Fréttablaðið - 01.02.2022, Page 14
Þótt nákvæm hest-
aflatala hafi ekki
verið gefin upp verða
þau um 400 talsins.
Búast má við að nýr
A4 verði aðeins
boðinn sjálfskiptur með
tvinnútfærslum.
Ford hefur frumsýnt á
myndum nýja Raptor-útgáfu
Ford Bronco en bíllinn fer á
sölu í Bandaríkjunum í mars
næstkomandi. Ætlunin er að
bjóða bílinn sem torfærubíl
sem ætti að henta vel þeim
Íslendingum sem þyrstir í
þannig eiginleika.
njall@frettabladid.is
Bíllinn er hannaður af perform-
ance-deild Ford og er þess vegna
hærri á grind og með meiri spor-
vídd. Þó að nákvæm hestaflatala
hafi ekki verið gefin upp ennþá
hefur Ford samt sagt að þau séu
í kringum 400 talsins. Vélin er
þriggja lítra línusexa með for-
þjöppu.
Raptor-útgáfan kemur á hærri
fjöðrun að framan og aftan og öxl-
arnir eru þeir sömu og í Bronco DR
rally raid. Þetta þýðir að sporvíddin
er 218 mm meiri og lágmarks
veghæð er 332 mm sem er aukning
um 122 mm. Jeppinn kemur svo á
37 tommu dekkjum á 17 tommu
felgum beint frá verksmiðju. Undir
bílnum er sérstök vörn fyrir fram-
stuðara, vél, skiptingu og drif. ■
Stórýktar sögur af
dauðadómi jeppans
Sjö aksturs-
stillingar verða
í Raptor-út-
gáfunni og
heitir ein þeirra
Baja sem nýtir
fjöðrunina til
hins ýtrasta.
MYNDIR/FORD
Í Bronco Raptor-jeppanum er hægt að losa hurðar eða þakbita úr bílnum.
njall@frettabladid.is
Njósnamyndir af bílum eru heil
atvinnugrein og til eru þeir sem
lúra í snjónum í lengri tíma til
að lesendur bílablaða geti spáð í
hvernig næstu kynslóðir bíla líti út.
Einn þeirra náði þessari mynd af
næstu kynslóð Audi A4 við vetrar-
prófanir í Svíþjóð á dögunum en sá
er ekki væntanlegur á markað fyrr
en á næsta ári. Þrátt fyrir felubún-
að má sjá talsverðar breytingar á
framenda með mjórri framljósum
og grilli, auk ávalari lína á vélarhlíf.
Í raun eru allar línur mýkri í nýja
bílnum og meiri halli á afturenda.
Búast má við að þessi bíll verði
aðeins fáanlegur sjálfskiptur en
hann mun halda í dísil- og bensín-
vélarnar sem fá munu tvinnút-
færslur. Búast má við að MEB-
undirvagninn verði notaður áfram
en það mun koma ný, tveggja lítra
bensínvél með endurhannaðri for-
þjöppu. Bensínvélarnar verða með
48V tvinnútfærslu og dýrari útgáfur
verða tengiltvinnútgáfur með sömu
14,4 kWst rafhlöðu og í Audi Q5.
Ef Audi A4 mun koma í 100% raf-
magni verður það á nýjum undir-
vagni og þá ekki fyrr en 2025. ■
Næsta kynslóð Audi A4 á njósnamynd
Þótt A4 komi ekki fyrr en á næsta ári eru strax að birtast myndir af honum.
MYND/SKJÁSKOT
njall@frettabladid.is
Von er á nýrri kynslóð Mercedes-
Benz E-línu á næsta ári en bíllinn
kemur á markað seinni hluta
2023. Þrátt fyrir að margir sam-
keppnisaðilar muni bjóða upp á
rafdrifna útgáfu samhliða verður
það ekki raunin hjá Mercedes en
E-línan mun halda sig við tvinnút-
gáfur og tengiltvinnútgáfur en láta
vera að koma með 100 rafdrifna
útgáfu. Þess í stað kemur sérstök
EQE-útgáfa sem kemur á markað á
næstu vikum.
E-línan hefur verið á markaði
í þrjá áratugi og þrátt fyrir að
jepplingsútgáfur hafi tekið sinn
hluta markaðarins er E-línan
einn mikilvægasti sölubíllinn hjá
Mercedes. Um 16% sölu ársins 2020
voru í þessari gerð sem eru meira
en 300.000 eintök á ári. Aukin-
heldur mun ekki koma Coupé eða
blæjuútgáfa af E-línunni en ný gerð,
CLE, mun sjá um að taka við þeim
kaupendum. Bíllinn mun koma á
MRA2-undirvagninum svo að hann
mun geta nýtt alla þann tæknibún-
að sem Mercedes býður upp á. ■
Áfram brunahreyflar í næstu kynslóð E-línu
Þótt rafdrifin EQE-útgáfa sé handan
við hornið ætlar Mercedes samt að
koma með næstu kynslóð E-línu
með brunahreyflum. MYND/SKJÁSKOT
njall@frettabladid.is
Það finnst kannski sumum fokið
í f lest skjól þegar merki eins
og Lamborghini tilkynnir um
rafvæðingu framleiðslu sinnar.
Lamborgh ini hefur sagt að árið
2022 verði síðasta árið þar sem
aðeins brunahreyflar verði í boði
í nýjum bílum þeirra. Auk þess
hefur Lamborgh ini tilkynnt að
allir bílar þeirra í náinni framtíð
verði rafdrifnir að einhverju leyti.
Strax á næsta ári munu koma
tvinnútgáfur Lamborghini-bíla
á markað og Lamborghini hefur
einnig staðfest að fyrsti 100%
raf bíll merkisins komi á markað
innan nokkurra ára og að hann
verði fjögurra dyra. Fyrsti Lam-
borghini-bíllinn sem inniheldur
rafmótor verður því tvinnútgáfa
Aventador á næsta ári. Búast má
við nýrri kynslóð Urus-jeppans
árið 2024 og verður hann bæði
sem tvinnbíll og tengiltvinnbíll.
Um miðjan áratuginn munum
við svo sjá Huracán-tvinnbíl en
raf bíllinn er líklegur á markað
2028 eða þar um bil. Ef laust hefðu
einhverjir viljað sjá Lamborghini
bregast f ljótar við rafvæðingunni
en þegar hafa rafdrifnir ofur-
bílar eins og Rimac Nevara og
Tesla Roadster sannað sig svo um
munar. ■
Lamborghini tilkynnir um rafvæðingu
Nýjasti bíll
Lamborghini er
Countach LPI
800-4 sem er
bæði með V12
vél og rafmótor
og skilar alls 803
hestöflum.
njall@frettabladid.is
Næsta kynslóð BMW M5 verður
frumsýnd seint á næsta ári og eins
og sjá má á nýjum njósnamyndum
af bílnum er þróun nýja bílsins
hafin. Herma heimildir að nýi
bíllinn mun fá tvinnútfærsluna úr
XM-ofurjepplingnum sem skilar
737 hestöflum. Á myndinni má
sjá að grillið verður meira í eðli-
legri stærð eins og núverandi bíll í
stað þaninna nasavængja M3- og
M4-bílanna. Framendinn verður
talsvert breyttur með nýjum
laserljósum, skarpari vélarhlíf og
framvæng svipuðum og sjá má
á 2-línunni. Breiðar hjólaskálar
benda til meiri sporvíddar og
á hlið bílsins má sjá merkingu
þar sem á stendur að um prófun
tvinnökutækis sé að ræða. Auk
þess má sjá votta fyrir hleðsluopi
fyrir aftan framhjólið sem segir að
næsti M5 verður tengiltvinnbíll.
Vélin í XM bílnum er 4,4 lítra V8
vél með tveimur forþjöppum og
er hún pöruð við tvinnútfærsluna
úr X5 45e. Það gerir 737 hestöfl og
nær togið 1.000 newtonmetrum
og verður nýr M5 áfram fjórhjóla-
drifinn. ■
Næsta kynslóð BMW M5 verður í allt
að 750 hestafla tvinnútfærslu
Næsta kynslóð M5 fær vélbúnaðinn
úr XM og verður fjórhjóladrifin.
MYND/SKJÁSKOT
2 BÍ L A BL A ÐI Ð 1. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR