Morgunblaðið - 22.10.2021, Page 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
V
erk THG arkitekta blasa við víða í
borgarlandslaginu; hótel, hjúkr-
unarheimili, íbúðarhús, skrifstofur
og verslanir svo eitthvað sé nefnt.
Fyrirtækið hefur að sögn Freys Frostasonar
arkitekts og meðeiganda alltaf lagt áherslu á
góðan og stöðugan rekstur. Velta félagsins
var svipuð árin 2019 og 2020 þrátt fyrir sam-
drátt vegna veirufaraldursins. „Við höfum
alltaf passað vel upp á okkar rekstur,“ segir
Freyr. „Við reynum að spenna bogann ekki
of hátt. Fyrirtækið er nánast skuldlaust og
við forðumst áhættu í rekstri. Þessi geiri
sveiflast dálítið mikið upp og niður í takt við
efnahagslífið hverju sinni og margar stofur
fóru til dæmis illa út úr hruninu. En við höf-
um reynt að hafa bæði belti og axlabönd
hvað fjármál og rekstur varðar og horfum til
framtíðar.“
Afkoman góð í fyrra
Rekstur stofunnar gekk nokkuð vel í fyrra
að sögn Freys. „Afkoman var góð í fyrra.
Við erum með mjög trausta viðskiptavini og
gott samstarfsfólk í verkefnum, bæði einka-
aðila og opinbera aðila sem bera mikið
traust til okkar. Þó að ákveðin verkefni hafi
verið sett í bið í faraldrinum héldu önnur
áfram þrátt fyrir ástandið. Það hjálpaði okk-
ur að fara í gegnum tímabilið með nánast
óbreyttan starfsmannafjölda milli ára. Ár-
angurinn er góðu starfsfólki og viðskipta-
vinum okkar að þakka,“ útskýrir Freyr.
THG arkitektar skera sig frá flestum öðr-
um arkitektastofum að því leyti að innan
stofunnar er sérstök tæknideild sem sér um
verkefnastjórnun og eftirlit. „Við fylgjum
verkefnum eftir alla leið þar til byggingar
eru komnar í notkun. Verkefnin eru mjög
fjölbreytt, allt frá skipulagstengdum
hönnunarverkefnum að deiliskipulagi og allt
niður í innréttingar húsa, hvort sem það er
atvinnu- eða íbúðarhúsnæði.“
Stór og smá verkefni
Freyr segir að verkefnin séu því bæði stór
og smá og nefnir sem dæmi að THG arki-
tektar séu aðalhönnuðir Kringlunnar. „Þegar
einstaka verslun er breytt í verslunarmið-
stöðinni fer það alltaf í gegnum okkur. Svo
erum við með stór verkefni eins Curio by
Hilton-lúxushótelið á Landsímareitnum og
Sléttuna, lífsgæðakjarna fyrir aldraða við
Sléttuveg.“
Eins og Freyr útskýrir snúa 25-30% af
verkefnum fyrirtækisins að verkefnastjórnun
og eftirliti. „Við erum með óvenjumarga
tæknimenn og byggingarfræðinga innan
okkar vébanda. Við skiptum félaginu í raun
upp í THG arkitekta og THG ráðgjöf. Við
viljum skapa ráðgjöfinni aukna sérstöðu.“
Spurður um gildi þessa fyrirkomulags
segir Freyr að það að hafa allt ferlið undir
sama þaki auðveldi öll samskipti. „Það hefur
reynst bæði hagkvæmara fyrir verkkaupa og
sparað talsverðan tíma. Ef þetta er hvort í
sínu lagi, þ.e. að ráðgjöfinni sé sinnt af öðr-
um aðilum, getur komið upp ágreiningur.“
THG arkitektar hafa hannað fjölda hótela
á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal Hótel
Marina og Konsúlathótelið. Verið er að
leggja lokahönd á fyrrnefnt lúxushótel á
Landsímareit.
Þá er fyrirtækið með talsvert af íbúðalóð-
um í byggingu í Vogabyggð í Reykjavík, á
Héðinsreit og á fleiri stöðum.
Spurður um þátttöku í samkeppnum segir
Freyr að stofan reyni að taka þátt í einni
slíkri á hverju ári. „Síðast lentum við í öðru
sæti í samkeppni um miðborgarleikskóla fyr-
ir aftan Austurbæjarbíó. Nú erum við nýbú-
in að skila tillögu okkar að höfuðstöðvum
Icelandair á Völlunum í Hafnarfirði.“
Hóf störf með stofnandanum
Freyr hefur starfað hjá THG arkitektum
um árabil. „Ég hóf störf hjá stofnanda stof-
unnar, Halldóri Guðmundssyni, árið 1997,
eftir nám hjá Architectural Association í
London og SCI-Arc í Los Angeles.“
Skólinn í Los Angeles var framúrstefnu-
legur að sögn Freys, sem kaus að fara ekki
til Danmerkur í nám eins og flestir gerðu á
þessum tíma. „Ég heyrði af þessum skóla í
gegnum kunningja og ákvað að láta slag
standa. Ég fór svo í framhaldsnám til Lund-
úna en Architectural Association er einn
elsti arkitektaskóli í heimi. Ég stundaði þar
nám í rannsóknararkitektúr. Við vorum
einkum að skoða þarfir tölvufyrirtækja til
framtíðar.“
Rannsókn Freys og skólasystkina snerist
þannig um samvinnurými starfsmanna og
það hvernig hin hefðbundna skrifstofa
heyrði sögunni til. Fólk myndi í framtíðinni
vinna í opnu rými og í samvinnukjörnum.
Blaðamaður spyr hvernig þau fræði hafi
elst.
„Þetta hefur þróast á svipaðan hátt og við
vorum að skoða þarna á þessum tíma. Opið
skrifstofurými er orðið ráðandi. Áhersla er
orðin á að einu lokuðu rýmin séu fundarrými
eða svona tímabundin verkefnatengd sam-
verurými þar sem nokkrir samstarfsaðilar
koma saman.“
Spurður um strauma og stefnur í dag í
þróun skrifstofuhúsnæðis segir Freyr að
aukin krafa sé nú gerð um næði í vinnu. Það
að geta einbeitt sér betur að vinnunni þyki
mikilvægt og sé að koma sterkar inn, eins
og Freyr orðar það. Fólk vilji geta lokað sig
af til að vinna verkefnin í algjörri þögn. „Sá
möguleiki fyrir t.d. 2-3 starfsmenn að loka
sig af í nokkrar vikur í vinnuumhverfi sem
þeir geta lagað að sínum þörfum fyrir ákveð-
ið verkefni er það sem koma skal.“
Menningarstarfsemi og verslun
Um helstu tískustrauma í öðrum teg-
undum bygginga minnist Freyr á hótel-
hönnun. „Í dag er áhersla lögð á að á jarð-
hæð hótela sé blanda af menningarstarfsemi
og verslun, að jarðhæðin sé eins konar al-
menningsrými til að auka fjölbreytileika í
upplifun ferðamanna. Að hótelin séu lifandi
rými en ekki bara móttökusalur sem gengið
er inn í af götunni. Reykjavíkurborg ætti að
taka svona þróun fagnandi í stað þess að
berjast á móti hótelstarfsemi í miðbænum.
Svona fyrirkomulag ýtir undir líf og menn-
ingu og skapar mannlegt flæði í mið-
bænum.“
Gott dæmi um þetta að sögn Freys er
nýja Marriot Edition-hótelið á hafnarbakk-
anum í Reykjavík. Sami hátturinn er einnig
hafður á í Curio by Hilton sem THG eru að
ljúka við.
„Í dag er orðið algengt að fólk hittist á
fundum eða í kaffi í hótellobbíum, til að eiga
samtal. Flæði almennings inn í hótelrýmin
er að aukast og því ber að fagna.“
Freyr segir að ferðamenn vilji komast í
nána snertingu við íbúa á hverjum stað. „Ef
þú ert ferðamaður viltu vera í sama rými og
fólkið sem býr á staðnum og notar rýmið frá
degi til dags,“ segir Freyr að lokum.
tobj@mbl.is
Aukin krafa um næði
Morgunblaðið/Unnur Karen
Freyr segir að verkefnin séu mjög fjölbreytt, allt frá skipulagstengdum hönnunarverkefnum að deiliskipulagi og allt niður í innréttingar húsa.
277. sæti
THG
ARKITEKTAR
Meðalstórt 89. sæti
Freyr Frostason
Um það hvort einhver ákveðinn stíll sé ráðandi í hönnun stofunnar segir Freyr að svo sé
ekki. Stíllinn sé fjölbreyttur. Það eigi reyndar við um flestar arkitektastofur hér á landi,
enda sé markaðurinn lítill og nauðsynlegt að geta sinnt ólíkum úrlausnarefnum. „Við þurf-
um að geta sinnt allt frá endurgerð friðaðra húsa upp í stórar glerbyggingar eða háhýsi.
Leiðarljós í okkar starfsemi er frekar að hafa fjölbreytni og staðaranda ofarlega í huga.
Stíllinn er því mjög breytilegur eftir því hvert verkefnið er og hvar það er staðsett.“
Fjölbreytni og staðarandi
Curio by Hilton-lúxushótelið á Landsímareitnum er hannað af THG arkitektum.