Fréttablaðið - 01.02.2022, Síða 26

Fréttablaðið - 01.02.2022, Síða 26
Meðal áhugamála ritstjóra Bílablaðs Fréttablaðsins er söfnun mynda og heimilda um gömul mótorhjól. njall@frettabladid.is Bjargmundur Björgvinsson hafði samband við undirritaðan á dögunum með nokkrar gamlar mótorhjólamyndir úr safni afa síns, Bjargmundar Guðmundssonar. Bjargmundur hinn eldri var lengst af rafstöðvarstjóri í Hafnarfirði og átti nokkur mótorhjól en fyrsta mótorhjól hans var Bradbury- mótorhjólið. Á einni myndinni mátti sjá, svo ekki varð um villst, mótorhjól sem bar númerið RE-187, en það er einmitt númerið sem Bradbury- mótorhjólið bar. Við nánari skoðun á hjólinu á mynd- inni má sjá að um 1911 árgerð er að ræða sem gerir myndina ansi merkilega, því aðeins er vitað um eitt eldra mótorhjól á Íslandi, en það var ELG-mótorhjólið sem kom hingað fyrst allra árið 1905. Bradbury-mótorhjólið var fyrst skráð á Óskar Westlund prentara 24. apríl 1920 og er ári seinna skráð á Bjarna Þorsteinsson, Vestur- götu 33. Það er svo tilkynnt 1924 að í apríl 1922 hafi hjólið verið selt Bjargmundi Guðmundssyni í Hafnarfirði, en hann átti einn- ig BSA-mótorhjólið HF-10 árið 1927 eða þar um bil. Allavega er RE-187 komið á Rugby-vörubifreið í byrjun árs 1928 svo að líklega hefur hann selt Bradbury-mótor- hjólið um eða eftir miðjan þriðja áratuginn. Hjólið var upphaflega skráð eins strokka og 3 ½ hestafl og 60 sentimetrar á breidd svo ekki hefur það verið með hliðarvagni. Bradbury er eitt af fyrstu mótorhjólamerkjunum en Brad- bury-mótorhjól komu á markað árið 1902 með Minerva-vélum. Bradbury fékk einkaleyfi árið 1903 fyrir grind sem var ásoðin sveifar ás húsinu og þar af leiðandi þóttu hjólin stöðugri í keyrslu. Árið 1910 voru komnar kúlulegur í sveifarásinn og á þessum tíma þóttu Bradbury-mótorhjólin mjög fullkomin. Árið 1910 kom 3,5 hestafla gerðin á markað og voru tvær gerðir Bradbury þá á markaði, bæði 517 rsm. Gerðirnar kölluðust Sport og Standard og voru búnar reimdrifi. Þá voru þær búnar Dun- lop-dekkjum og Brooks-hnakki, en Standard-útgáfan eins og hjól Bjargmundar var með gaslukt með gastanki fyrir ofan bensíntankinn og þekkist 1911 árgerðin af því. n Elsta mótorhjólið til að nást á mynd Bradbury Standard frá 1911 þekkist meðal annars af reimdrifi og gaslukt ásamt skermuðu fram- brettinu. MYND/SKJÁSKOT Myndin virðist þó vera tekin við Rafstöðina við Elliðaár en Bjargmundur vann þar 1922-3 og er myndin því líklega tekin ekki síðar en 1923. Sérfræðingar í hleðslustöðvum fyrir rafbíla Reykjavík Klettagörðum 25 Sími 5 200 800 Akureyri Draupnisgötu 2 Sími 4 600 800 Reykjanesbær Bolafæti 1 Sími 420 7200 Reyðarfjörður Nesbraut 9 Sími 470 2020 Selfoss Eyrarvegi 67 Sími 4 800 600 Hafnarfjörður Bæjarhrauni 12 Sími 5 200 880 Grundartangi Mýrarholtsvegi 2 Sími 5 200 830 Nánari upplýsingar á ronning.is/rafbilar 6 BÍ L A BL A ÐI Ð 1. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.