Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Síða 23

Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Síða 23
manninum hæfileikanna vegna og ræðir við hann starfsval og framtíðaráætlanir. Einnig athugar hann andlega heilbrigði og ræðir við öryrkjann þau sálrænu vandamál, er fötlun- inni fylgja. Ráðgjafi í félagslegum efnum aflar upp- lýsinga um aðstæður öryrkjans, kannar möguleika þess að koma áætlunum hans í framkvæmd og aðstoðar hann við það. Get- ur þar verið um að ræða aðstoð við að fá skólavist, útvega lánsfé til sjálfstæðs atvinnu- rekstirrs, útvega vinnu og fleira. Athuganirnar á rannsóknardeild eru gerð- ar til þess að leiða í ljós, hverjar líkur eru til að maðurinn geti orðið starfandi. Að þeim loknum er hægt að skipta öryrkjum í þrjá aðalhópa með tilliti til framtiðarmögu- leika. Stærsti hópurinn eru þeir, sem geta gengið beint út í atvinnulífið, ýmist strax, ef leitað er hentugra starfa fyrir þá, eða að loknu námi undir viðeigandi störf, en slíkt nám fer oftast fram í venjulegum skól- um, iðnskólum, verzlunarskólum o. s. frv. Annar hópurinn eru þeir, sem ekki er neitt útlit fyrir, að geti orðið starfandi, og ekki eru líkur til að geti haft gagn af ráðstöfun- um í atvinnulegum efnum um ófyrirsjáan- lega framtíð. Þetta er venjulega mjög fá- mennur hópur, en stærð hans er þó að sjálf- sögðu nokkuð háð því, hvernig valið er fólk það, sem tekið er til rannsóknar. Ef sneitt er hjá að taka þá, sem líklegt er að hafi minnsta þjálfunarmöguleika, verður þessi hópur minni. Þriðji hópurinn eru þeir, sem þarfnast nánari athugunar, vegna þess að ekki er hægt að gera sér fullkomlega grein fyrir með einföldum rannsóknum eða á skömmum tíma, hverja möguleika hafi. Oft þarfnast þeir verkprófunar, verkþjálfunar eða ann- arrar meðferðar, áður en þeir geta gengið út í atvinnulífið. Það er þessi hópur, sem fær víst á þjálfunardeild. Ég vil skýra nánar, hvað við er átt með verkprófun og verkþjálfun. Verkprófun er í því fólgin að láta manninn reyna ýmis verk, til að sjá, hvað hann getur, því ekki er alltaf hægt að skera úr um þetta með at- hugun á heilbrigði og hæfmprófum einum saman. Verður þá að prófa í reynd, hvað maðurinn getur. Með verkþjálfun er ekki átt við nám, heldur er hér um að ræða að æfa manninn í því að vinna. Flestir þeir, sem lengi hafa verið frá vinnu vegna veikinda, eru þreklitlir til að byrja með, skortir oft trú á? að þeir geti nokkuð gert, kvíða fyrir vinnunni og eiga stundum erfitt með að sætta sig við það ófrelsi eða þvingun, sem reglubundinni vinnu fylgir. Þeir þurfa þvi að venja sig á að vinna með því að byrja í smáum stíl, og þetta er átt við með verkþjálfun. Dvöl á þjálfunardeild er misjafnlega löng, algengt 5—6 mánuðir, en getur verið lengri. Menn eru þar svo lengi, sem þeir taka fram- förum við þjálfun, en hætta, þegar þeir eru taldir færir um að byrja að vinna á venju- KRISTINN BJDRNSSDN SÁLFRÆÐINGUR legum vinnustöðum. Einnig hætta þeir, ef þeir ná ekki árangri við þjálfun, svo að hana verði að telja árangurslausa. Á þjálfunardeild eru verkstæði fyrir járn- smíði, trésmiði og saumaskap. Einnig er unnið að því að setja saman raftæki, og hægt er að fá þjálfun í vélritun og öðrum skrif- stofustörfum. Vinnan hefur fyrst og fremst það markmið að leiða í Ijós, hvað öryrkinn geti og þjálfa hann, en ekki er lögð áherzla á að framleiða nokkuð að ráði. Þetta er heil- brigðistofnun, ekki atvinnufyrirtæki. Þeir, sem geta skilað nokkrum afköstum við vinnu, eiga að fá vinnu annars staðar. Þess vegna eru ekki greidd laun í venjulegum skilningi á þjálfunardeild, heldur fá menn aðeins vasapeninga, 75 kr. norskar (ca. 400 SJÁLFSB JÖRG 23

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.