Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 56
ORÐSENDING
til Sjálfsbjargarfélaga um land allt:
I. Landssambandið hefur nú látið prenta eftirtalin gögn, sem félagsdeildirn-
ar geta fengið keypt hjá sambandinu:
1. Bréfsefni og umslög
2. Félagsvistarkort
3. Fundarboðunareyðublöð
4. Skýrsluform fyrir starfsemi félaganna
5. Kjörbréfaform
Vinsamlegast gerið pantanir, fyrir 30. september n. k., til Emils Andersen,
Hríseyjargötu 2, Akureyri.
II. Verið er að gera pantanir á efni til föndurs og tómstundaiðju og er því
nauðsynlegt að deildirnar úti um land sendi sínar pantanir til landssam-
bandsins, sem allra fyrst, og eigi síðar en 30. september n. k. Taka skal fram,
hvaða efni og magn, af hverri tegund, hver deild óskar eftir að fá, og hvort
gert er ráð fyrir að pöntun sú er deildin sendir, muni nægja til vetrarins,
eða hvort hún geri ráð fyrir því að panta aftur seinna í vetur.
Pantanir sendist til Emils Andersen, Hríseyjargötu 2, Akureyri.
SJÁLFSBJÖRG
LANDSSAMBAND FATLAÐRA