Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 21

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 21
kaupa fóður handa þér og sting tveimur í eigin vasa.“ Ég veit ekki hvað gerðist eftir þetta. Því ég flýtti mér einnig í burtii. Þýtt úr þýzku 20. nóv. 1958 í Karlsruhe Þýzkalandi. Ragnar Sk. Jónsson. KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK: VIÐ TORGIÐ Sjá, gömul kona gengur yfir torgið, lnxn gáir, skimar, hætta í hverju spori. Sá munur eða var á liðnu vori í vatna og skógakyrrð. Og bílar þjóta framhjá, flauta, hemla, og fólkið áfram treðst með stjak og pústur. Það gleymir hve sú gamla er orðin stirð. En gamla konan mjakast gegnum múginn þótt miði seint, og strýkur hönd um vanga. Hún hefur ekki ennþá lært að ganga við aldarfarsins skref í takt. Hún haltrar yfir götu, þegar gata sker götu hennar þvert og skilur alltaf hin grænu, rauðu og gulu merki skakkt. Sá munur eða var á liðnu vori í vatna og skógabyggð um aldamótin. Hve spræk hún lækinn óð og gekk um þótt gerðist ilin sár. grjótin Þá rærtdi ei Iiarður sóli fótinn frelsi né fergður steinninn reisn úr göngulagi. Og þá var ekkert bölvað bíla-fár. Nú skimar hún og skyggir hönd við auga: Æ, skyldi ei strætisvagninn koma bráðum. Því hún vill burt og hugsa ein í náðum um horfna friðaröld. Hún skynjar flaut og óp og ískur hemla Svo ekkert meir, ó, bernskuvötn og skógar? Og hún mun komast heim til þeirra í kvöld. KÆRU FELAGAR Hvað það þýðir fyrir okkur að hafa með okkur samtök, eins og landsamband fatl- aðra, er ekki hægt að segja í örfáum orð- um, en það eitt nægir að segja, að ef við hefðum ekki þessi samtök, væru félagsdeild- irnar úti um land ekki stofnaðar og byggð- ar á réttum grundvelli. Innan þessa sam- bands á að vera hægt að finna þær leiðir, sem til hagsbóta ern fyrir alla þá, sem eru á einn eða annan hátt fatlaðir. Þar á að ráða fram úr þeim vandamálum, sem að kalla í það og það skiptið. Þar er miðstöðin fyrir félögin. Við þessa nriðstöð eiga þau að hafa samband til þess, að fá þær upplýsing- ar og þá fyrirgreiðslu, sem hægt er að veita. Allt byggist á góðri samvinnu, fyrst og fremst innan félagsdeildanna sjálfra á hverj- um stað, og einnig en ekki sízt á milli fé- lagsdeildanna. Bezta leiðin til góðrar samvinnu er ein- mitt sú, að félagsdeildirnar geti haft sem nánast samband sín á milli, og þar er land- sambandið bezta miðstöðin. I trausti þess, að þið öll búið yfir það miklum samstarfs- vilja, vil ég biðja ykkur að taka þessi orð mín til athugunar og revna hvort ekki er rétt til getið, að léttara er, og á allan hátt betra, að skiptast á hugmyndum og skoð- unum á málum og málefnum, og finna þar með beztn úrlausnina hverju sinni, en að hver og einn sé að pukra út af fyrir sig og reyna að ota sínum tota. Það er háttur stór- bokka, að vilja aldrei hlíta ráðum annarra, það megnm við aldrei láta henda innan okkar samtaka. Emil Andersen. FRÁ HVERAGERÐI hefur ekki borizt skýrsla. í stjórn þar eru Valgerður Hauksdóttir, formaður. Sigurbergur Jóhannsson, gjaldkeri. Lilja Eiríksdóttir, ritari. Sveinn Jónsson, Sigurgrímur Ólafsson og Dagur Dagsson meðstjórnendur. , sjálfsbjörg 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.