Fréttablaðið - 01.02.2022, Side 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Það má
allavega
ekki verða
þannig
að læknar
veigri sér
við að tjá
sig af ótta
við að vera
kallaðir
inn á teppi
hjá yfir-
boðurum
sínum
og fái þar
skammir
fyrir
að hafa
„rangar“
skoðanir.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Mikil áhersla hefur verið lögð á
það á Covid-tímum að skylt og
rétt sé að hlýða sérfræðingum
enda hafi þeir vit á hlutunum.
Svo sannarlega ber að hlusta
á sérfræðinga en hins vegar gleymist furðu
glatt að þeir eru ekki allir sammála. Sérfræð-
ingarnir sem eru ósammála Covid-aðgerðum
stjórnvalda fá hins vegar lítið sem ekkert vægi
í umræðunni, skoðanir þeirra eru talaðar
niður eða jafnvel látið eins og þeir séu ekki til.
Þetta getur hvorki talist gott né hollt. Hér á
landi hafa sóttvarnayfirvöld sagt að þau séu
ekki alvitur og hafa, þegar vel liggur á þeim,
beðið um gagnrýni. Verra er að þegar sú gagn-
rýni hefur komið hafa viðbrögðin verið ansi
dræm og jafnvel hefur verið gert lítið úr þeim
sem koma fram með hana. Meðferðin á Jóni
Ívari Einarssyni, prófessor við læknadeild
Harvard-háskóla í Boston, er dæmi um þetta.
Ragn ar Freyr Ingvars son, sér fræðing ur í
lyf- og gigt ar lækn ing um og fyrr ver andi yf ir-
maður Covid-göngu deild ar Land spít ala, talar
nú fyrir frekari afléttingum þeirra takmark-
ana sem við búum við vegna Covid. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem hann talar á þessum
nótum. Hafi hann þakkir fyrir. Innlegg hans
er mikilvægt en ekki skal dæmt um það hér
hvort sóttvarnayfirvöld taki því af áberandi
meiri fögnuði en þau hafa tekið gagnrýni
hingað til.
Það er mikilvægt að læknar tjái sig um
Covid-ástandið, hvort sem þeir vilja ganga
fullkomlega í takt við aðgerðir sóttvarnayfir-
valda eða fara aðrar leiðir. Það má allavega
ekki verða þannig að læknar veigri sér við að
tjá sig af ótta við að vera kallaðir inn á teppi
hjá yfirboðurum sínum og fái þar skammir
fyrir að hafa „rangar“ skoðanir.
Í erlendum fjölmiðlum má einstaka sinnum
sjá viðtöl við sérfræðinga sem eru ósammála
þeim leiðum sem stjórnvöld í landi þeirra
hafa valið að fara. Þeir tala til dæmis gegn
útgöngubanni, hafa efasemdir um gagn-
semi þess að almenningur noti grímu, eru
fylgjandi bólusetningum en segja um leið
ónauðsynlegt að bólusetja ung börn. Þessir
sérfræðingar eru ósammála reglum sem sótt-
varnayfirvöld hafa mælt með og stjórnvöld
fylgt. Það ætti að vera sjálfsagt og eðlilegt að
hlusta á rök þessara sérfræðinga í stað þess að
láta eins og þeir séu hluti af hvimleiðum og
of fjölmennum hópi afneitunarsinna sem eru
uppfullir af samsæriskenningum.
Í þessum málum, eins og öðrum, þarf að
eiga sér stað málefnaleg umræða, án æsings
og upphrópana. n
Gagnrýnin
Með hækkandi sól og skipulögðum skrefum til aflétt-
ingar sóttvarnaráðstafana sjáum við nú loks til lands
í faraldrinum sem herjað hefur á heim allan í rúm 2
ár. Listamenn og menningarhús hafa svo sannarlega
fundið fyrir högginu sem veiran hefur leitt af sér. Strax
í upphafi faraldursins einsettu stjórnarflokkarnir sér
að beita ríkisfjármálunum af fullum þunga til þess
að tryggja öfluga viðspyrnu samfélagsins og það hafa
mörg sveitarfélög einnig gert. Sérstök áhersla var lögð
á listir og menningu enda er mikilvægi þeirra óum-
deilt fyrir samfélagið.
Uppskeran er handan við hornið
Nýjustu viðspyrnuaðgerðirnar, og væntanlega þær
síðustu, undirstrika það. Með þeim var 450 millj-
ónum króna varið til tónlistar og sviðslista sem
hafa farið sérlega illa út úr heimsfaraldri með allt að
87% tekjufalli. Með aðgerðunum er okkar frábæru
listamönnum skapað aukið rými til frumsköpunar,
framleiðslu og viðburðahalds ásamt því að styðja þá
til sóknar á erlenda markaði með listsköpun sína.
Íslensk list og menning á mikið erindi á erlendri
grundu. Það höfum við ítrekað séð á undanförnum
árum, en íslenskir listamenn hafa margir gert það
gott á erlendum mörkuðum. Kynningarverðmæti
skapandi greina fyrir land og þjóð er óumdeilt og
er mikil væg ur þátt ur í alþjóðlegri markaðssetn-
ingu Íslands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn og
skapandi fólk. Við viljum halda áfram á þeirri braut.
Það má einnig reikna fastlega með því að fram-
lag lista og menningar til andlegrar og efnahags-
legrar viðspyrnu þjóðarinnar verði þýðingarmikið.
Mannsandinn nærist meðal annars á menningu, að
skemmta sér í góðra vina hópi, sækja tónleika, leik-
sýningar eða aðra menningarviðburði. Það styttist
óðfluga í að samfélagið lifni við eins og við þekktum
það fyrir heimsfaraldur. Uppskeran er handan við
hornið og vel undirbyggð viðspyrnan fer að birtast
okkur með tilheyrandi ánægju. Við horfum því
björtum augum fram á veginn, sannfærð um að
íslenskt menningarlíf fari að blómstra sem aldrei
fyrr. n
Staðið með menningu
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
menningar-
málaráðherra og
varaformaður
Framsóknar
Ágúst Bjarni
Garðarsson
þingmaður
Framsóknar
gar@frettabladid.is
Timburmenn í Downingstræti
Hinn litríki Boris Johnson situr
sem fastast í embætti forsætis-
ráðherra Breta þótt að honum sé
sótt fyrir linnulítið partístand í
Downingstræti númer 10. Birt
var skýrsla um veisluhöldin þar
sem strangar reglur um sótt-
varnir sem giltu fyrir almúgann í
Bretlandi voru vandlega brotnar
hver af annarri í sextán sam-
sætum. Ekki síst er óhófleg
áfengisneysla í þessum boðum
gagnrýnd enda sé ólíklegt að
þeir sem eru drukknir sökkvi
sér í smáatriði sóttvarnareglna í
réttu hlutfalli við áfengismagnið
í blóðinu. Sjálfur segist Boris sjá
eftir öllu saman og er þá kannski
ekki fyrstur allra til að vakna
með hausverk eftir partí.
Nýjar leiðir til áhrifa
Það er skarð fyrir skildi í þing-
liði Miðflokksins sem nú telur
aðeins tvo menn. Formaðurinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
íhugar sjálfsagt leiðir til áhrifa nú
þegar hann horfir upp á enn eitt
kjörtímabilið utan ríkisstjórnar.
Skipulagsmál eru fyrirferðarmik-
il á áhugasviði Sigmundar sem
hugsanlega rennir því hýru auga
til Ráðhúss Reykjavíkur þar sem
fljótlega á að skipa í borgarstjórn
að nýju eftir tímabil mikillar
gagnrýni á framgöngu núverandi
meirihluta í þeim málaflokki. Þar
sýnast vera ýmis sóknarfæri fyrir
önnur framboð. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 1. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR