Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 18

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 18
„FERÐAFÉLAGFATLAÐRA“ (ÞÝTT ÚR DÖNSKU BLAÐI) Það er hvítasunnumorgunn. Lítil, ný Austinbifreið ekur með hóflegum hraða gegnum Kaupmannahafnarbæ. Farþegarnir þrír eru að ræða um bvítasunnuleyfið, sem þeir ætla að eyða uppi í sveit. í beygjunni við gatnamót Stormgötu mæta þeir farþega- vagni. Ekillinn hemlar, en samt skeður það óvænta að bifreiðin og farþegavagninn rek- ast á af miklu afli. „Ég þarf aðeins að loka augunum, til þess að sjá það fyrir mér,“ segir Thorkild Johansen, ritarinn í „Ferðafélagi fatlaðra". „Ég sá farþegavagninn koma þjótandi á móti mér eins og stórt, gult flykki, svo heyrði ég ópin frá vinum mínum í baksæt- inu og síðan man ég ekkert, fyrr en ég lá á gangstéttinni og læknir beygði sig yfir mig, til þess að gefa mér deyfandi sprautu.“ Annar fótur Johansens eyðilagðist af völdum slyssins og við það breyttist lífs- ferill hans algjörlega. Við erum stödd í íbúð hans í Kaupmannahöfn. Hann er herðabreiður og myndarlegur og andlit hans ber með sér, að þar er ánægður maður. „Ég er ánægðari nú, en þegar ég hafði báða fætur heila,“ segir hann, „því að við slysið hefur líf mitt öðlazt nýtt gildi. Nú er ég önnum kafinn við að reyna að gjöra eitt- hvað fyrir félaga mína, alla þá mörgu, sem svipað er ástatt fyrir og mér, eða eru kannski enn þá verr á vegi staddir. Margir hinna fötluðu eru nefnilega alveg rúmliggj- andi eða nota hjólastól.“ Staða Thorkilds Johansens, sem ritari í Ferðafélagi fatlaðra, er ólaunuð, en starfið er umfangsmikið og tekur allan tíma hans. „Félagið er fimm ára gamalt,“ segir hann, „og líklega eina félagið í Danmörku, þar sem allir stjórnarmeðlimir eru fatlaðir. For- maður er A. Jensen, brunaliðsmaður, sem var skotinn í bakið af dönskum landráða- mönnum aðfaranótt 6. maí 1945, þar sem hann var í bifreið sinni að bjarga særðum frelsishetjum. Það var hann, sem upphaf- lega átti hugmyndina að félaginu.“ Thorkild Johansen situr við skrifborðið, þar sem öll vinnan fer fram. Hér eru öll skjöl hans, síminn og ritvélin og þar standa hækjurnar á sírjum stað. Hann vill helzt ekki tala um annað en félagið, en mig lang- ar einnig til að forvitnast um, hvernig það muni vera fyrir heilbrigðan mann að hljóta í einu vetfangi lífstíðar örkuml. „Ég verð líklega að reyna að útskýra það ofurlítið nánar,“ segir hann. „Ég var ferðaeftirlits- maður og bjó einn með tveimur litlum dætrum mínum. Skömmu áður en slysið varð missti ég konu mína. Hún hafði legið á sjúkrahúsi síðustu tvö árin, sem hún lifði. Telpurnar Margot og Bente voru þá aðeins sex og níu ára gamlar, svo að ég varð sjálfur að sjá um heimilisstörfin. Það gekk líka ágætlega. Ég bjó til matinn áður en ég fór til vinnu á morgnana og þá gátu telpurnar hitað hann, þegar þær komu úr skóla. Þegar ég hafði heimsótt konu mína á spítalann á kvöldin annaðist ég heimilisstörfin og oft settist ég við saumavélina og bætti föt barn- anna. Daginn sem slysið varð voru báðar telp- urnar í ferðalagi með skátum. Það var hvíta- sunnumorgun og vinafólk mitt, sem vissi að ég var einn, bauð mér með sér til sumar- bústaðar síns, gegn því að ég legði til bif- reið. Ég átti ekki sök á slysinu, það voru hemlarnir, sem biluðu. Fóturinn marg- 16 SJÁLFSBJÖRG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.