Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 67
1. sæti
MAREL
Stórt 1. sæti
Guðbjörg Heiða
Guðmundsdóttir
um eins og Suður-Ameríku og Austur-Asíu,
séu óðum að sjálfvirknivæða starfsemi sína
þar sem það sé ein besta leiðin til að auka
gæði og tryggja rekjanleika. Þá er einnig víða
skortur á starfsfólki til þess að taka að sér
störf í matvælavinnslu og eru sjálfvirkar
lausnir, byggðar á nýjustu tækni, lausn við
því. „En það skiptir líka máli að um er að ræða
markaði sem hafa náð að vaxa og eru núna af
þeirri stærðargráðu að fyrirtækin hafa nægi-
legt fjármagn til að ráðast í kaup á hátækni-
vinnslutækjum.“
Þrýstingurinn kemur líka frá neytendum
sem gera t.d. kröfu um fullkomlega hreinsaða
og gallalausa kjötvöru og sjávarfang sem að-
eins er hægt að framleiða með gervigreind,
röntgentækni, tölvusjón og fullkomnustu
skurðarvélum. „En hegðun neytenda er líka
að breytast að því leyti að matarinnkaupin eru
að færast yfir á netið, og því enn brýnna að
pakkningar og stærðir séu staðlaðar: af sömu
gæðum, jafnþungar og jafnstórar. Þegar
keypt er í matinn á netinu er ekkert sem heit-
ir að panta fisk dagsins eða velja flak úr fisk-
borðinu, heldur pantar neytandinn ákveðna
vöru og ætlast til þess að hún sé alveg eins í
dag og hún var í síðustu viku.“
Tækifærin eru óteljandi og þegar hægt að
greina nokkur mikilvæg svið þar sem há-
tæknilausnir við matvælavinnslu munu ryðja
nýjar brautir, neytendum og framleiðendum
til hagsbóta. Eru t.d. margir sem fylgjast
spenntir með þróuninni í framleiðslu frumu-
ræktaðs kjöts og gervikjöts úr plöntuafurðum.
Rétt eins og Marel hefur yfirfært vinnslu-
tækni úr kjöti í kjúkling eða úr fiski í kjúkling
þá geta ýmsar lausnir fyrirtækisins einnig
nýst við vinnslu á gervikjöti eins og sannast
hefur til dæmis með samstarfi Marels við
Beyond Meat. Segir Guðbjörg Heiða á sama
tíma tækifæri til þess að auka enn frekar nýt-
ingu og gæði við vinnslu á kjöti, kjúklingi og
fiski þar sem eftirspurnin fari vaxandi. Þar
sér Marel mikil tækifæri til áframhaldandi
þróunar og nýsköpunar. „Áherslan er sterk á
að lágmarka sóun í matvælaframleiðslu og há-
marka nýtingu og virði afurðanna: búa t.d. til
betri og verðmætari vöru úr dýraafurðum sem
áður voru ekki fullnýttar eða nýttar sem af-
skurður. Stundum getur lausnin einfaldlega
verið að tengja saman rétta markaði því það
sem á einum stað getur verið álitið hliðarafurð
kann á öðrum stað að þykja mikið hnossgæti,
og er gott dæmi um þetta hvernig mat-
arhefðin í sumum löndum er þannig að versl-
anir fylla hillur af kjúklingabringum og -lær-
um, en gera lítið við innyflin úr fuglinum á
meðan í öðrum löndum er það innmaturinn
sem sælkerarnir sækjast sérstaklega eftir.“
Urðu sveigjanlegri í faraldrinum
Eins og hjá flestum öðrum fyrirtækjum var
kórónuveirufaraldurinn áskorun fyrir Marel.
Starfsfólkið sneri bökum saman og aðlagaðist
breyttum veruleika, og kom líka í ljós hvers
konar sveigjanleika og aðlögunarhæfni tæknin
býður upp á. Gátu t.d. tæknimenn Marels hug-
að að ástandi tækja yfir netið og haldið áfram
að þjónustu viðskiptavini, starfsfólkið tekið
þátt í þjálfun þvert á heimsálfur og sölumenn
haldið fundi með viðskiptavinum þrátt fyrir að
stærstu vörusýningar og viðburðir hefðu verið
blásin af. Nefnir Guðbjörg Heiða að á síðasta
ári hafi Marel haldið 364 viðburði á netinu, eða
að jafnaði nærri einn viðburð hvern einasta
dag ársins. „Við færðum okkur einfaldlega yf-
ir á netið og tókst að halda takti á sama tíma
og við tryggðum góðar smitvarnir. Ég er
óendanlega stolt af því hvernig starfsfólk
Marels kom saman og tókst á við þessa áskor-
un,“ segir Guðbjörg Heiða og bætir við að
þegar mest lét hafi um 3.000 af 6.800 starfs-
mönnum fyrirtækisins unnið skrifstofustörf
heiman frá sér. Var reynslan svo góð að í kjöl-
farið var ákveðið að taka það skref að innleiða
sveigjanlegri vinnustefnu þar sem starfsfólki
er gefið val og mun meira svigrúm til að vinna
fjarvinnu. „Við hreinlega spurðum okkar fólk
hvaða fyrirkomulag því þætti eftirsóknarverð-
ast og fylgdum síðan þeim óskum eftir.“
ai@mbl.is
Ljósmynd/Marel
Gervigreind og sýndarveruleiki skiptir æ meira máli í allri hátæknihönnun. Marel er þar engin
undantekning. Á forsíðu blaðsins má sjá starfsmenn fyrirtækisins fást við verkefni á þeim grunni.
VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 67
Hafðusambandogsamanfinnumviðbestu lausnina!
Fyrirtæki
Stórhöfða 23 / 110 Reykjavík / 414 1999 / tryggja@tryggja.is / www.tryggja.is
fyrirnetárásum
þurfaað
Við höfum ýmsar lausnir
fyrir fyrirtækið þitt
JAFNVÆGISVOG
2021
VIÐURKENNING
sig
Framtíðin virðist mjög björt og þótt Marel glími við margar skammtíma- og lang-
tímaáskoranir er Guðbjörg Heiða jákvæð og spennt að takast á við verkefnin. Spurð
hverju gæti helst þurft að breyta eða bæta í rekstrarumhverfinu nefnir hún að halda verði
áfram að skapa sem hagfelldastar aðstæður fyrir fyrirtæki sem byggja á rannsóknum og
nýsköpun. „Það er svo gaman að sjá þessa töfra sem tekist hefur að skapa hjá sumum
félögum; þar sem hæft og hugmyndaríkt fólk kemur saman og virðist hafa burði til að
skapa verðmæti út í hið óendanlega.“
Töfrar leystir úr læðingi