reglulega kannanir og mælist starfsánægja hjá Íslandsssjóðum í hámarki eftir að við náðum jafnvægi milli kynjanna. Það mega ekki vera öfgar í hvora áttina sem er. Ég hef í gegnum tíð- ina verið stjórnandi bæði á kvennavinnustöðum og karlavinnustöðum og hvort tveggja er frekar afleitt,“ segir Kjartan Smári. – Hvernig myndirðu lýsa verkefnum starfs- manna? „Reynsla og þekking skiptir meginmáli í okk- ar störfum. Íslandssjóðir er mikið sérfræðifyr- irtæki. Það mætti segja ég sé sá eini hjá Íslands- sjóðum sem stýrir ekki peningum heldur stýri ég fólki og fólkið mitt er að stýra peningum, ann- aðhvort í gegnum sjóði eða eignasöfn, og ég er afskaplega stoltur af hópnum. Við erum að með- altali með 18 ára reynslu af eignastýringu og í starfinu felst að okkur er treyst fyrir jafnvel aleigu fólks og við tökum þá ábyrgð mjög alvar- lega. Hjá slíku fyrirtæki skiptir mannauðurinn öllu máli.“ – Hvað gerir fyrirtækið sérstakt? Hvers vegna eruð þið framúrskarandi? „Við höfum í gegnum tíðina skilað okkar við- skiptavinum afburðaárangri í formi ávöxtunar og það skiptir auðvitað mestu máli í okkar fagi. Við horfum til langs tíma í okkar ákvörðunum, gjarnan til fimm til tíu ára, en sjóðirnir hafa ver- ið að skila að meðaltali 6% ávöxtun á ári síðustu árin og hlutabréfasjóðirnir í kringum 25% ávöxt- un. Það er töluvert betri ávöxtun en hjá helstu samkeppnisaðilum. Það er þetta sem kunnáttan og færnin hjá starfsfólkinu skilar.“ Árlegar fræðsluferðir fyrir starfsfólk – Hvernig heldurðu uppi góðum starfsanda? Hvernig er vinnustaðamenningin? „Hún er svolítið einstök að því leyti að við er- um fámennur og þéttur hópur og við gerum margt saman. Við reynum að sækja saman fræðslu eða endurmenntun til útlanda að minnsta kosti einu sinni á ári og þá með mökum. Við höfum verið með árlegar fræðsluferðir sem við reynum að gera pínulítið skemmtilegar í leið- inni. Við erum líka dugleg að fagna sigrunum en í okkar geira eru þeir gjarnan smáir og tíðir,“ segir Kjartan Smári að lokum. baldura@mbl.is Söknuðu að hitta viðskiptavini Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, segir fjárfestingu í hlutabréfum hafa skilað nýjum hluthöfum mikilli ávöxtun í ár. 79. sæti ÍSLANDS- SJÓÐIR Stórt 79. sæti Kjartan Smári Höskuldsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Félagið 105 Miðborg byggir íbúðir og atvinnuhúsnæði á Kirkjusandi. Það er fagfjárfestasjóður í stýringu hjá Íslandssjóðum. Meðal verkefna Íslandssjóða hefur verið rekstur og stýring á fagfjárfestasjóðnum 105 Miðborg sem byggt hefur upp hús- næði á fjórum af níu reitum á Kirkju- sandi í Reykjavík. Umrætt félag byggði fjölbýlishúsin Stuðlaborg (77 íbúðir) og Sólborg (52 íbúðir) og er nú að reisa Sjávarborg en þar verða skrifstofur sem hafa verið auglýstar að undanförnu. Þá mun félagið byggja fjölbýlishúsið Borgartún 41 en þar verða 30 íbúðir. Jafnframt verða atvinnurými á jarð- hæð Sólborgar en nýverið var lokið við að tyrfa og helluleggja svæðið. Það mun svo taka enn meiri breyt- ingum þegar gamla Íslandsbankahúsið víkur fyrir nýrri húsaþyrpingu. Koma að upp- byggingu íbúða 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.