Fréttablaðið - 04.02.2022, Side 18
Í hálfleik þurfum
við að eiga samtal
við okkur sjálf. Hvernig
viljum við eldast, hvað
getum við gert sjálf til
þess að auka líkurnar á
góðri heilsu?
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir , ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Helga Margrét Skúladóttir, formaður GoRed, og Rannveig
Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri GoRed. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GoRed Ísland er orðið táningur, hvorki meira né
minna. Það er því nokkuð skrýtið, en táknrænt fyrir
málefni ársins, að á fyrsta táningsárinu skulum við
fjalla um lok frjósemisskeiðs kvenna, breytinga-
skeiðið og ólíklegt að ungar konur hugsi mikið til
þeirra tímamóta. En eins og kemur fram í máli þeirra
sem rætt er við í blaðinu okkar, byrjar þetta skeið
fyrr en konur grunar.
Það hefur ekki verið fjallað mikið um efnið frá
sjónarhóli hjartalæknisfræði og vonandi heldur sú
umræða áfram eftir að GoRed deginum lýkur, því að
mögulega munu rannsóknir, er varða hjartaheilsu
eftir að breytingaskeið er hafið, breyta útreikningum
áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum fyrir þennan
hóp.
Nýjar rannsóknir og síbreytileg vitneskja hvetur
auðvitað til nýrrar hugsunar og breytinga, og oft og
tíðum kollvarpast gamlar hugmyndir og aðferðir á
svipstundu. Við þurfum að vera víðsýn og viðbúin.
Að þessu sinni bjóðum við upp á viðtöl við tvo
hjartasérfræðinga og kvensjúkdómalækni, kannski
er hér um að ræða fyrstu tengingu tveggja heima,
til þess að búa betur að heildrænni heilsu kvenna,
en samfélagið allt þarf á því að halda að við opnum
umræðuna og höldum henni á lofti, því að um óum-
flýjanlegan þátt í lífi allra kvenna er að ræða og
stórt lýðheilsumál. Við konur þurfum sjálfar að vera
meðvitaðar um okkar heilsu, taka ábyrgð, spyrja
spurninga og leita svara og aðstoðar ef þörf þykir.
Tökum stjórnina og látum okkur líða sem best.
Gleðilegan rauðan dag! ■
Rannveig Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri GoRed, og
Helga Margrét Skúladóttir, formaður GoRed
Gleðilegt GoRed 2022
Lífið getur verið alls konar og
tekur sífelldum breytingum á
mismunandi skeiðum ævi okkar.
Við förum í gegnum kynþroska,
menntum okkur, förum að vinna,
eignumst fjölskyldu, missum ætt-
ingja, komum okkur upp þaki yfir
höfuðið og svona mætti lengi telja.
Á leiðinni missum við oft sjónar
á daglegum heilsumarkmiðum
sem við viljum gjarnan hafa og
hugsum stundum í átökum til
þess að koma okkur á „beinu
brautina“. Og við þolum merki-
lega vel það sem á okkur er lagt
þegar við erum ung og hraust en
það er tímabundið.
Í hálf leik þurfum við að eiga
samtal við okkur sjálf. Hvernig
viljum við eldast, hvað getum við
gert sjálf til þess að auka líkurnar
á góðri heilsu?
Hér eru nokkur ráð sem við
þekkjum vel – já, sama gamla
tuggan, en þetta virkar!
■ Hreyfing er auðvitað ofarlega á
blaði, finndu þér hreyfingu sem
þér finnst skemmtileg, gjarnan
utandyra.
■ Gott mataræði – það mikilvæga
hér er að velja fjölbreytta fæðu,
trefjaríka og forðast unnin mat-
væli.
■ Reykingar? Ef þú reykir – hættu
því, þetta er stærsti áhættu-
þáttur hjarta- og æðasjúkdóma.
Það er aldrei of seint að hætta.
■ Streita? Stór áhrifaþáttur í vel-
líðan okkar er að við stjórnum
streitunni í okkar lífi – ekki láta
streitu stjórna þér. Reglubundin
hreyfing er besta ráðið til að
vinna bug á streitu.
■ Svefn. Það er lykilatriði að sofa
vel og endurnýja orkubirgðirnar.
Ef þú af einhverjum orsökum
sefur ekki vel á nóttunni skaltu
leita ráðlegginga því þær eru ein-
staklingsbundnar. Forðastu koff-
índrykkju eftir kl. 14 á daginn. ■
Það sem skiptir máli þegar við
förum inn í seinni hálfleik
2 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURHJARTAÐ ÞITT 2022