Fréttablaðið - 01.02.2022, Side 2

Fréttablaðið - 01.02.2022, Side 2
Reykjavíkurleikarnir á útopnu Með auglýsingu hefur sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra kallað eftir kröfum frá þeim sem dvöldu á stofnun fyrir fötluð börn fyrir 1. febrúar 1993. Frestur til að lýsa kröfu var tilgreindur fram til 1. febrúar 2022. Nú hefur verið ákveðið að framlengja frestinn fram til 21. febrúar 2022 og er hér með er skorað á alla þá, eða aðra í þeirra umboði, sem dvöldu á stofnun fyrir fötluð börn, einni eða fleiri, fyrir 1. febrúar 1993 og urðu þar fyrir mis- gjörðum sem olli þeim varanlegum skaða, að lýsa kröfu um sanngirnisbætur hjá sýslumanninum á Norðurlandi eystra fyrir 21. febrúar 2022. Kröfur skulu sendar til skrifstofu Sýslumannsins á Norðurlandi eystra, að Gránugötu 4-6, 580 Siglufirði. Verði kröfu ekki lýst fyrir tilgreindan frest, fellur hún niður. Bent er á að unnt er að leita aðstoðar tengiliðar vegna stofnana fyrir fötluð börn við framsetningu og skil á bótakröfu. Aðstoð tengiliðar er endurgjalds- laus. Netfang tengiliðar er tengilidur@tengilidur.is Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sanngirnisbætur Innköllun bth@frettabladid.is VE RK ALÝÐS M ÁL „Þetta gengur brösuglega, það gengur ekki nógu vel. Það er þó ekki útilokað að við náum þessum lista saman,“ segir Guðmundur Jónatan Baldursson. Guðmundur hugðist taka þátt í formannsslag Eflingar ásamt Ólöfu Helgu Adolfsdóttur og Sólveigu Önnu Jónsdóttur. Að sögn Guð- mundar vantar enn nokkra tugi stuðningsundirskrifta til að koma saman listanum. „Við erum að safna. Ég kem úr rútubílaheiminum og karlarnir eru tvístraðir út um allt,“ segir Guð- mundur. Skila þarf listum fyrir klukkan níu í fyrramálið. „Eitt vandamálið er að það er svo erfitt að ræða hlutina eins og þeir eru. Það er alltaf hjólað í manninn,“ segir Guðmundur. ■ Óvíst um framboð í formannsstólinn Fíknifræðingur segir það bitna illa á skjólstæðingum sínum að þeir fá ekki starfs- leyfi hér á landi. Skilyrði fyrir starfsleyfinu séu sniðin að námi áfengis- og vímuefna- ráðgjafa hjá SÁÁ. birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Vagnbjörg Magn- úsdóttir, fíknifræðingur og stofnandi Vörðunnar meðferðarstofu, segir það bitna á skjólstæðingum sínum og kollega sinna að fíknifræðingar fái ekki starfsleyfi frá Embætti land- læknis. Samkvæmt reglugerð um mennt- un, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa eru skilyrði fyrir starfsleyfi þau að umsækjandi hafi verið í fullu starfi eða í sex þúsund klukkustundir við áfengis- og vímu- efnaráðgjöf á heilbrigðisstofnun. Þetta samsvarar þriggja ára starfi. Þá skal umbjóðandi hafa fengið kennslu í 300 klukkustundir sem lúti meðal annars að lyfjafræði ávana- og vímuefna og siðfræði áfengismeð- ferðar. Hann skal hafa fengið leið- sögn frá þar til bærum heilbrigðis- starfsmanni í alls 225 klukkustundir, þar af 75 tíma í beinni handleiðslu. Nám í áfengis- og vímuefnaráð- gjöf, sem fram fer á heilbrigðisstofn- unum SÁÁ, felur í sér sömu kröfur og skilyrði og útlistuð eru í reglugerð- inni samkvæmt upplýsingum á vef- síðu SÁÁ og segir Vagnbjörg ógerlegt fyrir aðra en þá sem fari í gegnum það nám að uppfylla skilyrðin. „Þetta eru bara nákvæmlega sömu kröfur og þar sem við erum starf- andi á einkastofum er ógerlegt fyrir okkur að fylla upp í þennan tíma- fjölda,“ segir Vagnbjörg og bendir á að fíkniráðgjafar hjá Vörðunni hafi meistaragráðu frá Hazelden Betty Ford Grad uate School of Addiction Studies í Bandaríkjunum. Námið sé áfallamiðað, ólíkt námi áfengis- og vímuefnaráðgjafa hér. Þá hafi þær skilað inn nær þúsund vinnustund- um í námi ásamt því að hafa verið í handleiðslu allan tímann. Fagfélag fíknifræðinga hefur líka sótt um löggildingu starfsheitis sem heilbrigðisstétt til heilbrigðisráðu- neytisins og fékk neitun í maí árið 2020. Í ákvörðun ráðuneytisins segir „að ekki verði séð að löggilding stétt- arinnar sé nauðsynleg með tilliti til öryggis og hagsmuna sjúklings.“ Vagnbjörg segir að fyrir henni felist tvennt í því að ráðuneytið neiti beiðni félagsins um löggildingu starfsheitis sem heilbrigðisstéttar. „Annars vegar þarf að vernda þennan hóp fyrir okkur, það er með- ferðaraðilum sem þjónusta þau, og gefa þeim platform til þess að kvarta ef þau telja á sér brotið, við vitum hversu oft það hefur gerst,“ segir hún. Nú heyri fíknifræðingar ekki undir neinn. „Það er í raun bara hægt að hefja einkamál á hendur okkur ef við brjótum á skjólstæðingum. Hins vegar eru örfáir sem greiða niður þjónustuna og Félagsþjónusta Reykjavíkurborgar, sem er með marga skjólstæðinga með fíkni- vanda, hefur hætt að greiða niður en hún gerði það á tímabili á einhvers konar undanþágu,“ segir Vagnbjörg. „Niðurgreiðsla til skjólstæðinga er mikilvægasti þátturinn í því að við fáum starfsleyfi,“ segir Vagnbjörg. „Það að fólk hafi val um það hvert það leitar í ráðgjöf, við viljum ekki stíga á tær SÁÁ eða annarra heldur veita fólki þá ráðgjöf sem það þarf eftir að það hefur fengið læknishjálp ef það er það sem það þarf.“ ■ Fíknifræðingar fá ekki leyfi og segja það bitna á fólkinu Skjólstæðingar fíknifræðinga fá meðferð sjaldan eða aldrei niðurgreidda þar sem fíknifræðingarnir fá ekki starfsleyfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnpall@frettabladid.is COVID -19 Rúmlega helmingur þeirra 67.673 kórónaveirusmita sem hafa greinst hér á landi frá upphafi greindust í janúarmánuði. Með smittölum helgarinnar var heildar- fjöldi smita kominn í tæplega 34.700 hér á landi og með sama áframhaldi nær smitfjöldinn yfir hundrað þúsund öðrum hvorum megin við næstu mánaðamót. Undir lok febrúarmánaðar verða tvö ár liðin frá því að fyrsta kóróna- veirusmitið kom upp hér á landi. Á fyrsta ári faraldursins greindust rúmlega sex þúsund manns með Covid-19 og þótti stórmál þegar smitin voru hundrað á dag. Með stökkbreyttum af brigðum hefur tilfellum fjölgað ört og voru aðeins sex dagar í janúarmánuði þar sem smitin voru undir þúsund á dag. Um leið hefur alvarlegum tilvik- um fækkað eins og sést á tölum gær- dagsins þegar rúmlega tíu þúsund manns voru í einangrun og aðeins þrír á gjörgæslu. ■ Helmingur smita frá upphafi í janúar Rúmlega milljón sýni hafa verið tekin innanlands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það er alltaf hjólað í manninn. Guðmundur Jónatan Baldursson Vagnbjörg Magnúsdóttir fíknifræðingur Diana Zavjalova frá Lettlandi er meðal keppenda á Reykjavíkurleikunum sem nú fara fram og standa fram á sunnudag. Riðlakeppnin í keilu hófst á laugardag og munu fjórir keppendur sem lengst komast útkljá málin sín á milli á fimmtudaginn í Egilshöll þar sem keilukeppnin fer fram. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 Fréttir 1. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.