Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 10
II. kafli: Sambanclsfélögin.
3. gr.
Inntökubeiðni hvers félaga skal fylgja
afrit af lögum félagsins. Tilkynning um
hverjir skipi stjórn þess og einnig skrá yfir
meðlimi þess.
4. gr.
Öll félög Landssambands fatlaðra bera
nafriið „Sjálfsbjörg — félag fatlaðra“.
Rétt til að vera í sambandinu hefir hvert
það félag sem:
a) játast undir lög þess og samþykktir.
b) telur minnst 10 félaga.
Ekki getur verið nema eitt sambandsfélag
í hverju bæjar- eða sveitarfélagi. En félög
á stórum félagssvæðum, eða þar sem fjöl-
menni er mikið, geta skipulagt starfsemi
sína í deildum.
Einstaklingar geta ekki verið meðlimir
sambandsins á annan hátt en þann, að þeir
séu meðlimir einhvers félags innan þess.
Sama gildir um styrktaxfélaga og æfifélaga,
með þeim takmörkunum sem lög sambands-
deildanna mæla fyrir um.
5. gr.
Félögin skulu senda sambandsstjórn
skýrslu um störf og fjárhag ár hvert og sé
skýrslan komin til sambandsstjórnar fyrir
1. apríl. Samtímis greiði sambandsfélögin
árgjöld sín til sambandsins og sé það y4 af
meðlimagjöldum fullgildra félaga.
Ekki hefir félag rétt til þess að hafa full-
trúa á sambandsþingum nema það sé skulcl-
laust við sambandið. Nýstofnað félag er þó
undanþegið gjaldi stofnárið.
Reikningsár sambandsins er frá 1. maí til
30. apríl.
6. gr.
Hvert félag sem í sambandinu er, hefur
fullt frelsi um sín innri mál, þó svo, að ekki
fari í bága við sambandslögin eða löglegar
samþykktir sambandsstjói'nar eða sambands-
þings. Ef félagið hættir störfum má ekki
ráðstafa eignurn þess án samþykkis sam-
bandsstjórnar.
III. kafli: Fjármál sambandsins.
7. gr.
Sambandssjóður greiðir kostnað við sam-
bandsstjórn svo og kostnað, er sambandið
hefur vegna félaganna, sem í því eru, svo
sem laun starfsnxanna, erindisrekstxxi', húsa-
leigu, ritfanga og prentunarkostnað og ann-
an óhjákvæmilegan kostnað sem viðkemur
þinghaldi.
Kaup fulltrúa á sambandsþingi, ef krafist
er, og ferðakostnað þeirra greiða félögin.
8. gr.
Gjaldkeri sambandsins semur reikninga
yfir tekjur og gjöld sjóða þess fyrir hvert
reikningsár og leggur hann endurskoðaðan
fyrir sambandsstjórn. Reikningarnir skulu
síðan lagðir íyrir næsta reglulegt sambands-
þing til fullnaðarafgreiðslu.
IV. kafli: Kosningar til sambandsþings
og fulltrúar.
9. gr.
Þing sambandsins skulu skipuð fulltrúum
sambandsfélaganna, sem kosnir eru á lög-
legum félagsfundi. Hvert félag hefur rétt til
þess að kjósa einn fulltrúa fyrir hverja 20
fullgilda félaga og brot úr 20.
10. gr.
Kosniirg fulltrúa og varafulltrúa á þing
sanxbandsins skal fara fram á félagsfundi,
skriflega, og vera bundin við uppástungur.
Skal fundurinn boðaður með a. m. k.
tveggja sólarhringa fyrirvara og kosning-
anna getið í fundarboði. Hver fulltrúi skal
framvísa kjörbréfi undirrituðu af formanni
og ritara.
11. gr.
Regluleg þing skulu háð á tímabilinu 15.
maí til 15. júní ár hvert og vera boðuð bréf-
lega til sambandsfélaganna með minnst
tveggja mánaða fyrirvara og auglýst í út-
varpi.
8 SJÁLFSBJÖRG