Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Page 4

Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Page 4
staðnum. — Hefur vélum verið komið fyrir í fundarsal félagsins, og er það kom- inn fyrsti vísir að vinnustofu Sjálfsbjargar á landinu. Annað félagslíf hefur verið með ágætu móti. — Formaður félagsins er Trausti Sigurlaugsson. Reykjavík. — Skemmtikvöld voru 11 tals- ins á árinu, félagsfundir fjórir. Auk þess voru haldnar þrjár skemmtanir fyrir fötluð börn á aldrinum 6—12 ára. Sauma- og föndur-„klúbbar“ hafa starfað reglulega frá byxjun febrúar. Á árinu var haldin hlutavelta, og tókst hún framar vonum. Hafin var útgáfa félagsblaðs. Ein skemmtiferð var farin á sumrinu. Félagið hefur opna skrifstofu tvisvar í viku að Sjafnargötu 14. Hefur Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra lánað það húsnæði endur- gjaldslaust. Fullgildir félagar eru 143, en það er að- eins lítill hluti af því fatlaða fólki, sem bú- sett er í Reykjavík. — Vonandi er, að félag- inu bætist margir nýir meðlimir á næstunni. Form. félagsins er Aðalbjörn Gunnlaugsson. Félagslíf stendur með miklrnn blóma á Siglufirði. -—- Hafa verið haldin vinnukvöld vikulega í vetur. Auk félagsfólks, hafa verið margir sjálboðaliðar á þessum vinnukvöld- um. Þá hafa einnig verið haldin vikuleg spilakvöld, auk nokkurra skemtifunda og dansleikja. Félagið var í húsnæðishraki þar til á s. 1. vetri, er Jón L. Þórðarson útgerðarmaður lánaði skrifstofuhúsnæði sitt endurgjaldslaust yfir veturinn. 1 vor réðst félagið í að kaupa einkar hentugt húsnæði að Túngötu 11. 1 Vestmannaeyjum var stofnað félag á síðastliðnum vetri. Fullgildir stofnendur voru 43. — Formaður er Ástgeir Ólafsson. Frá vinnustofum Sjálfsbjargar á IsafirÖi.

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.